Útgerðin biðst „einlæglega afsökunar“

Fram­kvæmda­stjóra Hrað­frysti­húss­ins-Gunn­varar, sem gerir út Júlíus Geir­munds­son, þykir „þung­bært að sitja undir ásök­unum um að ekki sé hugað nógu vel að heilsu og öryggi starfs­manna“.

Júlíus Geirmundsson ÍS 270, er gerður út frá Ísafirði.
Júlíus Geir­munds­son ÍS 270, er gerður út frá Ísafirði. Mynd: Af vef Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Hrað­frysti­húsið-Gunnvör hf., sem gerir út frysti­skipið Júlíus Geir­munds­son ÍS 270, telur ljóst að rétt hefði verið að til­kynna grun um kór­ónu­veirusmit um borð í skip­inu til Land­helg­is­gæsl­unnar og láta þeim yfir­völdum eftir að meta hvort rétt væri að sigla skip­inu til hafnar. Slík fram­kvæmd hefði verið í sam­ræmi við þær leið­bein­ingar, sem við­hafa ber í þessum aðstæðum og stétt­ar­fé­lög sjó­manna komu sér saman um við upp­haf kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Því miður fórst það fyrir og ábyrgð á þeim mis­tökum mun fyr­ir­tækið að sjálf­sögðu axla,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Einari Val Krist­jáns­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. „Fyr­ir­tækið biður hlut­að­eig­andi jafn­framt ein­læg­lega afsök­unar á þessum mis­tökum.“

Einar Valur segir það aldrei hafa verið ætlun útgerðar eða skip­stjóra að stefna heilsu og lífi áhafnar skips­ins í hættu og „fyr­ir­tæk­inu þykir þung­bært að sitja undir ásök­unum um að ekki sé hugað nógu vel að heilsu og öryggi starfs­manna“.

[adspot]

Í yfir­lýs­ingu Einars segir enn­fremur að nú sé verk­efnið „að styðja við þá áhafn­ar­með­limi sem glíma við veik­indi og byggja upp á ný það traust sem hefur glat­ast á milli áhafnar og fyr­ir­tæk­is­ins vegna atviks­ins“.

[links]Meiri­hluti áhafnar Júlíusar Geir­munds­sonar reynd­ist með COVID-19 þegar sýni úr skip­verjum voru loks tekin í byrjun vik­unnar. Skip­verjarnir hafa greint frá því að þeir hafi ítrekað beðið um að kom­ast í sýna­töku, að þeir hafi verið látnir vinna veikir eða sendir í ein­angrun inn í klefa sína. Þá hafi verkja­lyf verið af svo skornum skammti um borð að for­gangs­raða þurfti hverjir gætu fengið þau. Þá hafa þeir sagt frá því að þeim hafi verið bannað að ræða veik­indi sín við aðra en fjöl­skyldur sínar. Það hafi verið ítrekað þegar á leið.

Fyrst fór að bera á veik­indum meðal áhafn­ar­innar á öðrum degi veiði­ferð­ar­innar sem átti eftir að standa í þrjár vikur. Ungur háseti á skip­inu sagði í við­tali við RÚV í gær að hann hefði verið lát­inn vinna veikur og sömu­leiðis fleiri menn, m.a. einn sá harð­asti sem hann þekki. Sá hafi að end­ingu ekki getað meir. „Hegðun HG í þessum kór­ónu­vírusskandal núna er í nákvæmu sam­ræmi við hegðun fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart starfs­mönnum hvað varðar öryggi og heilsu starfs­manna í for­tíð­inni,“ segir háset­inn við RÚV. Spurður hvort hann ótt­ist að missa stöðu sína á skip­inu svarar hann: „Tjáning mín á mál­inu er óend­an­lega verð­mæt­ari en starf mitt þarna um borð.“

Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga sagði í yfir­lýs­ingu á föstu­dags­kvöld að sumir skip­verj­anna hefðu verið alvar­lega veikir, með háan hita og glímt við önd­un­ar­erf­ið­leika. Ástandið um borð hefði verið skelfi­legt. Í sam­tali við Kjarnann í kjöl­far yfir­lýs­ing­ar­innar sagði vara­for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins að farið yrði yfir málið með lög­mönnum félags­ins til að meta hugs­an­legan skaða sem skip­verjarnir urðu fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár