Stjörnuhrap

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er næst stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu. Þrátt fyrir að eiga ekki aðild að núver­andi rík­is­stjórn hefur flokk­ur­inn ráðið mjög miklu um stjórn­ar­stefn­una. En nú, þegar stutt er til kosn­inga, hrynur fylgið af flokknum.

Kristian Thulesen Dahl, formaðurd DF
Kristian Thulesen Dahl, for­mað­urd DF Mynd: EPA

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er næst stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu. Þrátt fyrir að eiga ekki aðild að núver­andi rík­is­stjórn hefur flokk­ur­inn ráðið mjög miklu um stjórn­ar­stefn­una. En nú, þegar stutt er til kosn­inga, hrynur fylgið af flokknum.

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn (DF) varð til haustið 1995. Stofn­end­urnir voru fyrr­ver­andi félagar í Fram­fara­flokknum, flokki Mogens Glistrup, þar á meðal Pia Kjærs­gaard og Kristian Thulesen Dahl. Fram­fara­flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1972 og fékk í þing­kosn­ingum ári síðar 28 þing­menn. Stofn­and­inn og flokks­for­mað­ur­inn Mogens Glistrup hafði vakið mikla athygli vegna skoð­ana sinna og yfir­lýs­inga, einkum um skatta­mál. Hann hafði meðal ann­ars kallað þá sem sviku undan skatti frels­is­hetjur og nefndi í því sam­bandi heims­styrj­öld­ina síð­ari. Mörgum lík­aði vel mál­flutn­ingur Mogen Glistrup um lægri, eða jafn­vel enga, skatta en aðrir köll­uðu hann lýð­skrumara. Á ýmsu gekk í flokknum, for­mað­ur­inn sat um tíma í fang­elsi vegna skattsvika og á meðan gegndi Pia Kjærs­gaard for­mennsku í Fram­fara­flokknum. Innri átök og óein­ing urðu til þess að flokk­ur­inn lið­að­ist nán­ast í sundur og verður sú saga ekki rakin hér en eins og áður sagði stofn­uðu nokkrir félagar úr Fram­fara­flokknum Danska þjóð­ar­flokk­inn.

Á þingi frá 1998

DF bauð í fyrsta skipti fram til þings árið 1998 og fékk þá 7.4% atkvæða og 13 þing­menn kjörna. Fylgið hefur vaxið nær stöðugt síðan og í þing­kosn­ing­unum sum­arið 2015 fékk flokk­ur­inn 21% atkvæða og 37 þing­menn. Aðeins flokkur Sós­í­alde­mókrata hefur fleiri þing­menn (46) en sam­tals eru þing­menn á danska þing­inu 179.

Pia Kjærs­gaard var fyrsti for­maður flokks­ins og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2012, sam­tals sautján ár. Þá tók við núver­andi for­maður, Kristian Thulesen Dahl. Vel­gengni flokks­ins í þing­kosn­ing­unum 2015 tengdu margir per­sónu for­manns­ins. Þótt hann væri síður en svo nýgræð­ingur í póli­tík (hefur setið á þingi frá árinu 1994) fylgdi honum að margra mati ferskur blær sem skil­aði sér í auknu fylgi flokks­ins.

Stefnumál og kjósendahópur

Stefnu­mál DF hafa einkum snúið að sjálf­stæði Dan­merkur, verndun menn­ing­ar­arfs­ins, stuðn­ingi við þjóð­kirkj­una, og kon­ungs­veldið ásamt því að vilja öfl­ugt vel­ferð­ar­kerfi, og harðar refs­ingar við lög­brotum. Síðast en ekki síst hefur flokk­ur­inn fylgt mjög ein­dreg­inni stefnu varð­andi inn­flytj­endur sem ein­fald­lega gengur út á að tak­marka fjölda þeirra sem allra mest og sömu­leiðis er flokk­ur­inn mjög andsnú­inn fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lögum. Þjóð­rembu­flokkur segja sumir. Í ræðu og riti hafa þing­menn flokks­ins ekki lagt mikla áherslu á efna­hags­mál en nefna gjarna í slíkum umræðum öfl­ugt atvinnu­líf.

Fylgi flokks­ins er mest á lands­byggð­inni, einkum Suður-Jótlandi, hann hefur aldrei haft mikið fylgi í Kaup­manna­höfn né öðrum borgum. Kannanir hafa sýnt að kjós­enda­hóp­ur­inn hefur einkum verið eldra fólk með lágar tekjur og tak­mark­aða menntun.

Danskir stjórn­mála­skýrendur telja flokk­inn gjarna hægri­s­inn­aðan miðju­flokk sem leggi áherslu á þjóð­leg gildi.

Aftursætisbílstjórinn

Rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen er minni­hluta­stjórn þriggja flokka (hefur 53 þing­menn) og verður því algjör­lega að reiða sig á stuðn­ing DF til að koma málum gegnum þingið. Vegna sterkrar stöðu sinnar á danska þing­inu hefur DF þannig haft mikil áhrif á stjórn lands­mála. Svo mikil að flokks­for­mað­ur­inn Kristian Thulesen Dahl er stundum kall­aður aft­ur­sæt­is­bíl­stjór­inn í rík­is­stjórn­ar­rút­unni.

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur aldrei átt aðild að rík­is­stjórn en stutt rík­is­stjórnir sem til­heyra mið og hægri flokkum á danska þing­inu, bláu blokk­inni svo­nefndu.

Eftir kosn­ing­arnar 2015, þar sem stjórn Helle Thorning-Schmidt féll bjugg­ust margir við að DF tæki sæti í rík­is­stjórn undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen en for­ystu­menn flokks­ins sögðu þá að þeir teldu stöðu flokks­ins sterk­ari utan stjórnar. Venstre, flokkur Lars Løkke Rasmus­sen, tap­aði fylgi í kosn­ing­unum en stuðn­ingur DF tryggði honum stjórn­ar­taumana. Sem dæmi um mik­il­vægi DF er rétt að nefna að Pia Kjærs­gaard, fyrr­ver­andi for­maður DF, var kjör­inn for­maður (for­seti) þings­ins eftir síð­ustu kosn­ingar

Daður við kratana

Í stjórn­málum er ekki hægt að ganga að neinu gefnu. Stundum er sagt að í póli­tík­inni gangi allir með rýt­ing­inn í erminni, svo sé bara spurn­ing hvenær rétti tím­inn sé til að beita honum. Kristian Thulesen Dahl, sem hefur lengst af hallað sér til hægri, í átt­ina að Venstre (sem er meira til hægri en vinstri þrátt fyrir nafnið) hefur frá því fljót­lega eftir síð­ustu kosn­ingar haft uppi það sem stjórn­mála­skýrendur kalla daður við sós­í­alde­mókratana. Ekki sé bein­línis hægt að tala um að for­maður DF hafi verið að stíga í væng­inn við Mette Frederik­sen, for­mann kratanna, en gefið ýmis­legt í skyn. ,,Þú veist síma­núm­erið hjá mér Mette“ sagði Kristian Thulesen Dahl á árs­fundi DF í fyrra. Að mati stjórn­mála­skýrenda þýddi það að DF gæti hugs­an­lega stutt kratana undir stjórn Mette Frederik­sen. Fyrir ein­ungis örfáum mán­uðum sagði Kristian Thulesen Dahl líka að flokkur sinn, DF, væri til­bú­inn að setj­ast í rík­is­stjórn, með hægri flokk­unum, undir stjórn Lars Løkke Rasmus­sen eftir næstu kosn­ingar. En skjótt skip­ast veður í lofti.

Fylgi DF hrynur

DF hefur frá stofnun nán­ast óslitið stækkað og eflst. En nú hefur það skyndi­lega breyst. Á örfáum mán­uðum hefur fylgi DF dalað og það svo um munar. Samkvæmt könn­unum, þegar þrír mán­uðir eru til kosn­inga, hefur þriðji hver kjós­andi sem studdi DF við síð­ustu kosn­ingar snúið bakið við flokknum. Verði það nið­ur­staða kosn­ing­anna tapar DF þrettán þing­mönnum. Ef svo færi yrði DF ekki lengur í þeirri stöðu að geta valið hvort flokk­ur­inn halli sér til hægri, að Lars Løkke Rasmus­sen eða til vinstri, í átt­ina að Mette Frederik­sen.

Hvað veldur og hvert fara kjósendurnir?

Samkvæmt könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins Epinion virð­ist hluti þeirra sem síð­ast kusu DF, og hyggst ekki gera það næst, ætla að kjósa sós­í­alde­mókratana undir stjórn Mette Frederik­sen. En fleira kemur til. Frá síð­ustu þing­kosn­ingum í Danmörku eru komnir tveir nýir flokkar fram á sjón­ar­sviðið Ann­ars­vegar er um að ræða Nye Borgerlige, NB og hins vegar Klaus Riskær Pedersen, sem stofnað hefur flokk í eigin nafni. Hann kallar sig athafna­mann, og hefur marga fjör­una sopið. Sat um tíma á Evr­ópu­þing­inu fyrir Venstre, hefur sömu­leiðis í tvígang setið í fang­elsi vegna fjársvika svo eitt­hvað sé nefnt. Hann hefur safnað nægi­lega mörgum með­mæl­endum til að bjóða sig fram til þings en kann­anir sýna tak­markað fylgi enn sem komið er. Kannanir sýna að fylgj­endur Klaus Riskjær Pedersen koma einkum frá Venstre flokknum.

Nye Borgerlige, NB, var stofn­aður árið 2015. Leiðtogi flokks­ins er Pernille Vermund fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Hels­ingør fyrir Íhalds­flokk­inn. NB hyggst bjóða fram í öllum kjör­dæmum við næstu kosn­ingar, kann­anir sýna að flokk­ur­inn er í kringum tveggja pró­senta þrösk­uld­inn, sem er skil­yrði þess að fá þing­menn kjörna. Flokk­ur­inn skil­greinir sig þjóð­ern­is­flokk sem vill að Danmörk segi skilið við ESB. Flokk­ur­inn vill ekki að Danmörk taki við flótta­fólki og að erlendum afbrota­mönnum í Danmörku verði vísað úr landi.

Upp á síðkastið hefur farið að örla á óánægju meðal stuðn­ings­manna DF. For­mað­ur­inn sagður alltof lítið áber­andi og ekki nógu afger­andi. Þetta er nokkuð sem ekki hefur áður heyrst og stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Berl­ingske nefndi að með til­komu NB flokks Pernille Vermund væri kannski kom­inn fram val­kostur sem, að minnst kosti sumum, sem fylgt hafa DF þyki fýsi­legur. Það kemur heim og saman við kann­anir sem sýna að tals­verður hluti þeirra sem hyggj­ast kjósa NB kusu DF í kosn­ing­unum árið 2015.

Kappræður í Aabenraa

Síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld fóru fram kapp­ræður í Aabenraa á Suður-Jótlandi. Kapp­ræður þessar vöktu mikla athygli en þar mætt­ust þau Kristian Thulesen Dahl for­maður DF og Pernille Vermund for­maður NB. Þau tók­ust hart á en stjórn­mála­skýrendur voru sam­mála um að bæði hefðu staðið sig ágæt­lega og að vissu leyti væri komin upp ný og spenn­andi staða í dönskum stjórn­málum. Staða sem Kristian Thulesen Dahl og DF hafi ekki kynnst fyrr en nú. DF hefur til þessa verið sá flokkur sem fylgt hefur hvað ströng­ustu lín­unni varð­andi inn­flytj­endur en hefur upp á síðkastið mýkst (orða­lag blaða­manns Politi­ken) og færst nær Sós­í­alde­mókrötum. Hvort það verður til að flokkur Pernille Vermund, NB, dragi til sín þá sem áður kusu DF er ókomið í ljós og margt getur breyst fram að kosn­ingum. Blaða­maður dag­blaðs­ins Politi­ken, sem fylgd­ist með kapp­ræð­unum í Aabenraa sagði að fram til þessa hefði Kristian Thulesen Dahl verið skærasta stjarnan á danska þjóð­ern­is­himn­inum en nú skini sú stjarna ekki jafn skært. Þar hefði átt sér stað stjörnu­hrap.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár