Háskólamenntaðir starfsmenn Stjórnarráðsins hnýta í Lilju

Stjórn Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins furðar sig á því að Lilja Alfreðs­dóttir hafi farið þá leið að stefna starfs­manni stjórn­ar­ráðs­ins per­sónu­lega til að reyna að fá úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála hnekkt.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins (FHSS) lýsir yfir furðu sinni vegna þeirrar ákvörð­unar Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að stefna Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir dóm til þess að freista þess að hnekkja nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála um að ráð­herra hafi brotið jafn­rétt­islög við skipun í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra.[links]

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu á vef FHSS í dag, en greint var frá því að Lilja hefði stefnt Hafdísi til að reyna að fá úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála hnekkt seint í júní. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í byrjun júní að Lilja hefði brotið gegn jafn­rétt­islögum er hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Lilja sagð­ist hafa tekið þá ákvörðun að stefna Hafdísi á grund­velli lög­fræði­á­lita sem ráðu­neyti hennar afl­aði vegna máls­ins. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur neitað að gera þau opin­ber.

„Engin dæmi eru um að ráð­herra hafi höfðað mál per­sónu­lega gegn starfs­manni rík­is­ins sem hefur ekk­ert sér til saka unnið annað en að sækja um starf sem hann fékk ekki og kært þá nið­ur­stöðu eins og heim­ilt er lögum sam­kvæmt. Slíkri máls­höfðun fylgir gríð­ar­legur kostn­aður svo ekki sé talað um hversu íþyngj­andi það er fyrir félags­mann­inn að þurfa að standa í slíkum mála­ferlum næstu miss­erin,“ segir í yfir­lýs­ingu stjórnar FHSS.

Starfsmaðurinn í fordæmalausri stöðu gagnvart ráðherra

Þar er einnig sagt „óskilj­an­legt“ að ráð­herra hafi ákveðið að stefna Hafdísi per­sónu­lega fyrir dóm, þar laga­breyt­inga­til­laga liggi nú þegar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem kemur í veg fyrir að félags­manni einum verði stefnt fyrir dóm, en sú laga­breyt­ing­ar­til­laga var lögð fram í sumar, eftir að málið kom upp.

„Fyrr­greind máls­höfðun getur haft það í för með sér að umsækj­endur veigri sér við að sækja lögvar­inn rétt sinn. Auk þess að setja félags­mann­inn í for­dæma­lausa stöðu gagn­vart ráð­herra er hætt við að stefnan muni fæla hæfa umsækj­endur frá því að sækja um störf hjá rík­inu,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntamálaráðherra

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár