Fólk megi ekki missi þakið ofan af sér – og verði að geta búið til ný tækifæri

Þing­maður Pírata telur að fram­kvæma þurfi „tvær mjög ein­faldar aðgerðir“ sem leggi lín­urnar til fram­tíðar. Hann segir að rík­is­sjóður sé nú að hella ofan í ástands­holu.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að tvennt þurfi nauð­syn­lega að ger­ast sem fyrst vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Í fyrsta lagi fjallar hann um öryggi heim­il­anna. „Það þarf að koma í veg fyrir nauð­ung­ar­sölur á meðan versta ástandið gengur yfir. Eftir það ætti hið opin­bera að nýta sér for­kaups­rétt á nauð­ung­ar­sölum til þess að taka yfir hús­næð­is­lán og ger­ast lán­veit­andi í ein­hvern tíma þangað til end­ur­fjár­mögnun hús­næðis fæst frá annarri lána­stofnun,“ skrifar hann.

Til við­bótar við þetta þurfi skýrar aðgerðir fyrir leigj­endur og leigu­mark­að­inn. Þó sé ekki ólík­legt að leigu­mark­að­ur­inn „lag­færi sjálfan sig eitt­hvað á næstu mán­uðum út af fækkun skamm­tíma­leigu“. Þó þurfi að fylgj­ast vel með á þeim vett­vangi.

Þarf að hugsa til næstu mánaða

Í öðru lagi telur þing­mað­ur­inn að hugsa þurfi strax hvað ger­ist næst. „Í augna­blik­inu er rík­is­sjóður að hella ofan í ástands­hol­una. Bless­un­ar­lega var hlustað á ábend­ingar stjórn­ar­and­stöð­unnar um aukn­ingar í nýsköpun þar sem tæki­færi fram­tíð­ar­innar munu koma til með að verða til. Það þarf hins vegar líka að hugsa um allra næstu mán­uði. Það væri til dæmis hægt að leggja til upp­bygg­ingar út um allt land á aðstöðu eins og Blá­bank­inn á Þingeyri er með. Aðstöðu fyrir staf­rænar smiðjur og vett­vang fyrir nýsköp­un­ar­sam­vinnu almenna og opin­bera mark­að­ar­ins. Nokkurs konar PPP (pri­vate, public partners­hip) nýsköp­un­ar­hrað­all þar sem allir sem eru á atvinnu­leys­is­bótum geta komið og fengið tæki­færi til þess að vinna að ein­hverjum verk­efnum, sínum eigin eða ann­arra, án þess að missa bæt­urnar (þrátt fyrir að ein­hverjar tekjur fengjust út úr þeim verk­efnum sem þar myndu skap­ast).“

Hann segir að frá­bært væri að fá fólk til þess að koma saman og leggja lín­urnar til fram­tíðar fyrir hvert nær­sam­fé­lag fyrir sig. Til þess þurfi vett­vang sem eðli­legt sé að hið opin­bera útvegi á ein­hvern hátt.

„Þetta eru tvær mjög ein­faldar aðgerðir sem leggja lín­urnar til fram­tíðar. Að fólk missi ekki þakið ofan af sér og fær vett­vang til þess að búa til ný tæki­færi,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár