Kári: Engar áætlanir uppi um að búa til söluvöru úr skimuninni

Kári Stef­áns­son segir að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi laðað fram það besta í harðsvír­uðu kap­ít­alist­unum sem stjórni lyfja­iðn­að­inum. Þátttaka Íslenskrar erfða­grein­ingar og Amgen í skimun á Íslandi snú­ist ekki um fjár­hags­legan ávinn­ing.

Kári Stefánsson er forstjóri og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son er for­stjóri og stofn­andi Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Lögreglan

„Það bjó ekk­ert annað að baki þeirri skimun sem ÍE fram­kvæmdi eftir SARS-CoV-2 í Íslend­ingum en löngun til þess að taka þátt í að hemja far­ald­ur­inn. Það sama á við um skimun­ina eftir mótefnum gegn veirunni. ÍE og eig­andi hennar Amgen hafa aldrei haft uppi áætl­anir um að búa til úr þess­ari vinnu sölu­vöru til þess hafa af fjár­hags­legan ávinn­ing.“

Þetta segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, í stöðu­upp­færslu sem hann ritar á Facebook í dag. Þar segir Kári að þegar hann hafi haft sam­band við stjórn­endur banda­ríska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Amgen, sem á Íslenska erfða­grein­ingu, og sagt þeim að hann vildi hefja skimun fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum á Íslandi þá hafi þeir svarað: „Í guð­anna bænum gerðu það og bjóddu stjórn­völdum alla þá hjálp sem þú getur veitt.“

Í færsl­unni segir Kári að far­ald­ur­inn hafi laðað fram það besta í fólki eins og þeim harðsvír­uðu kap­ít­alistum sem stjórna lyfja­iðn­að­inum. „Stærstu lyfja­fyr­ir­tæki heims hafa heitið því að gera sitt besta til þess að búa til eins fljótt og hægt er bólu­efni gegn veirunni og lyf til þess að lækna COVID-19 og dreifa þessu um allan heim án þess að græða á því fé. Þetta er ein­stakt og fal­legt og svona á heim­ur­inn að vera.“

[adspot]Þótt Kári segi að engir fjár­hags­legir hvatar hafi búið að baki þátt­töku Íslenskrar erfða­grein­ingar í skimun­inni þá hafi starfs­fólk hans fengið mikið út því að taka þátt í henni. „Við erum upp­götv­anafíklar og nýr sjúk­dómur sem ekk­ert er vitað um er hval­reki fyrir þá fíkn. Þetta var dópið beint í æð. Sem sagt við skimuðum ekki af góð­mennsku eða fórn­fýsi heldur til þess að hlúa að því sam­fé­lagi sem við búum og þannig að okkur sjálfum og síðan gerðum við það líka til þess að kom­ast í þá vímu sem við lifum fyrir.“

Senda reikning fyrir efnis- og launakostnaði

Kjarninn greindi frá því 29. maí síð­ast­lið­inn að Íslensk erfða­grein­ing hefði ekki fengið greitt frá íslenska rík­inu vegna skimunar fyrir kór­ónu­veiru, en það stað­festi heil­brigð­is­ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Áætlaður kostn­aður Íslenskrar erfða­grein­ingar vegna skimun­ar­innar hefur verið um 1,2 millj­arðar króna á mán­uði. Upp­safn­aður kostn­aður frá því að skimun fyr­ir­tæk­is­ins hófst 13. mars og út maí­mán­uði er því áætl­aður um þrír millj­arðar króna.

[links]Auk þess hefur Íslensk erfða­grein­ing aðkomu að skimunum fyrir COVID-19 á landamæra­stöðvum, nú þegar opnað hefur verið fyrir auknu flæði far­þega inn til lands­ins. Kjarninn greindi frá því í gær að stjórn­völd hefðu ekki gert nýjan skrif­legan samn­ing við Íslenska erfða­grein­ingu vegna aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að þeim skimunum, heldur fer útfærsla á skimunum fram sam­kvæmt munn­legu sam­komu­lagi Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis við fyr­ir­tækið og fyrri skrif­legum samn­ingum sem höfðu verið gerðir um aðkomu ÍE að skimunum fyrir COVID-19 hér inn­an­lands.

„Gert er ráð fyrir því að ÍE muni senda reikn­ing fyrir efn­is­kostn­aði og launa­kostn­að­i,“ segir í svari sótt­varna­læknis við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, þar sem óskað var eftir skrif­legum samn­ingi að aðkomu Íslenskrar erfða­grein­ingar að skimunum ferða­fólks, ef slíkur hefði verið gerð­ur, eða öllum upp­lýs­ingum sem fram­reið­an­legar væru um munn­legt sam­komu­lag sem hefði verið gert um sama efni.

Kári hafði áður sagt að hann reikn­aði með því að sá kostn­aður sem fyr­ir­tækið tæki á sig vegna aðkomu sinnar að landamæra­skimunum yrði greiddur af rík­inu. Fyr­ir­tækið sér um að skima þau sýni sem tekin eru á Kefla­vík­ur­flug­velli, sem hafa verið hátt í þús­und á dag und­an­farna daga.

Leita að veiru og eyða svo sýnum

Sótt­varna­læknir sagði í svari sínu við fyr­ir­spurn­ Kjarnans að aðkoma Íslenskrar erfða­grein­ingar að grein­ingum á sýnum byggi á vinnslu­samn­ingi sótt­varna­læknis við Land­spít­al­ann frá árinu 2015 ann­ars vegar og hins vegar á vinnslu­samn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins við við sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans frá 12. mars síð­ast­liðn­um.

Hann bætir við að þessir vinnslu­samn­ingar byggi á sótt­varna­lögum, per­sónu­vernd­ar­lögum og reglum Per­sónu­verndar um öryggi per­sónu­upp­lýs­inga. Þá sé kveðið á um það í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra að ein­ungis megi rann­saka sýni sem aflað er með skimun á landamæra­stöðvum með til­liti til kór­ónu­veirunnar og þeim skuli eytt að því búnu.

Íslenskri erfða­grein­ingu ekki veitt neitt sér­leyfi

Í svar­inu sagði einnig að stjórn­völd hafi ekki heitið Íslenskri erfða­grein­ingu neinum sér­kjörum, sér­leyfi eða sér­stökum aðgangi að gögnum sem safn­ast við skimun­ina, heldur séu gögnin á for­ræði sótt­varna­læknis sam­kvæmt sótt­varna­lögum og öllum aðgengi­leg til rann­sókna, sam­kvæmt verk­lags­reglum emb­ættis land­lækn­is.

Íslensk erfða­grein­ing hafi þó sam­hliða vinnu við skimanir fyrir COVID-19 ákveðið að stunda rann­sókn­ar­vinnu á sjúk­dómnum og hefði sótt um til­skilin leyfi til þar til bærra aðila vegna þeirra vinnu.

Fyr­ir­spurnin sem Kjarn­inn kom til sótt­varna­læknis var sam­hljóða fyr­ir­spurn Hauks Más Helga­sonar blaða­manns og rit­höf­unds, sem hann sendi á for­sæt­is­ráðu­neytið 8. júní, og sneri að aðkomu Íslenskrar erfða­grein­ingar að fram­kvæmd landamæra­skim­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár