Sigurður Ingi segir það viðvarandi verkefni að bæta samskipti við Sigmund

For­sæt­is­ráð­herra segir að það gæti verið betra á milli sín og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Honum finnst baga­legt að fyrr­ver­andi for­maður Fram­sóknar verði ekki á 100 ára afmæl­is­há­tíð flokks­ins.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að það gæti verið betra á milli hans og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins. Það sé því miður stað­reynd. „Og það er baga­legt að hann verði ekki með okkur á hátíð­inni okkar í Þjóð­leik­hús­inu og vilji vera ann­ars staðar. En svona verður það að vera.“ Þetta sagði Sigurður Ingi í við­tali á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun í til­efni þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er 100 ára í dag og heldur hátíð. For­sæt­is­ráð­herra sagði það vera við­var­andi verk­efni að bæta sam­skipti við Sigmund Davíð innan þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins og sagð­ist vona að Sig­mundur Davíð fari brátt að taka þátt í þing­störfum, sem hann hefur ekki gert til þessa á nýju kjör­tíma­bili.

100 milljónir „lítil fjárhæð“

Í við­tal­inu ræddi Sigurður Ingi einnig um þá ákvörðun, sem greint var frá í frum­varpi til fjár­auka­laga, að leggja 100 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði til „Mat­væla­lands­ins Íslands“, verk­efnis sem er ætlað að „treysta orð­spor og móta ímynd Íslands sem upp­runa­lands hreinna og heil­næmra mat­væla og auka með því móti gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­inn­ar.“

Ástæða við­bót­ar­fram­lags­ins, sem er lagt til af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, er sú að gera verk­efn­inu kleift að standa fyrir sér­stöku mark­aðsátaki á erlendum mörk­uðum sauð­fjár­af­urða vegna fyr­ir­sjá­an­legrar birgða­aukn­ingar inn­an­lands. Í frum­varp­inu seg­ir: „Mik­ill tap­rekstur er á sölu sauð­fjár­af­urða og þrátt fyrir lækkun á verði slát­ur­leyf­is­hafa til bænda fyrir sauð­fjár­af­urðir er frek­ari aðgerða þörf. Mark­aðs­ráð kinda­kjöts, sem er sam­starfs­vett­vangur bænda og slát­ur­leyf­is­hafa, hefur unnið mark­visst að því að finna nýja mark­aði erlend­is, en ljóst er að afsetja þarf um 800 til 1.000 tonn til að koma í veg fyrir upp­nám og almenna verð­fell­ingu á kjöti á inn­lendum mark­aði seinnipart vetrar og/eða næsta haust.“

Sigurður Ingi benti á í við­tal­inu að tekjur í þeim sveit­ar­fé­lögum á land­inu þar sem sauð­fjár­rækt er aðal­at­vinnu­vegur séu lægri en ann­ars­staðar. „Í því ljósi, að setja 100 millj­ónir. á þessum tíma vegna allskyns óáran sem bjátað hefur á erlendis, lokun Rússamark­aða, efna­hags­á­stand dap­urt í Evrópu, mikil styrk­ing krón­unnar, mjög hröð í haust, að setja það inn til að leysa þennan vanda[...]þetta er nú mjög lítil fjár­hæð.“ For­sæt­is­ráð­herr­ann bætti við að gríð­ar­lega mikil sam­lægð væri á milli bænda og neyt­enda og mik­il­vægt væri fyrir neyt­endur að geta gengið að inn­lendri fram­leiðslu.

Sigurður Ingi ræddi einnig um ástandið í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og sagð­ist telja líkur hafa auk­ist á því að minni­hluta­stjórn verði mynduð til vors. „Af því að menn eru ekki til­búnir til meiri­hluta­starfs þá væri næsta skref að segja að við erum til­búin til að starfa saman í til­tek­inn tíma, til að mynda til vors, og hafa þá kosn­ingar að nýju. Sem er auð­vitað ekki víst að leysi úr öllum vanda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár