Seðlabankastjóri vill að ríkið sé alltaf tilbúið að ráðast í nokkrar stórframkvæmdir

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í dag að hann gæti gagn­rýnt stjórn­völd fyrir of litla áherslu á fjár­fest­ingu í far­aldr­inum. Hann stingur upp á því að ríkið verði alltaf klárt að keyra 4-5 stór verk­efni af stað.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á opnum fundi með efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í dag að ef hann ætti að gagn­rýna aðgerðir stjórn­valda í rík­is­fjár­málum væri það fyrir of litla áherslu á fjár­fest­ingar og aðgerðir til að auka lang­tíma­hag­vöxt.

„Það eru kannski skýr­ingar á því, það er erfitt að koma með ein­hverjar fjár­fest­ingar og draga þær upp úr erminni bara sisvona, en almennt séð ætti ríkið að hafa tvenns konar hlut­verk í að bregð­ast við far­aldr­inum; dreifa áfall­inu á alla og stuðla að auk­inni nýliðun,“ sagði Ásgeir á fund­inum.

Seðla­banka­stjór­inn sagð­ist enn­fremur á fund­inum ekki skilja af hverju ríkið væri ekki á hverjum tíma­punkti til­búið með kannski 4-5 stór verk­efni sem hægt væri að keyra hratt af stað ef það kæmi nið­ur­sveifla í hag­kerf­inu með til­heyr­andi atvinnu­leysi.

„Ég á erfitt með að skilja það núna af hverju við vorum ekki reiðu­búin að keyra ein­hverjar inn­viða­fjár­fest­ingar af stað, því það er svo miklu ódýr­ara fyrir rík­is­sjóð að fara í fram­kvæmdir á þeim tíma þegar það er atvinnu­leysi og það er hægt að fá hag­stæð til­boð í útboðum frá verk­tökum [...] Ég held að það sé eitt­hvað sem við þurfum að hugsa í fram­hald­inu, sér­stak­lega þegar við erum að reiða okkur á til­tölu­lega fáar greinar í útflutn­ingi,“ sagði Ásgeir og nefndi að jafn­vel væri hægt að setja upp ein­hvers konar hóp, „task force,“ til þess að hafa verk­efni klár þegar kreppti að.

Hann kom ásamt Gunnari Jak­obs­syni vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika á fund þing­nefnd­ar­innar í dag til þess að ræða nýlega skýrslu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar til þings­ins. Á full­trúum Seðla­bank­ans var að merkja að ástæða væri til bjart­sýni, þrátt fyrir að staða mála yrði áfram háð óvissu á meðan heims­far­ald­ur­inn geis­aði enn.

Gunnar lýsti því að nýskipuð fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans hefði fengið „raun­hæft verk­efni“ upp í hend­urnar þegar heims­far­ald­ur­inn skall á í fyrra, en nefndin hóf störf í upp­hafi mars 2020. Ráðgert hafði verið að nefndin kæmi saman til funda fjórum sinnum á ári, en nefndin var þegar búin að funda fjórum sinnum áður en apríl 2020 var á enda.

Fasteignamarkaðurinn einn helsti áhættuþátturinn

Einn stærsti áhættu­þátt­ur­inn varð­andi stöðu mála hér á landi er fast­eigna­mark­að­ur­inn, sagði Ásgeir á fund­inum og nefndi hann að þró­un­ar­vinna biði Seðla­bank­ans varð­andi tæki bank­ans til að hafa hemil á fast­eigna­verði. Gunnar sagði einnig að það þyrfti að fylgj­ast náið með fast­eigna­mark­aðnum, þrátt fyrir að það væri ekki mat bank­ans að það væri ein­hver bólu­myndun hafin þar. Kjarninn fjall­aði nýlega um mat fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd­ar­innar á horfum og stöðu á fast­eigna­mark­aði.

„Fast­eigna­mark­að­ur­inn er almennt séð fall af launum,“ sagði Gunnar og bætti við að það væri eðli­legt að fast­eigna­mark­að­ur­inn færi upp eins og hann hefði gert und­an­farna mán­uði þar sem greiðslu­geta og kaup­máttur fólks í land­inu hefði auk­ist. Einnig spil­aði þarna inn í að þegar vextir væru lækk­aðir eins og gert hefur verið fái „fast­eignir meira gildi sem fjár­fest­ingar fyrir þá sem eru að bera þær saman við aðrar fjár­fest­ingar.“

Hækkun á fast­eigna­verði á síð­asta ári væri ekki áhyggju­efni enn sem komið er. Það væri þó alltaf hætta á að því að geti mynd­ast bólur og sagði Gunnar Seðla­bank­ann til­bú­inn að beita þeim tækjum sem hann hefði til að bregð­ast við bólu­myndun, ef hún verður.

Einnig væri verð­bólga áhyggju­efni. Mikið hefði verið um verð­hækk­anir á heims­vísu og minnt­ist Gunnar á að timbur hefði hækkað um 200 pró­sent á und­an­förnum mán­uðum og flutn­ings­gjöld í alþjóða­við­skiptum hefðu stór­auk­ist þar sem flutn­ingagámar hefðu ekki verið á réttum stöðum auk þess sem ótrú­legur fjöldi flutn­inga­skipa hefði verið settur í nið­ur­brot á síð­asta ári þar sem búist hefði verið við mun harð­ari kreppu en raunin varð.

Léleg gögn

Léleg sam­tíma­gögn um það sem er í gangi í íslenska hag­kerf­inu voru til umræðu á fund­inum og fagn­aði Ásgeir spurn­ingu nefnd­ar­manns­ins Björns Levís Gunn­ars­sonar um hvort ekki þyrfti að eiga betri gögn um ýmis mál um stað­reyndir í hag­kerf­inu, til dæmis fast­eigna­mark­að­inn og íbúðir í bygg­ingu.

Vissu­lega þyrfti betri gögn, sögðu banka­stjór­arnir báðir, og bættu við að Seðla­bank­inn væri að vinna í því að útvega sér betri gögn. Gunnar nefndi sem dæmi að reglu­lega væri það deilu­mál hér á landi hvort sveit­ar­fé­lög væru að bjóða fram nægi­lega margar lóðir undir íbúðir.

„Við ættum að vita þetta, hvort það er nægt fram­boð af lóðum eða ekki, þetta ætti ekki að vera eitt­hvað deilu­efni,“ sagði Gunnar.

Tókst að verja stöðugleikann

Heilt yfir, sagði Gunnar á fund­inum, tókst að verja stöð­ug­leik­ann hér á landi á síð­asta ári með aðgerðum Seðla­bank­ans og stjórn­valda, bæði fjár­mála­stöð­ug­leika og stöð­ug­leik­ann í hag­kerf­inu almennt.

„Okkur tókst að verja kaup­mátt og það tókst að koma í veg fyrir hrun í atvinnu­líf­inu,“ sagði Gunnar, sem sagði sér­stak­lega standa upp úr hvað banka­kerfið stæði sterkt eftir far­ald­ur­inn. Við værum kannski aðeins farin að gleyma því í dag að í mars í fyrra var eins og það stefndi í hrun á eigna­mark­aði, sem varð síðan ekki.

Þá væri bygg­ing­ar­geir­inn í mun betri málum en ótt­ast hefði verið. Innan Seðla­bank­ans hefðu verið „miklar áhyggjur af því að þar gæti orðið algjör hrun“ en það hefði „heldur betur ekki gerst“. Þar spil­uðu meðal ann­ars inn í vaxta­lækk­anir og kaup­mátt­ar­aukn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár