Skeljungur endurgreiðir hlutabótagreiðslurnar

Skelj­ungur, sem greiddi hlut­höfum sínum mörg hund­ruð millj­ónir króna í arð á sama tíma og fyr­ir­tækið setti starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina, hefur við­ur­kennt að það hafi ekki verið rétt að nýta hluta­bóta­úr­ræðið.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs.
Árni Pétur Jónsson, for­stjóri Skelj­ungs. Mynd: Aðsend

Skelj­ungur, sem setti hluta af starfs­mönnum sínum á hina svoköll­uðu hluta­bóta­leið þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hefði greitt hlut­höfum sínum 600 milljón króna arð­greiðslu sex dögum áður, hefur ákveðið að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun kostnað vegna þeirra starfs­manna sem fengu hluta­bóta­greiðslur í apríl.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­stjóra Skelj­ungs, Árna Pétur Jónssyni, í dag. Þar segir enn fremur að „að athug­uðu máli telur Skelj­ungur að ekki hafi verið rétt að nýta úrræðið.“

[adspot]Skelj­ungur ætlar einnig að bjóða starfs­mönnum sínum sem settir voru á hluta­bóta­leið­ina 100 pró­sent vinnu frá og með 1. maí. Í til­kynn­ing­unni segir að „allir starfs­menn Skelj­ungs hafa nú verið færðir í 100 pró­sent vinnu­hlut­fall og munu því ekki sækja frek­ari bætur til Vinnu­mála­stofn­unar.“

Fleiri fyr­ir­tæki hafa annað hvort greitt arð eða keypt eigin bréf, og þannig skilað fjár­munum úr rekstri til hlut­hafa, en samt sem áður sóst eftir úrræðum stjórn­valda. Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Hagar hefðu keypt eigin bréf fyrir 450 millj­ónir króna frá því í lok febr­úar og Össur nýtti hluta­bóta­leið­ina skömmu eftir að hafa greitt eig­endum sínum 1,2 millj­arða í arð.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við frétta­stofu RÚV í dag að það hefði að sjálf­sögðu ekki verið ætl­unin „að stöndug fyr­ir­tæki væru að nýta sér þetta neyð­ar­úr­ræði til að greiða niður laun sinna starfs­manna.“

Hún boð­aði að leið­inni yrði breytt til að koma í veg fyrir þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár