Barnabarn Jóns Baldvins: „Það verður ekki þagað lengur“

Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko, barna­barn Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, segir ráð­herr­ann fyrr­ver­andi hafa mis­notað völd sín. „Mamma mín þurfti að sitja undir þeim stimpli að vera geð­veik til margra ára.“

„Hve margar konur þurfa að stíga fram til þess að þeim sé trúað?“ spyr Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko í færslu á Facebook. Ástæða skrif­anna er meint kyn­ferð­is­leg áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, sem er faðir Aldísar Schram, móður Tatjönu.

„Hve margar konur þurfa að stíga fram til þess að fjöl­miðla­menn hætti að hylma yfir með Jóni Baldvini Hanni­bals­syni?“ skrifar Aldís. „Hve margar konur þurfa að stíga fram til þess að Rík­is­sjón­varp- og útvarpið (þrátt fyrir mót­mæli starfs­fólks þar), Harma­geddon, Silfrið meðal ann­ars, hætti að upp­hefja Jón Baldvin, þrátt fyrir að kyn­ferð­is­brot hans hafi verið opin­ber­lega afhjúpuð árið 2012? Þið eruð þátt­tak­endur í þöggun og þið ættuð að skamm­ast ykkar.“

Í Stund­inni lýsa fjórar konur kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Jóns Baldvins, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra. Umfjöll­un­ina í heild má lesa í tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í gær.

Í sam­tali við Stundina sagði Jón Baldvin frá­sagnir kvenn­anna eiga rætur að rekja til dóttur sinnar og kallar málið „fjöl­skyldu­harm­leik“. „Aldís dóttir mín hefur spunnið þær sögur og það er þyngra en tárum taki. Ég hef svarað því áður og end­ur­tek það ekki.“

Aðspurður hvað þetta hafi með fram­burð kvenn­anna fjög­urra að gera, sagði Jón Baldvin að því megi velta fyrir sér. „Kynntu þér stöðu Aldísar dóttur minnar, hún hefur átt við geð­ræn vanda­mál að stríða all­lengi. Ég hélt að það væri að lag­ast, hef engar áreið­an­legar heim­ildir fyrir því svo sem.“

Vildi ekki heita Bryndís lengur í höfuðið á ömmu sinni

Tatjana Dís segir Jón Baldvin hafa mis­notað völd sín til að afskrifa Aldísi sem geð­veika. Aldís hefur síðan 1992 verið nauð­ung­ar­vi­stuð sex sinnum á geð­deild, sem hún segir alltaf hafa verið fyrir til­stilli föður síns.

„Mamma mín þurfti að sitja undir þeim stimpli að vera geð­veik til margra ára.“

„Mamma mín þurfti að sitja undir þeim stimpli að vera geð­veik til margra ára. Og öll fjöl­skyldan lék með í leik­rit­inu,“ skrifar Tatjana Dís. „Að hún sé þrátt fyrir allt ein heil­steyptasta mann­eskja sem ég þekki, eftir þá með­ferð sem hún fékk frá sinni eigin fjöl­skyldu og und­ir­lægjum þeirra í land­inu, er í raun ótrú­legt.“

Tatjana Dís greinir einnig frá því að árið 2012, þegar hún var 16 ára gömul, hafi hún sagt Jóni Baldvini og Bryndísi Schram, eig­in­konu hans, í tölvu­pósti að hún vildi ekki lengur heita Bryndís í höf­uðið á ömmu sinni. „Hljóðaði svarið frá þeim svo að ég ætti ekki að láta þennan fjöl­skyldu­harm­leik (geð­veiki lyga­sjúkrar móður minnar - ekki kyn­ferð­is­of­beldi afa míns) ganga í þriðja ætt­lið. Svo mikil var og er firr­ingin,“ skrifar hún.

Tatjana Dís skrifar að sá tími sem tek­inn hafi verið frá þeim mæðgum verði ekki end­ur­heimtur. „Tíminn sem hefur farið í van­líðan, reiði, skömm og sorg allra þeirra kvenna sem urðu fyrir barð­inu á honum, verður ekki end­ur­heimtur. Sárin munu aldrei full­gróa. En það verður ekki þagað lengur.“

Sjá færsl­una á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár