Nánast allir sem flytja til Íslands umfram brottflutta eru útlendingar

Íbúum Íslands fjölg­aði um 1.760 á öðrum árs­fjórð­ungi 2016 og eru nú 336.060. 400 fleiri fædd­ust en dóu og 1.490 ein­stak­lingar fluttu til lands­ins umfram brott­flutta. Af þeim voru 150, eða tíu pró­sent, með íslenskt rík­is­fang en 1.330 voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2016 fluttu 40 fleiri Íslend­ingar til lands­ins umfram þá sem fluttu frá því. Á sama tíma­bili fluttu 2.440 fleiri erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins en yfir­gáfu það, sem þýðir að 98,3 pró­sent aðfluttra umfram brott­fluttra eru útlend­ingar. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Þar segir einnig að heild­ar­fjöldi aðfluttra til lands­ins frá apr­íl­byrjun til júníloka hafi verið 2.590. Alls fluttu 720 Íslend­ingar heim á árs­fjórð­ungnum en á sama tíma fluttu hingað 1.870 erlendir rík­is­borg­arar. Því voru 72 pró­sent þeirra sem fluttu hingað á tíma­bil­inu erlendir rík­is­borg­arar. Alls eru útlend­ingar á Íslandi nú 28.880 tals­ins, eða 8,6 pró­sent mann­fjöld­ans.

Flestir aðfluttir rík­is­borg­arar á árs­fjórð­ungnum komu frá Póllandi, en þaðan fluttu 740 manns á umræddum þremur mán­uðum. Flestir Íslend­ing­arnir sem snéru heim komu frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, eða sam­tals 500 af þeim 720 sem það gerðu.

Tólf þúsund störf hurfu en 16.300 urðu til

Fjölgun erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis er í rök­réttu sam­hengi við fjölgun starfa, enda atvinnu­leysi á Íslandi ein­ungis 2,3 pró­sent, sem er tölu­vert frá því 4 pró­senta jafn­væg­isat­vinnu­leysi sem þjóð­hags­líkan Seðla­banka Íslands miðar við. Atvinnu­leysið hefur ekki mælst minna frá því fyrir banka­hrun. Því er ljóst að mik­ill skortur er á vinnu­afli hér­lendis.

Fyrir þau tólf þús­und störf sem töp­uð­ust á árunum 2008 til 2010 á Íslandi hafa orðið til 16.300 ný í stað­inn. Á árinu 2015 einu saman fjölg­aði störfum um sex þús­und. Bróð­ur­partur allra nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi eftir banka­hrun er til­kom­inn vegna ferða­þjón­ustu og þau störf virð­ast ekki mæta nema að hluta til vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör. Þess vegna virð­ist fjölgun starfa að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli á sama tíma og fleiri Íslend­ingar flytja af landi brott en til lands­ins.

Störfum mun fjölga, en ekki fyrir Íslendinga

Í nýlegri grein­ingu Arion banka á vinnu­mark­aðnum

þá og nú

er bent á að þrátt fyrir þennan skort sem mynd­ast hefur á vinnu­mark­aði þá flytja Íslend­ingar frekar úr landi, og því velt fyrir sér hvað valdi. Eitt sem spili þar inn í er aukin menntun vinnu­afls, en hlut­fall háskóla­mennt­aðra á meðal starf­andi ein­stak­linga hefur auk­ist úr 11 pró­sentum í tæp 34 pró­sent frá árinu 1991 til loka síð­asta árs.

Í grein­ing­unni seg­ir: „Á síð­asta ári voru brott­fluttir Íslend­ingar umfram aðflutta 1.265. Fjölgun starfa virð­ist því að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli en á sama tíma voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta 2.716. Auð­vitað eru marg­vís­legar ástæður fyrir því að fólk flytur búferlum til lengri eða skemmri tíma og það er óneit­an­lega jákvæð þróun að fólk hafi tæki­færi til að freista gæf­unnar í öðru landi. Þessi þróun gefur til kynna að sú sköpun starfa sem orðið hefur síð­ustu ár sé enn sem komið er aðeins að hluta til að mæta vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör.“

Nið­ur­staða grein­ing­ar­deildar Arion banka er sú að flest bendi til þess að störfum muni halda áfram að fjölga mikið á næstu miss­er­um. Á sama tíma sækja sífellt fleiri Íslend­ingar sér fram­halds- og háskóla­mennt­unar og því sé spurn­ingin sem þjóðin standi frammi fyrir sú hvort mennt­unin sem Íslend­ingar eru að sækja sér falli að vinnu­mark­að­inum og umhverfi atvinnu­sköp­unar „eða hvort texti Spil­verks­ins muni eiga við: „Hér vantar tólin og tækin og réttu vanda­mál­in.“ Spenn­andi verður að fylgj­ast með fram­vind­unni á vinnu­mark­aði, hvort að ferða­þjón­ustan haldi áfram að vera leið­andi í sköpun nýrra atvinnu­tæki­færa eða hvort aðrar atvinnu­greinar taki við kefl­inu, og hvernig fyllt verður upp í hinar nýju stöð­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár