Haturshópum fjölgar í Bandaríkjunum

Virk hat­urs­sam­tök í Banda­ríkj­unum urðu fleiri en nokkru sinni fyrr árið 2018. Nú eru þau 1020 tals­ins.

Mótmælendur eftir skotárásirnar í Pittsburgh í Pennsylvaníu í október síðastliðinum.
Mót­mæl­endur eftir skotárás­irnar í Pitts­burgh í Penn­syl­vaníu í októ­ber síð­ast­lið­inum. Mynd: EPA

Hat­urs­hópum fjölg­aði í Banda­rík­unum á síð­asta ári sam­an­borðið við árið áður en þeir fóru úr 954 í 1020. Þetta er fjórða árið í röð sem hat­urs­hópum fjölgar en 30 pró­sent aukn­ing fylgdi í kjöl­far kosn­inga­bar­áttu og for­seta­tíð Donalds Trump eftir að talan hafði lækkað í þrjú ár í röð í lok stjórn­ar­tíðar Baracks Obama. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sam­tak­anna the Southern Poverty Law Center.

Sams konar aukn­ing varð á sama tíma­bili í ofbeldi af völdum kyn­þátta­for­dóma og gyð­inga­hat­urs. Tölfræði alrík­is­lög­regl­unnar FBI sýnir að hat­urs­glæpum fjölg­aði um 30 pró­sent á þriggja ára tíma­bili, frá 2014 til 2017.

Alrík­is­lög­reglan skil­greinir hat­urs­glæp sem glæp gegn ein­stak­lingi eða eignum sem er að fullu eða að hluta til vegna for­dóma brota­manns gegn öðrum kyn­þáttum, trú­ar­brögðum, fötlun, kyn­hneigð, þjóð­erni, kyni eða kyn­vit­und.

Hatrið hefur tætt samfélagið

„Tölurnar segja okkur svo ekki verður um villst að þessi for­seti er ekki aðeins þrætu­epli í sam­fé­lag­inu heldur rót­tækni­valdur,“ segir Heidi Beirich, for­maður rann­sókn­ar­verk­efnateymis sam­tak­anna the Southern Poverty Law Center. „Í stað þess að reyna að vinna gegn hatri, eins og aðrir for­setar úr báðum flokkum hafa gert, ýfir Trump for­seti það upp, bæði með orð­ræðu sinni og stefnu­málum. Með því hefur hann gefið fólki víðs vegar í Banda­ríkj­unum grænt ljós til að láta undan verstu hvötum sínum.“

„Hatur hefur tætt sam­fé­lag okkar í sundur,“ segir for­seti SPLC, Richard Cohen. „Til að binda það aftur saman munu allir kimar sam­fé­lags okkar þurfa að leggja sitt af mörkum – fjöl­skyldur okkar, skólar, trú­ar­sam­tök, félaga­sam­tök og fyr­ir­tæki. Fyrst og fremst verður for­ysta nauð­syn­leg – stjórn­mála­leg for­ysta – sem hvetur þjóð okkar til að standa undir æðstu hug­sjónum sínum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár