Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni ákærður fyrir brot á sjómannalögum

Alls smit­uð­ust 22 af 25 áhafn­ar­með­limum á tog­ar­anum af COVID-19. Þeir voru ekki sendir í land heldur skikk­aðir til að vinna veikir. Lög­reglan á Vest­fjörðum hefur ákært skip­stjór­ann.

Skip­stjóri tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar hefur verið ákærður fyrir brot á sjó­manna­lögum vegna kór­ónu­veiru­hóp­sýk­ingar sem varð þar um borð í októ­ber. Frá þessu er greint á vef RÚV en það er lög­reglan á Vest­fjörðum sem gefur út ákæruna.

Í þeirri grein sjó­manna­laga sem skip­stjór­inn er ákærður fyrir að brjóta gegn segir að veik­ist skip­verji eða slas­ist skuli skip­stjóri sjá um að hann fái nauð­syn­lega umönnun á skip­inu eða í landi. Ef ástæða er talin að ætla að ein­hver um borð sé hald­inn sjúk­dómi sem hætta stafi af fyrir aðra skuli skip­stjóri láta flytja sjúk­ling­inn í land, ef ekki reyn­ist unnt að verj­ast smit­hættu á skip­inu.

[adspot]Kjarn­inn fjall­aði um atburð­ina á Júl­íusi Geir­munds­syni í októ­ber, en þar smit­uð­ust 22 af 25 áhafn­ar­með­limum af COVID-19 í haust.

[links]Skipið lét hins vegar land­helg­is­gæsl­una ekki vita af hugs­an­legu hópsmiti, auk þess sem ekki var farið strax í land eftir að upp komst um veik­ind­in.

Sam­kvæmt Arn­ari Gunn­ari Hilm­ars­syni háseta á tog­ar­anum voru menn einnig skikk­aðir til að vinna veikir á meðan á túrnum stóð.

Hrað­frysti­húsið Gunn­vör hf, sem gerir út Júl­íus Geir­munds­son, sendi svo frá sér yfir­lýs­ingu seint í kjöl­far þess að málið rataði í fjöl­miðla þar sem beðist var afsök­unar á því að ekki hafa verið í sam­bandi við Land­helg­is­gæsl­una eins og leið­bein­ingar gerðu ráð fyr­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár