Óhæfir til hermennsku

Á síð­asta ári reynd­ust rúm­lega fimm­tíu pró­sent þeirra pilta sem kall­aðir voru til grunn­þjálf­un­ar­prófs í danska hernum óhæfir. Lang­flestir vegna margs konar geð­rænna vanda­mála.

Danskir hermenn
Danskir her­menn Mynd: EPA

Á árinu sem danskir piltar verða átján ára fá þeir bréf frá Danska hernum. Þar er þeim gert skylt að mæta til­tek­inn dag (for­svar­ets dag) þar sem hver og einn und­ir­gengst eins konar próf. Það sam­anstendur af við­tölum, prófi í almennri þekk­ingu og dönsku, athugun á lík­am­legu atgervi ásamt sjón og heyrn. Þeir sem upp­fylla kröf­urnar telj­ast hæfir til að geta tekið þátt í byrj­enda­þjálfun hers­ins, ekki eig­in­legri her­mennsku í orðs­ins fyllstu merk­ingu.

Af þessum hópi er ein­ungis hluti kvaddur til starfa. Hverjir „lenda“ í því er ákveðið með því sem Danir kalla tombólu­að­ferð­ina, ein­fald­lega með því að draga miða úr hatti. Hér verður ekki fjallað nánar um þá hæfu og her­mennsku­þjálfun­ina. Rétt er að bæta því við að stúlkur fá ekki „kvaðn­ingu“ eins og pilt­arnir en geta hins vegar óskað eftir að taka prófið og ef þær stand­ast það geta þær tekið þátt í byrj­enda­þjálfun hers­ins og síðar meir gegnt her­mennsku á sama hátt og piltar.

Herskyldan á sér langa sögu

Á næsta ári verða liðin 150 ár síðan her­skylda var inn­leidd í Danmörku og þá var „tombólu­fyr­ir­komu­lagið“ tekið upp. Þetta fyr­ir­komu­lag, að skylda unga menn til að þjóna föð­ur­land­inu með þessum hætti hefur alla tíð verið umdeilt. Her­skyldan hefur hins­vegar breyst mikið gegnum tíð­ina, árið 1969 var skyldu­tíma­bilið 18 mán­uðir, og þá voru 24.400 sem sinntu her­skyld­unni en í dag er tíma­bilið 4 mán­uðir og þeir sem sinna skyld­unni þessa 4 mán­uði á ári hverju eru nú 4200. Á síð­asta ári voru stúlkur 17% þeirra sem sinntu skyld­unni. Her­skyldan hefur alla tíð verið umdeild en fátt bendir til að hún verði afnumin.

Þeim óhæfu fjölgar hratt

Eins og getið var um í upp­hafi fjölgar þeim ört sem ekki telj­ast hæfir til að takast á hendur byrj­enda­þjálfun í hernum. Fyrir til­tölu­lega fáum árum var yfir­þyngd algeng­asta ástæða þess að piltar töld­ust ekki hæfir ásamt sjón­depru og heyrn­ar­leysi. Þannig er það ekki í dag. Nú eru and­legir kvillar algeng­asta orsök þess að piltar er úrskurð­aðir óhæfir til her­þjálf­unar. Þessi hópur hefur á und­an­förnum 20 árum stækkað en lang mest á allra síð­ustu árum og er nú þriðj­ungur þeirra sem ekki geta fengið inn­göngu í byrj­un­ar­þjálfun hers­ins.

Hefur verið falið vandamál

Svend Aage Madsen pró­fessor við Rík­is­spít­al­ann í Kaup­manna­höfn segir þessa aukn­ingu and­legra kvilla hjá ungum körlum bæði alvar­legt og umhugs­un­ar­vert. Þetta sé hins­vegar að veru­legu leyti falið vanda­mál, og seg­ist fagna því að þessi mál séu komin fram í dags­ljósið, þau hafi allt til þessa verið hálf­gerð feimn­is­mál. Nýleg rann­sókn sem pró­fess­or­inn gerði, ásamt sam­starfs­fólki sínu, sýnir að and­leg van­líðan er eitt­hvað sem karl­menn, ungir sem eldri, forð­ast í lengstu lög að tala um. Kollegar og jafn­vel bestu vinir vita ekk­ert um ástandið. Þeir sem spurðir voru sögðu að þeir myndu segja vinum og kol­legum frá því ef skipta ætti um auga­stein, fara í ristil­speglun eða lið­skipta­að­gerð, en að þeim líði illa and­lega minn­ist þeir ekki á. Andleg van­líðan sé ein­fald­lega tabú.

Þegar spurt var hvers vegna svör­uðu margir því til að sumir segðu „er þetta ekki bara þreyta“ eða „þú hristir þetta af þér maður“. Hefðu sem­sagt engan skiln­ing á ástand­inu og sumir töl­uðu jafn­vel um aum­ingja­skap. „Maður reynir bara að halda grímunni“ sagði einn þátt­tak­enda í rann­sókn­inni. Þar kom einnig fram að jafn­vel þótt farið sé til læknis eiga karlar erfitt með að tala um líðan sína. Sumir sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn ræddi við sögðu að tím­inn hjá lækn­inum væri svo naumt skammt­aður að þeir kom­ist aldrei að kjarna máls­ins. Sumir lækn­anna sem hóp­ur­inn ræddi við tóku undir að margir karlar ættu mjög erfitt með að tala um líðan sína, þegar á hólm­inn væri komið.

Hver er ástæðan?

Svend Aage Madsen pró­fessor segir að mjög erfitt sé að fá afdrátt­ar­lausar skýr­ingar á mik­illi fjölgun þeirra sem glíma við and­lega erf­ið­leika. Þar komi eflaust fleira en eitt til. Í við­tali við danska útvarpið, DR, nefnir hann nokkrar hugs­an­legar skýr­ingar. Kröfur til ungs fólks fara sífellt vax­andi, það eiga allir að skara fram úr en helst ekki skera sig úr fjöld­anum. Allir eiga að mennta sig, sem pró­fess­or­inn segir af hinu góða, en það við­horf, sem er ríkj­andi, að allir eigi að fara í mennta­skóla, eftir að grunn­skóla lýkur segir hann ekki æski­legt. Það þyki fínna að fara í mennta­skóla en í verk­nám þótt það henti ekki öllum. Þess vegna fari margir í mennta­skól­ann, kom­ist svo að því að það henti hreint ekki og gef­ast upp. Þessir nem­endur fyllist van­mátt­ar­kennd, finn­ist þeir mis­heppn­aðir. Vita svo í fram­hald­inu lítt eða ekki hvað þeir eigi að taka sér fyrir hendur. Bara þetta eina atriði, segir pró­fess­or­inn, getur haft mjög mikil áhrif á ein­stak­ling­inn og leitt til alls konar and­legra erf­ið­leika, sem fara vax­andi sé ekki brugð­ist við. ,,Þegar þessir ein­stak­lingar leita sér ekki aðstoðar er ekki von á góðu.“ Pró­fessor Svend Aage Madsen ræddi einnig í við­tal­inu stór­aukna notkun fíkni­efna, sem iðu­lega leiddi til per­sónu­leika­breyt­inga.

Reiði, einangrun og aukin drykkja

Þegar frétta­maður DR spurði pró­fess­or­inn hvort hægt væri að nefna ákveðin atriði sem bentu til að hætta væri á ferðum, t.d. breytta hegðun nefndi hann nokkur atriði.

Í fyrsta lagi bæri iðu­lega á reiði út í allt og alla, allt væri ómögu­legt og stóru orðin ekki spöruð.

Í öðru lagi breytt hegðun og fram­koma, til dæmis á vinnu­stað. Sá sem ekki vill sitja með félög­unum í matar- eða kaffi­tímum, vill helst ekki tala við neinn á vinnu­staðnum en heldur sig út af fyrir sig.

Í þriðja lagi nefndi pró­fess­or­inn aukna áfeng­is­neyslu. Margir standa í þeirri trú að áfengi bæti sál­ar­á­standið og líð­an­ina. Áfengi er engin lausn sagði Svend Aage Madsen.

Hann sagði að iðu­lega forð­að­ist fólk að spyrja hvort eitt­hvað væri að, ef það tæki eftir ein­hverjum breyt­ingum, til dæmis þeim sem nefnd voru hér að ofan. Það væri hins­vegar alrangt, þótt við­kom­andi bregð­ist kannski illa við ætti sá sem spyr ekki að gef­ast upp, heldur halda áfram og þannig fá umræð­una í gang. Þetta væri mjög mik­il­vægt.

Í við­tal­inu við DR sagð­ist pró­fess­or­inn von­ast til að sú umræða sem nú er komin í gang varð­andi þessi mál yrði til þess að opna augu allra, bæði sér­fræð­inga og almenn­ings fyrir þessum geð­ræna vanda hjá ungum karl­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár