Svandís bíður með reglugerðarbreytingar sem banna aukagjöld sérfræðilækna

Reglu­gerð um end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna sem starfa án samn­ings við SÍ hefur verið fram­lengd um einn mánuð. Heil­brigð­is­ráð­herra fer því ekki fram með boð­aðar breyt­ingar á reglu­gerð­inni að sinni.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja um einn mánuð reglu­gerð um end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna sem starfa án samn­ings við Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Hún frestar því þar með, að minnsta kosti um einn mánuð, að gera breyt­ingar á reglu­gerð­inni sem félög lækna hafa lagst ein­dregið gegn, en sam­kvæmt til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í dag mun reglu­gerðin nú gilda út maí­mánuð í óbreyttri mynd.

Boðaðar reglu­gerð­ar­breyt­ingar voru kynntar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrr í þessum mán­uði og þangað bár­ust harð­orðar umsagnir frá aðilum á borð við Lækna­fé­lag Íslands, Félag almennra lækna og einnig Lækna­fé­lagi Reykja­víkur (LR).

Reglu­gerð­ar­breyt­ing­arnar sem Svandís hafði lagt fram til sam­ráðs fólu meðal ann­ars í sér að læknar sem inn­heimta auka­gjöld frá sjúk­lingum sínum við Sjúkra­trygg­ingar Íslands gætu ekki lengur boðið upp á rík­is­nið­ur­greidda heil­brigð­is­þjón­ustu og virð­ast hafa verið ákveðið inn­legg í deilur um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag varð­andi kaup Sjúkra­trygg­inga á þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna.

Samn­inga­við­ræður standa þessa dag­ana yfir á milli sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna og Sjúkra­trygg­inga Íslands og hafa yfir­lýs­ingar flogið á milli aðila í fjöl­miðlum. Sumir gagn­rýnendur heil­brigð­is­ráð­herra hafa haldið því fram að verið sé að taka skref í átt að því að gera heil­brigð­is­kerfið tvö­falt.

Ekkert sé „jafn fjarri lagi“

[links]Heil­brigð­is­ráð­herra heldur því hins vegar fram að ekk­ert sé jafn fjarri lagi og að verið sé að taka skref í þá átt að skapa tvö­falt heil­brigð­is­kerfi hér á landi. Þetta kom fram í grein Svan­dísar sem birt­ist í Kjarn­anum í gær.

Þar sagði ráð­herra að sam­kvæmt heil­brigð­is­stefnu til 2030, sem sam­þykkt var mót­at­kvæða­laust á þingi árið 2019, væri ljóst að ekki væri raun­hæft að semja við Lækna­fé­lag Reykja­víkur á sömu for­sendum og áður hefur verið gert. Í heil­brigð­is­stefn­unni væri lögð áhersla á að heil­brigð­is­þjón­usta sé veitt af þeim sem geti boðið upp á heild­stæða þjón­ustu með teym­is­vinnu starfs­stétta.

Sagði LR vilja að læknar geti ákveðið gjaldtöku einhliða

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði enn­fremur í grein sinni að margir sér­greina­læknar hefðu tekið upp á því að láta sjúk­linga greiða umtals­vert auka­gjald og að látið hafi verið að því liggja að því megi auð­veld­lega koma í lag með því að ríkið semdi við LR á þeim sömu nótum.

„Með þessu vill LR raun­veru­lega meina að það sé á valdi lækna að ákveða ein­hliða um gjald­töku fyrir þjón­ust­una. Augljóst er að slík nálgun getur ekki gengið,“ skrif­aði Svandís.

Beinir tilmælum til sérgreinalækna

Í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins um að búið sé að fram­lengja reglu­gerð­ina í óbreyttri mynd segir að auka­gjöldin sem sér­greina­læknar hafi lagt ofan á þjón­ustu sína standi „því kerfi fyrir þrifum sem sett hefur verið upp af hinu opin­bera með hags­muni sjúk­linga að leið­ar­ljósi.“

[adspot]

„Heil­brigð­is­ráð­herra beinir þeim til­mælum til sér­greina­lækna sem hyggj­ast hafa milli­göngu um end­ur­greiðslur sjúkra­trygg­inga á hlut sjúk­linga sinna að þeir starfi í sam­ræmi við greiðslu­þátt­töku­kerfið sem tryggir sjúk­lingum sann­gjarna greiðslu­þátt­töku,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Draga muni úr þörf fyrir þjónustu stofulækna

Í grein Svan­dísar í Kjarn­anum í gær kom fram að þjón­usta sér­greina­lækna á einka­reknum stofum væri mik­il­vægur þáttur í heil­brigð­is­kerf­inu, en væri þó ein­ungis 6-7 pró­sent af heil­brigð­is­þjón­ust­unni. Og að það hlut­fall myndi enn lækka.

„Með auknu aðgengi að heilsu­gæslu og auk­inni dag- og göngu­deild­ar­starf­semi sjúkra­húsa mun draga úr þörf fyrir þjón­ustu stofulækna. Ungir læknar í dag kjósa í vax­andi mæli að starfa með öðrum fag­stéttum í teym­is­vinnu. Mark­miðið með núver­andi heil­brigð­is­stefnu er að þetta verði orðið að veru­leika í síð­asta lagi árið 2030. Hlutverk mitt er að fylgja mark­aðri stefnu, heil­brigð­is­stefnu, og það geri ég og mun gera áfram,“ rit­aði Svandís.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins í dag segir að heil­brigð­is­ráð­herra árétti að brýnt sé að samn­ingar náist um þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár