Sigurður Ingi segir Framsókn ekki klofinn flokk

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir flokk sinn alger­lega trú­verð­ugan sam­starfs­flokk í nýrri rík­is­stjórn eins og hann sé í dag. Hann segir engan klofn­ing vera í flokknum og full­yrðir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður hefðu gengið betur ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði tekið þátt í þeim. Þetta kom fram í við­tali við Sigurð Inga í þætt­inum Sprengisandi á Bylgunni í morgun.

Eini flokk­ur­inn sem hefur sýnt mik­inn vilja til að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Rík­is­stjórn flokk­anna tveggja féll hins vegar í kosn­ing­unum og þurfa þeir að minnsta kosti einn flokk til við­bótar til að geta haldið rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sínu áfram í meiri­hluta. Við­mæl­endur Kjarnans í öðrum flokkum hafa allir úti­lokað að þeir myndu koma inn í núver­andi stjórn­ar­sam­starf. Til greina kæmi að starfa með annað hvort Sjálf­stæð­is­flokki eða Fram­sókn­ar­flokki í rík­is­stjórn undir vissum kring­um­stæðum og ef saman næð­ist um mál­efni, en engin mögu­leiki væri á því að fara í sam­starf með þeim báðum. Ástæð­urnar eru m.a. þær að kosið var vegna spill­ing­ar­mála sem tengd­ust síð­ustu rík­is­stjórn og eng­inn vilji er til að fram­lengja líf­tíma hennar.

Meiri lin­kind eru þó gagn­vart sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk en Fram­sókn­ar­flokki. Það sést á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þegar tekið þátt í nokkrum óform­legum og form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum, ann­ars vegar með Bjartri fram­tíð og Viðreisn og hins vegar með Vinstri grænum, en Framsókn hefur enn ekki verið boðið að taka þátt í neinu slíku sam­tali. Ein helsta ástæðan er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins og odd­viti í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hann þykir óút­reikn­an­legur, ekk­ert traust er til hans hjá þing­mönnum ann­arra stjórn­mála­flokka en Sjálf­stæð­is­flokks og sífellt her­skárri yfir­lýs­ingar hans um sam­særi gegn sér í Wintris-mál­inu og árásir fjöl­miðla þykja ekki trú­verð­ugar.

Mikið frost hefur verið milli Sig­mundar Davíðs og Sigurðar Inga frá því að sá síð­ar­nefndi bauð sig fram gegn honum sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og vann í byrjun októ­ber síð­ast­lið­inn.

Viðvarandi verkefni að bæta samskiptin

Sigurður Ingi var í við­tali á RÚVá föstu­dags­morgun og við­ur­kenndi þar að það bæti verið betra á milli hans og Sig­mundar Davíðs. Það væri því miður stað­reynd. For­sæt­is­ráð­herra sagði það vera við­var­andi verk­efni að bæta sam­skipti við Sig­mund Davíð innan þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins og sagð­ist vona að Sig­mundur Davíð fari brátt að taka þátt í þing­störf­um, sem hann hefur ekki gert til þessa á nýju kjör­tíma­bili.

Sama dag var Sig­mundur Davíð spurður út í stöð­una innan Fram­sókn­ar­flokks­ins í marg­um­töl­uðu við­tali við RÚV. Þar svar­aði hann flestum spurn­ingum um sam­starfsörð­ug­leika innan flokks­ins með því að segja að RÚV bæri mesta ábyrgð á þeim flokksá­tökum sem ættu sér stað.

Sigurður Ingi sagði á Sprengisandi í morgun að hann hefði ekki stórar áhyggjur af sam­skiptum við Sigmund Davíð. „Ég hef ekki stór­ar áhyggj­ur af því. Ég held að það geti ann­ars veg­ar lag­ast með ein­hverj­um hætti. Það að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn standi ekki traust­um fót­um fyr­ir það sem hann stend­ur fyr­ir og þing­flokk­ur­inn bakki það ekki upp hef ég eng­ar áhyggj­ur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár