Útgáfufélag DV og tengdra miðla tapaði yfir 600 milljónum á 28 mánuðum

Frjáls fjöl­miðlun tap­aði 21,5 milljón króna á mán­uði frá því að félagið keypti DV og tengda miðla og fram að síð­ustu ára­mótum. Fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­magn­aði tap­rekst­ur­inn með vaxta­lausu láni.

Frjáls fjöl­miðlun ehf., útgáfu­fé­lag DV og tengdra miðla, tap­aði 317,6 millj­ónum króna í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi. Alls tap­aði félagið 601,2 millj­ónum króna frá því að það keypti fjöl­miðl­anna haustið 2017 og fram að síð­ustu ára­mótum, eða 21,5 millj­ónum króna að með­al­tali á mán­uði.

Það var fjár­magnað með vaxta­lausu láni frá Novator, fjár­fest­inga­fé­lagi sem er að mestu í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Inn­borgað hlutafé á árinu 2019 var 120 millj­ónir króna en það hafði verið 190 millj­ónir króna árið áður. Alls nam hlutafé í félag­inu 340,5 millj­ónum króna sem þýðir að um 900 millj­ónir króna hafa runnið inn í rekst­ur­inn í formi hluta­fjár og vaxta­lausra lána.

Frjálsri fjöl­miðlun var svo rennt inn í Torg ehf., útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, 1. apríl síð­ast­lið­inn. Skömmu síðar var aðkoma Novator að fjár­mögnun félags­ins opin­beruð.

[adspot]Eigin fé frjálsrar fjöl­miðl­unar var nei­kvætt um 261 milljón króna í lok síð­asta árs. Tapið 2019 sam­an­stóð að mestu ann­ars vegar af rekstr­ar­tapi upp á 129 millj­ónir króna og hins vegar af virð­is­rýrnun óefn­is­legra eigna um 152 millj­ónir króna, en þar var aðal­lega um að ræða rýrnun á virði útgáfu­rétt­inda um 140 millj­ónir króna.

Í árs­reikn­ingnum segir að mikil óvissa sé um far­ald­urs vegna COVID-19 veirunnar á rekstr­ar­um­hverfi, efna­hags­líf og fjár­mála­mark­aði hér­lendis og um heim allan. „Ekki er hægt að sjá fyrir eða leggja mat á hver áhrif far­ald­urs­ins muni verða á starf­semi félags­ins en að mati stjórnar og fram­kvæmd­ar­stjóra hafa ekki komið fram vís­bend­ingar við und­ir­ritun árs­reikn­ings­ins þess efnis að vafi kunni að leika á rekstr­ar­hæfi félags­ins.“

Leynd yfir fjármögnun

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­­­­semi í sept­­­­em­ber 2017. Félagið keypti þá fjöl­mið­l­a Pressu­­­­­­sam­­­­­­stæð­unn­­­­­­ar: DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjón­­­­­­varps­­­­­­stöð­ina ÍNN. ÍNN var síðar sett í þrot.

Skráður eig­andi að öllu hlutafé í Frjálsri fjöl­miðlun var félagið Dals­dalur ehf. og eig­andi þess er skráður lög­­­­­mað­­­ur­inn Sig­­­urður G. Guð­jóns­­­son.

Á fyrstu fjórum mán­uðum starf­­­sem­innar tap­aði félagið 43,6 millj­­­ónum króna. Á árinu 2018 jókst tapið umtals­vert og var um 240 millj­­­ónir króna. Sam­tals tap­aði fjöl­miðla­­­sam­­­stæðan því 283,6 millj­­­ónum króna á 16 mán­uð­u­m. Við það bæt­ist 317,6 millj­óna króna tap í fyrra sem þýðir að á 28 mán­uðum tap­aði Frjáls fjöl­miðlun 601,2 millj­ónum króna.

Sam­­­kvæmt árs­­­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðlar skuld­aði sam­­­stæðan 657 millj­­­ónir króna í lok árs 2019. Þar af voru lang­­­tíma­skuldir 560 millj­­­ónir króna við eig­and­ann, Dals­­­dal. Þegar þær skuldir eru lagðar saman við inn­borgað hlutafé, sem var 340,5 millj­ónir króna alls, er ljóst að um 900 millj­ónir króna hafa runnið inn í rekst­ur­inn frá Dalsdal.

Eina eign Dals­dals er Frjáls fjöl­miðlun og skuld þess við félag­ið. Aldrei var greint frá því hver það væru sem fjár­­­­­magn­aði Dals­­­dal í árs­­­reikn­ingn­­um né í til­kynn­ingum til fjöl­miðla­nefnd­ar.

Novator opinberað

15. maí 2020 greindi Kjarninn frá því að Novator ehf., félag sem er að stærstu leyti í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar, hefði fjár­magn­að mik­inn tap­rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­un­ar frá eig­enda­skiptum árið 2017 og hefði þar með verið helsti bak­hjarl fjöl­mið­ils­ins. Það gerði Novator með því að lána eig­enda útgáfu­fé­lags fjöl­miðl­anna að minnsta kosti 745 millj­ónir króna vaxta­laust.

Það kom fram í samn­ingum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið fékk afhent þegar það fjall­aði um sam­runa Frjálsrar fjöl­miðl­unar og Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, sem til­kynnt var um í des­em­ber 2019 og gekk form­lega í gegn 1. apríl 2020 með afhend­ingu eigna og rétt­inda.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði óskað eftir umsögnum frá sam­keppn­is­að­ilum fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna tveggja. Í áliti eft­ir­lits­ins sagði að þrír umsagn­ar­að­ilar hafi tjáð sig um sam­run­ann og töldu fyr­ir­hug­aðan sam­runa ekki koma til með að hafa telj­andi áhrif á sam­keppni á þeim mörk­uðum sem um væri að ræða. „Einn af þeim óskaði þó eftir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti það sem skil­yrði fyrir sam­run­anum að upp­lýst yrði um raun­veru­lega eig­endur Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Leyndin yfir því hver raun­veru­legur eig­andi þess sé valdi öðrum fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum miklum skaða og bjagi mark­aðs­stöðu óhjá­kvæmi­lega.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað að taka til­lit til þessa og krafð­ist þess að upp­lýst yrði hver það væri sem fjár­magn­aði rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Hvorki Novator né Björgólfur Thor voru nokkru sinni skráðir á meðal eig­enda Frjálsrar fjöl­miðl­un­ar.

Sam­ein­ast Torgi og mynduðu risa

Á fimmt­u­­­dags­­­kvöldið 13. des­em­ber 2019 greindi Kjarn­inn frá því að Torg, útgáfu­­­fé­lag Frétta­­­blaðs­ins, væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­mið­l­un.

[links]Útgáfu­­­fé­lögin stað­­­festu svo kaupin dag­inn eft­­­ir en í árs­reikn­ingnum segir að kaupin hafi verið sam­þykkt 6. des­em­ber 2019. Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­­ar­um­hverfi, en Frjáls fjöl­miðlun hefur verið rekin með miklu lausu tapi frá því að félagið var stofnað til að kaupa DV og tengdra miðla árið 2017.

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum er Torg, sem tók líka yfir sjón­varps­stöð­ina Hring­braut og tengda miðla í fyrra, orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki lands­ins.

Torg tap­aði 212 millj­ónum króna á síð­asta ári eftir að hafa skilað 39 millj­óna króna hagn­aði árið 2018. Stærsti eig­andi Torgs er Helgi Magn­ús­son fjár­festir, sem á 82 pró­sent í sam­stæð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár