Minningarhátíð í uppnámi

Mikil hátíða­höld sem fyr­ir­huguð voru í Nuuk, höf­uð­stað Græn­lands í sumar eru í upp­námi. Minnast átti þess að 300 ár eru síðan Hans Egede kom til lands­ins og kristn­aði þjóð­ina. Sumir Græn­lend­ingar telja hann þjóð­hetju, aðrir segja hann nýlendu­herra.

Styttan af Hans Egede í Nuuk
Styttan af Hans Egede í Nuuk Mynd: Wikicommons

Í byrjun júlí árið 1721 steig á land á Græn­landi maður með skrif­legt leyfi Friðriks IV Dana­kon­ungs upp á vas­ann. Þessi maður hét Hans Egede. Hann fædd­ist í Noregi árið 1686, fað­ir­inn danskur, móð­irin norsk. Hans Egede stund­aði nám í guð­fræði við Hafn­ar­há­skóla og lauk þaðan emb­ætt­is­prófi og leit ætíð á sig sem Dana. Eftir að nám­inu lauk sneri Hans Egede heim til Noregs og gerð­ist prestur í Lófóten. Þar heyrði hann margar frá­sagnir af nor­rænu fólki á Græn­landi. Þessar frá­sagnir vöku áhuga hans og í maí árið 1721 var hann kom­inn með leyfi Friðriks IV til að leita uppi nor­rænt fólk á Græn­landi og freista þess að kristna það og jafn­framt að end­ur­kristna þá íbúa lands­ins sem hugs­an­lega væru gengnir af trúnni. Enn­fremur hafði kon­ungur gefið Hans Egede leyfi til að kanna mögu­leika á, og eftir atvikum, freista þess að gera Grænland að nýlendu Dana og Norð­manna, sem þá voru í ríkja­sam­bandi. Grænland hafði löngu áður en þetta gerð­ist verið undir stjórn Norð­manna en eftir plág­una miklu á 14. öld , Svarta­dauða, misstu Norðmenn ítök sín á Græn­landi. Eftir að ríkja­sam­bandi Dan­merkur og Noregs lauk árið 1814 varð Grænland nýlenda Dana.

[adspot]Hans Egede beið ekki boð­anna eftir að leyfi kon­ungs var fengið og í júní 1721 hélt hann af stað frá Bergen, ásamt eig­in­konu sinni og fjórum börnum. Með í för voru einnig rúm­lega 40 menn og konur, sem Hans Egede hafði fengið til far­ar­innar. Félagið Det Bergen Grøn­land­ske Compagnie var stofnað, skömmu fyrir brott­för­ina til Græn­lands. Því var ætlað að ann­ast „praktísk mál“, halda uppi lögum og reglu, skipu­leggja veiðar til tekju­öfl­unar o.s. frv. Enn­fremur kanna mögu­leika á vinnslu málma, sem talið var að víða væri að finna í land­inu. Græn­lands­far­arnir voru á þremur skipum með margs konar búnað. Hans Egede hafði gefið sínu skipi nafnið Vonin, sem var lýsandi fyrir leið­ang­ur­inn.

Ekkert norrænt fólk

Hans Egede tók land á vest­ur­strönd Græn­lands 3. júlí 1721. Ekkert fólk, nor­rænt í útliti, sá hann þegar á land var komið. Fólkið sem mætti honum reynd­ist vera Inúítar. Af fólki með nor­rænt útlit sást hvorki tangur né tetur, þrátt fyrir mikla eft­ir­grennslan á all­stóru svæði á vest­ur­strönd­inni á næstu vikum og mán­uðum. Hans Egede sat þó ekki aðgerða­laus, hann tók til við að læra mál inn­fæddra og jafn­framt að boða inn­fæddum kristna trú. Það var þó langt í frá auð­velt, mörg vest­ræn hug­tök fyr­ir­fund­ust ekki í græn­lensku. Brauð þekktu Græn­lend­ingar ekki og setn­ingin „gef oss í dag vort dag­legt brauð“ var þeim óskilj­an­leg. Hans Egede ákvað á end­anum, eftir mikil heila­brot, að skipta brauð­inu út fyrir sel og þá voru Græn­lend­ingar með á nót­unum „gef oss í dag vorn dag­lega sel“.

Skyrbjúgur og hlaupabóla

Margs­konar erf­ið­leikar mættu Hans Egede og „land­nemunum“. Veðr­áttan á Græn­landi er óblíð og vetr­ar­kuld­inn reynd­ist mörgum erfið. Þegar líða tók á fyrsta vet­ur­inn þjáð­ust margir úr hópnum af skyr­bjúg og strax vorið 1722 héldu margir þeirra sem komið höfðu með Hans Egede til baka. Hann var þó ekki á því að gef­ast upp og hélt trú­boð­inu áfram. Nú fóru líka smám saman að ber­ast tekjur af varn­ingi sem fluttur var til Dan­merkur og Noregs einkum kjöt, lýsi og skinn. Stað­ur­inn þar sem Hans Egede og hans fólk sett­ist að hét Kangeq og sam­an­stóð af örfáum húsum. Nokkrum árum síðar var ákveðið, að til­lögu danska kóngs­ins að flytja byggð­ina og byggja nýtt þorp, skammt frá Kangeq. Hans Egede gaf staðnum nafnið Godthåb, Íslend­ingar kölluð stað­inn Góðvon. Síðar fékk stað­ur­inn nafnið Nuuk. Nuuk er höf­uð­staður Græn­lands og mið­stöð stjórn­sýslu í land­inu, íbúar í dag eru um 18 þús­und.

Árið 1733 fengu þýskir trú­boðar, herrn­hutar, leyfi til að setja upp trú­boðs­stöð skammt frá Nuuk. Talið er að með þessum trú­boðum, eða dönsku kaup­skipi, hafi borist hlaupa­bóla sem varð mörgum Græn­lend­ingum að ald­urtila. Plágan sneyddi ekki hjá nýlend­unni og meðal þeirra sem lét­ust var Gertrud, eig­in­kona Hans Egede. Sjálfur sneri hann til baka, til Kaup­manna­hafnar árið 1736, ásamt þremur börnum sínum en það fjórða, Poul Egede, sem hafði þá lokið guð­fræði­prófi frá Hafn­ar­há­skóla, varð eftir á Græn­landi. Poul Egede átti stóran hlut í að skapa græn­lenskt rit­mál og er einkum minnst sem mál­vís­inda­manns. Hann starf­aði ötul­lega að trú­boði og hélt þannig áfram braut­ryðj­enda­starfi föður síns.

Biskup

Hans Egede lagði ekki árar í bát eftir að hann kom til Kaup­manna­hafnar. Hann stofn­aði fljót­lega skóla með það fyrir augum að mennta trú­boða til starfa á Græn­landi. Árið 1741 var hann gerður að bisk­upi yfir Græn­landi, með aðsetur í Kaup­manna­höfn. Hans Egede dreymdi um að snúa aftur til Græn­lands en sú varð ekki raunin.

[adspot]Skömmu eftir heim­kom­una til Kaup­manna­hafnar gekk hann í hjóna­band með Mette Trane „mið­aldra fyr­ir­mynd­ar­konu og hús­móður“ eins og eig­in­mað­ur­inn lýsti henni. Þau fluttu frá Kaup­manna­höfn til Stubbekjøbing á Falstri árið 1747 þar sem þau bjuggu til ævi­loka. Hans Egede lést 1758 og Mette Trane þremur árum síðar.

Boðberi kristninnar og stofnandi Nuuk

Hans Egede er einkum minnst fyrir tvennt. Í fyrsta lagi fyrir að koma með kristn­ina til Græn­lands. Vitað er að löngu fyrir hans daga höfðu kristnir menn af nor­rænum upp­runa sest að á suð­ur­hluta Græn­lands, Eystri og Vestri byggð. Sú byggð lagð­ist hins vegar af. Hans Egede var því ekki fyrstur til að koma með kristn­ina til Græn­lands en sá þráður sem hann tók upp með veru sinni þar hefur hald­ist óslit­inn síðan. Þess má geta að í dag eru 96% íbúa Græn­lands kristnir.

Í öðru lagi er hans minnst sem stofn­anda höf­uð­stað­ar­ins Nuuk.

Stytturnar og rauða málningin

Við Marm­ara­kirkj­una (Frið­riks­kirkju) í Kaup­manna­höfn stendur stytta af Hans Egede, steypt í brons. Önnur nákvæm­lega eins, sömu­leiðis úr bronsi, stendur í græn­lenska höf­uð­staðnum Nuuk. Höfundur frum­gerð­ar­innar, sem unnin var í gifs er danski mynd­höggv­ar­inn August Saaby (1823 – 1916).

21. júní 2020, á þjóð­há­tíð­ar­degi Græn­lands, var rauðri máln­ingu skvett á stytt­una af Hans Egede í Nuuk. Á fót­st­all stytt­unnar var skrifað orðið „decolonize“. Níu dögum síðar var sams­konar máln­ingu skvett á stytt­una við Marm­ara­kirkj­una í Kaup­manna­höfn og sama orðið ritað á fót­stall­inn. Í við­tali sagði einn „mál­ar­anna“ að Hans Egede væri full­trúi danskrar nýlendu­stefnu á Græn­landi. Hann hefði „átt stærstan þátt í því að troða kristn­inni uppá Græn­lend­inga“.

Þegar þetta ger­ist var skammt um liðið frá miklum mót­mælum í Banda­ríkj­unum eftir að lög­regla í Minn­ea­polis varð þeldökkum manni, George Floyd, að bana. Millj­ónir mót­mæltu fram­ferði lög­regl­unnar og í kjöl­farið reis mikil mót­mæla­alda víða um lönd. Þau mót­mæli beindust ekki síst gegn nýlendu­herrum fyrri alda og fólust einkum í að skvetta rauðri máln­ingu á styttur í borgum og bæjum fyrrum nýlendu­ríkja.

Á Hans Egede að fara eða vera áfram í Nuuk?

Hér­aðs­stjórnin í Sermersooqs, sem Nuuk til­heyrir, ákvað 3. júlí í fyrra að efna til kosn­inga um hvort styttan af Hans Egede skyldi vera áfram á sínum stað eða hvort hún skyldi fjar­lægð. Kosn­inga­þátt­taka var afar dræm, af 23 þús­und manns sem höfðu rétt til að kjósa greiddu aðeins 1521 atkvæði. 921 vildi láta stytt­una vera áfram á sínum stað, 600 vildu að hún yrði fjar­lægð. Hans Egede stendur því áfram á stalli sínum. Sömu sögu er að segja um stytt­una við Marm­ara­kirkj­una í Kaup­manna­höfn, hún stendur óhreyfð og engar raddir hafa heyrst um að fjar­lægja hana.

Minningarhátíðin í uppnámi

Árið 1971, var þess minnst með veg­legum hætti að 250 ár voru liðin frá komu Hans Egede til Græn­lands, meðal ann­ars var þá vígð ný kirkja í bænum, kennd við hann.

Fyrir nokkrum árum ákváðu bæj­ar­yf­ir­völd í Nuuk að sum­arið 2021 skyldi þess minnst með marg­vís­legum hætti að 300 ár yrðu liðin frá komu Hans Egede til Græn­lands en eins og áður var getið sett­ist hann að í Nuuk árið 1728, fimm árum eftir kom­una til lands­ins. Á fjár­hags­á­ætlun bæj­ar­ins var gert ráð fyrir að verja 2,7 millj­ónum danskra króna (57 millj­ónir íslenskar) til að minn­ast tíma­mót­anna. Hápunktur hátíða­hald­anna yrði í kringum heim­sókn Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar til Nuuk. Drottn­ingin nefndi fyr­ir­hug­aða heim­sókn sér­stak­lega í nýársávarpi sínu í sjón­varpi og útvarpi. Og nefndi nafn Hans Egede sér­stak­lega í því sam­bandi.

En nú er óvíst hvað verður. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken fyrir nokkrum dögum sagði Charlotte Ludvig­sen borg­ar­stjóri að hér­aðs­stjórnin hefði ákveðið að draga til baka fjár­veit­ingar vegna hátíða­hald­anna. Margir íbúar í Nuuk hefðu lýst óánægju með að miklum pen­ingum yrði varið í að minn­ast sér­stak­lega manns sem hefði verið full­trúi nýlendu­herr­anna í Kaup­manna­höfn. Jafn­framt sagði borg­ar­stjór­inn að pen­ing­unum sem ákveðið hefði verið að nota á þessu ári yrði varið til að minn­ast þess að árið 1728 verða liðin 300 ár frá því að bær­inn Nuuk varð til.

Hvort, og með hvaða hætti, þess verður minnst á kom­andi sumri að þá verða 300 ár frá komu Hans Egede til Græn­lands er óljóst á þess­ari stundu. Charlotte Ludvig­sen borg­ar­stjóri sagði að ef ein­hverjir vildu skipu­leggja hátíða­höld væri þeim það vel­komið. Hún nefndi sér­stak­lega að auð­vitað væri Margrét Þór­hildur drottn­ing vel­komin til Nuuk hvenær sem er. Fjöl­miðla­full­trúi drottn­ingar vildi ekki svara því hvort breyt­ingar yrðu á fyr­ir­hug­aðri Græn­lands­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár