26 nýliðar taka sæti á þingi

Um þriðj­ungur þing­manna sem taka sæti á Alþingi eru nýliðar. Stór hluti þeirra býr hins vegar yfir tals­verðri þing­reynslu. Vegna end­ur­taln­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og beiðni um slíka í Suð­ur­kjör­dæmi er óvissa um stöðu jöfn­un­ar­manna.

„Jæja þetta voru ǵóðir 9 níu tímar“ sagði Lenya Rún Tha Karim, frambjóðandi Pírata, á Twitter á sunnudagskvöld. Framan af degi leit út fyrir að Lenya yrði yngsti þingmaður sögunnar sem nær kjöri. Eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi breyttist það.
„Jæja þetta voru ǵóðir 9 níu tímar“ sagði Lenya Rún Tha Karim, fram­bjóð­andi Pírata, á Twitter á sunnu­dags­kvöld. Framan af degi leit út fyrir að Lenya yrði yngsti þing­maður sög­unnar sem nær kjöri. Eftir end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi breytt­ist það. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árétting: Eftir end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi á sunnu­dag urðu breyt­ingar í þing­manna­hópnum. Enn er mögu­legt að end­ur­talið verði í fleiri kjör­dæmum. Fréttin hér að neðan miðar enn við töl­urnar eins og þær voru á sunnu­dags­morgun.

26 þing­menn, fimmtán konur og ell­efu karlar, voru kjörnir í fyrsta sinn í alþing­is­kosn­ingnum sem fram fóru í gær. Þetta varð ljóst á tíunda tím­anum í morgun þegar loka­tölur voru birtar úr öllum kjör­dæmum.

Í hópnum eru nokkrir sem eru þó ekki algjörir nýgræð­ingar þegar kemur að þing­mennsku þar sem tíu hinna nýju þing­manna hafa annað hvort setið áður á þingi, líkt og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir sem er að koma aftur inn á þing eftir tíu ára hlé, eða gegnt vara­þing­mennsku. Þá tóku tveir hinna nýju þing­manna sæti á síð­asta þingi, þ.e. Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir fyrir Viðreisn og Þórarinn Ingi Pét­urs­son fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Auk þess telst Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna, nýr þing­maður þar sem hann tók við emb­ætti umhverfis- og auð­linda­ráð­herra eftir síð­ustu kosn­ingar sem utan­þings­ráð­herra.

Ungar konur eru áber­andi á meðal nýrra þing­manna. Lenya Rún Tha Karim, fram­bjóð­andi Pírata, er yngsti þing­maður sög­unnar sem nær kjöri. Hún verður 22 ára í des­em­ber og er 22 dögum yngri en Jóhanna María Sig­munds­dóttir var þegar hún tók sæti á Alþingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn árið 2013. Lenya Rún tryggði sætið snemma í morgun og datt Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, út af þingi á kostnað hennar. Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir er næst yngsti nýi þing­mað­ur­inn, en hún er 25 ára og tekur sæti á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

41,3 pró­sent þing­manna er kjör­inn í fyrsta sinn. Nýlið­unin er í takt við þró­un­ina síð­ustu fimm alþing­is­kosn­ingar, það er 2007, 2009, 2013, 2016 og 2017, þar sem hún hefur verið á bil­inu 30,2 til 50,8 pró­sent. Hæśt var hlut­fallið árið 2016 þegar 32 nýir þing­menn tóku sæti á Alþingi.

Hér má sjá nýja þing­menn eftir kjör­dæmum:

Norðvesturkjördæmi

Stefán Vagn Stef­áns­son (B) - Yfir­lög­reglu­þjónn.

Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir (B) - Formaður Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna.

Þórarinn Ingi Pét­urs­son (B) - Sauð­fjár­bóndi.

Guð­mundur Gunn­ars­son (C) - Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði.

Eyjólfur Ármanns­son (F) - Lög­fræð­ingur og for­maður hóps­ins Orkunnar okkar.

Bjarni Jónsson (V) - Sveit­ar­stjórn­ar­maður í Skaga­firði og vara­þing­maður Vinstri grænna. Bjarni skák­aði Lilju Rafneyju í for­vali flokks­ins í vor og hún dettur nú út af þingi.

Norðausturkjördæmi:

Ingi­björg Ólöf Isaksen (B) - Bæj­ar­full­trúi og fram­kvæmda­stjóri á Akureyri. Ingi­björg skip­aði efsta sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins og hafði hún betur gegn Líneik Önnu Sæv­ars­dóttur þing­manni flokks­ins, en hún nær einnig kjöri.

Jakob Frímann Magn­ús­son (F) - Tón­list­ar­maður. Jakob Frímann kemur aftur inn á þing, nú fyrir Flokk fólks­ins en hann var vara­þing­maður fyrir Sam­fylk­ing­una árið 2004.

Berglind Ósk Guð­munds­dóttir (D) - Lög­fræð­ingur og vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akureyri.

Jódís Skúla­dóttir (V) - Lög­fræð­ingur, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi VG í Múla­þingi og for­maður félags­ins Hinsegin Aust­ur­lands.

Reykjavíkurkjördæmi norður

Diljá Mist Ein­ars­dóttir (D) - Lög­fræð­ingur og aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra frá árinu 2018.

Tómas A. Tómasson (F) - Veit­inga­maður og stofn­andi Ham­borg­ara­búllu Tómasar.

Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir (C) - Lög­fræð­ingur. Þorbjörg tók fyrst sæti á Alþingi í apríl í fyrra þegar hún tók við af Þor­steini Víglunds­syni sem sagði af sér þing­mennsku á kjör­tíma­bil­inu.

Lenya Rún Taha Karim (P) - 21 árs lög­fræði­nemi.

Reykjavíkurkjördæmi suður

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir (P) - Sjálf­stætt starf­andi lög­maður.

Kristrún Frosta­dóttir (S) - Hag­fræð­ingur

Hildur Sverr­is­dóttir (D) - Lög­fræð­ingur

Suðurkjördæmi

Jóhann Friðrik Frið­riks­son (F) - Lýð­heilsu­fræð­ingur

Hafdís Hrönn Þor­steins­dóttir (B) - Lög­fræð­ingur og stjórn­ar­for­maður Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi.

Guðrún Haf­steins­dóttir (D) - Mark­aðs­stjóri Kjörís og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins.

Hólm­fríður Árna­dóttir (V) - Mennt­un­ar­fræð­ingur og skóla­stjóri í Sand­gerði.

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir (F) - Kennari og for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna.

Suðvesturkjördæmi

Sigmar Guð­munds­son (C) - Fjöl­miðla­maður.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son (B) - Bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafn­ar­firði og for­maður bæj­ar­ráðs.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir (S) - Stjórn­mála­fræð­ingur. Tekur aftur sæti á Alþingi eftir tíu ára hlé.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son (V) - Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

25 þingmenn kveðja Alþingi - Sjö sem sóttust eftir kjöri ná ekki inn

Fyrir kjör­dag var ljóst að 18 þing­menn hið minnsta myndu segja skilið við þingið þar sem þau voru ekki á listum flokk­anna eða í efstu sætum þeirra í kosn­ing­unum nú.

Það eru Al­bertína Frið­björg Elías­dótt­ir, Ari Trausti Guðmunds­son, Ágúst Ólaf­ur Ágústs­son, Guðjón S. Brjáns­son, Gunn­ar Bragi Sveins­son, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Jón Þór Ólafs­son, Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, Kristján Þór Júlí­us­son, Ólaf­ur Ísleifs­son, Páll Magnús­son, Sig­ríður Á. And­er­sen, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, Smári McCart­hy, Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, Þor­steinn Víg­lunds­son sem hætti á kjör­tíma­bil­inu, Þor­steinn Sæ­munds­son og Þór­unn Eg­ils­dótt­ir sem lést í júlí.

Eftir að loka­tölur voru birtar í morgun er ljóst að alls munu 25 þing­menn segja skilið við þingið. Í hóp þeirra sem hætta á þingi bæt­ast sjö, sem náðu ekki kjöri að þessu sinni.

Það eru Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir og Ólafur Þór Gunn­ars­son þing­menn Vinstri grænna, Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson þing­menn Mið­flokks­ins, Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ingar og Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár