Einkennalausir þurfa ekki að fara í einangrun

Miklar aflétt­ingar á sótt­varna­að­gerðum hafa verið gerðar í Suður-Afríku enda talið að um 60-80 pró­sent íbú­anna hafi fengið COVID-19. Enn er of snemmt að svara því hvort ómíkrón muni marka enda­lok far­ald­urs kór­ónu­veirunnar.

16,6 miljónir Suður-Afríkubúa eru fullbólusettir eða um 28 prósent landsmanna.
16,6 milj­ónir Suður-Afr­íku­búa eru full­bólu­settir eða um 28 pró­sent lands­manna. Mynd: EPA

Frá og með deg­inum í dag verður allt skóla­hald í Suður-Afríku án tak­mark­ana í fyrsta sinn frá því að far­ald­ur­inn braust út fyrir tveimur árum. Rík­is­stjórnin hefur einnig ákveðið að fólk sem grein­ist með veiruna en er ein­kenna­laust þurfi ekki að sæta ein­angrun. Þá hefur ein­angrun þeirra sem finna ein­hver ein­kenni verið stytt úr tíu dögum í sjö.

Síðustu miss­eri hefur skóla­hald verið skert með ýmsum hætti í land­inu og nem­endur á öllum skóla­stigum ekki fengið fullan skóla­dag- eða viku eða þurft að vera í fjar­námi. Því tíma­bili er nú lokið.

„Grunn­skólar, fram­halds­skólar og sér­skólar verða aftur í dag­legu stað­námi,“ segir í yfir­lýs­ingu frá rík­is­stjórn­inni. „Reglan um eins metra fjar­lægð milli nem­enda verður einnig afnumin.“

[adspot]

Rík­is­stjórn Suður-Afríku hélt auka­fund í gær þar sem ákvarð­anir um miklar aflétt­ingar í sam­fé­lag­inu voru teknar. Fund­ur­inn var hald­inn í kjöl­far sam­ráðs við sér­staka nefnd sem hefur haft við­brögð við far­aldr­inum á sinni könnu. Nokkrar rann­sóknir sem gerðar hafa verið und­an­farið á útbreiðslu far­ald­urs­ins í land­inu benda allar til að um 60-80 pró­sent Suður-Afr­íku­manna hafi fengið COVID-19 og ónæmi því orðið mjög útbreitt.

Við­bún­aður í land­inu vegna far­ald­urs­ins er því komið á lægsta stig.

Meira en 3,6 millj­ónir Suður-Afr­íku­manna hafa greinst með veiruna og yfir 9.000 hafa lát­ist. Ómíkron afbrigðið, sem er ráð­andi í heim­inum í dag, upp­götv­að­ist fyrst í Suður-Afríku og nágranna­rík­inu Botsvana í lok nóv­em­ber.

Heilabrot vegna undirafbrigðis

Und­ir­af­brigði ómíkron sem nú hefur greinst í mörgum löndum og hefur fengið ein­kenn­is­staf­ina BA.2, er enn að valda vís­inda­mönnum heila­brotum. Í sumum ríkjum virð­ist það orðið ráð­andi afbrigði en í öðrum alls ekki – og skýr­ingin á því er enn á huldu. Ísra­elskir vís­inda­menn tóku t.d. eftir því að stór hluti Nepala sem komið hefur til Ísrael síð­ustu daga hefur greinst með einmitt þetta und­ir­af­brigði. Heil­brigð­is­ráðu­neytið í land­inu segir í yfir­lýs­ingu að vitað sé að BA.2 sé enn meira smit­andi en ómíkron en að sama skapi valdi það ekki alvar­legri ein­kennum.

Und­ir­af­brigðið hefur, að sögn ísra­el­skra vís­inda­manna, haft þau áhrif að ekki hefur hægt jafn mikið á ómíkron-bylgj­unni í Evrópu og virt­ist vera að eiga sér stað. Í Danmörku við­ist afbrigðið vera að valda nýrri smit­bylgju en eins og fyrr segir þá fylgir henni ekki aukn­ing í alvar­legum veik­indum.

Anthony Fauci, sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum og helsti ráð­gjafi banda­rískra stjórn­valda í far­aldr­inum, sagði í við­tali í síð­ustu viku að enn væri ekki hægt að full­yrða að ómíkron-bylgjan yrðu enda­lok far­ald­urs­ins. „Svarið er ekki enn komið á hreint og ég held að við verðum að vera hrein­skilin hvað það varðar.“

Hann sagði að þegar veiru­af­brigði á borð við ómíkron kæmi til sög­unnar, afbrigði sem væri mjög smit­andi en ekki eins hættu­legt og þau fyrri, þá væri vissu­lega hægt að vona að far­ald­ur­inn væri að líða undir lok. „En það verður aðeins til­fellið ef við fáum ekki annað afbrigði sem kemst fram­hjá þeim vörnum lík­am­ans sem fyrri afbrigði hafa vakið.“

Hann segir það „heppni“ að ómíkron hefði komið fram á sjón­ar­sviðið miðað við alvar­legri eig­in­leika fyrri afbrigða. Hins vegar sé ekki á þessu stigi hægt að full­yrða að ómíkron verði til þess að útbreitt hjarð­ó­næmi við nýju kór­ónu­veirunni náist – allt standi það og falli með því hvort að annað afbrigði komi fram og hverjir eig­in­leikar þess verða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár