Fornleifafræðingur sækir um að reisa nýbyggingu í Grindavík

Grind­vískur forn­leifa­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í nátt­úru svæð­is­ins stefnir á að reisa sér hús í útjaðri Grinda­víkur. Hann segir Grinda­vík vera „fram­tíð­ar­land Íslands“. „Grinda­vík rís upp úr eld­inum og skapar sína eigin sögu og þannig verður fram­haldið.“

Nýbygging í Grindavík
Nýbygg­ing í Grinda­vík Græni flöt­ur­inn er í óskiptu landi Þór­kötlu­staða í Grinda­vík. Þar hefur Ómar Smári auga­stað á að reisa sér lítið hús með útsýni til allra átta. Nákvæm stað­setn­ing á hvar Ómar hyggst byggja er ekki vituð.

„Ég er fæddur þarna og upp­al­inn. Ég hef trú á þessu svæði,“ sagði Ómar Smári Ármanns­son, Grind­vík­ingur og forn­leifa­fræð­ingur í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar. Hann hefur ákveðið að sækja um að byggja sér hús í Grinda­vík, nánar til­tekið í Þór­kötlu­staða­hverfi.

„Við höfum í gegnum tíð­ina lifað með þess­ari ógn og þess­ari áhættu sem boðið hefur verið upp á,“ segir Ómar um Grinda­vík. Bendir hann á að ef lands­lagið er skoðað má sjá hvernig fyrri eld­gos hafa mótað landið. „Þetta sem hefur verið að birt­ast núna á sein­ustu tímum er bara það svartasta sem að við áttum von á, en fram­tíðin er björt.“ 

Ómar þekkir vel sögu Grinda­víkur og fjallar um sögu þess á vefnum Ferlir, þar sem hann fer ítar­lega yfir hvern þann krók og kima sem má finna á Grinda­víkur svæð­inu. 

Vill byggja lítið hús í Grindavík

Ómar Smári Ármanns­son

Ómar stefnir á að sækja um lóð í óskiptu landi Þór­kötlu­staða. Hann hefur velt þeirri pæl­ingu upp síð­ustu tíu árin en stefnir á að koma henni í fram­kvæmd ef umsókn hans um nýbygg­ingu verður sam­þykkt. „Ég ætla að byggja þarna lítið hús. 80 fer­metra ef ég fæ leyfi. Njóta umhverf­is­ins og útsýn­is­ins til allra átta. Ég get dundað þar við skriftir og rann­sóknir og þess háttar. Það er allt fram undan í þessum efnum, það á eftir að skrá ýmsa staði.“ 

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár