Tólf manns á gjörgæslu vegna COVID-19 sýkingar

Áttatíu og fimm ný smit COVID-19 greindust hér á landi í gær og er heild­ar­fjöldi stað­festra smita því orð­inn 1.220. 236 manns hafa jafnað sig af sjúk­dómnum.

Frá COVID-19 göngudeildinni á Landspítala. Alls eru ríflega 40 manns á spítala vegna sýkingar, þar af tólf á gjörgæsludeild.
Frá COVID-19 göngu­deild­inni á Land­spít­ala. Alls eru ríf­lega 40 manns á spít­ala vegna sýk­ingar, þar af tólf á gjör­gæslu­deild. Mynd: Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.220 hér á landi. Í gær voru þau 1.135 og hefur þeim því fjölgað um 85 á einum sól­ar­hring.

Í dag eru 7.822 ein­stak­ling­ar í sótt­kví og hefur þeim fækkað umtals­vert frá því í gær er fjöld­inn var 8.879. Rúm­lega 7.700 manns hafa nú lokið sótt­kví.

Nú liggur 41 ­sjúk­lingur á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af tólf á gjör­gæslu, ­sam­kvæmt því sem fram kemur á síð­unni covid.­is. Ellefu eru á gjör­gæslu í Reykja­vík og einn á Akureyri.

Alls hafa 236 hafi náð sér af sjúk­dómnum til þessa, en af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tvö látin.

Alls 19.516 ­sýni verið greind hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Í gær­dag voru 797 sýn­i ­greind hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 815 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans.

Hlut­fall smit­aðra sem greinst hafa á meðan þeir eru í sótt­kví er 54%. Þetta hef­ur ­sótt­varna­læknir sagt sýna nauð­syn sótt­kvíar sem úrræðis til að hemja útbreiðslu far­ald­urs­ins.

Búist við mestu álagi fyrir miðjan mánuð

Í spálík­an­i ­vís­inda­manna við Háskóla Íslands sem síð­ast var upp­fært í fyrra­dag, kemur fram að á með­an far­ald­ur­inn gangi yfir muni rúm­lega 1.700 manns á Íslandi grein­ast með­ COVID-19 sjúk­dóm­inn, en talan gæti náð nær 2.800 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er í nýj­ustu spánni gert ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan ­sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku þessa mán­aðar og verði senni­lega um 1.200 manns, en ­gæti viku seinna náð 1.800 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár