Þórólfur: Ekki ástæða til að stytta sóttkví og einangrun

„Það eru engar umræður uppi hér um að breyta leið­bein­ingum um ein­angrun og sótt­kví,“ segir sótt­varna­læknir. „Ég tel að þessar tvær aðgerðir hafi vegið þungt í að ráða nið­ur­lögum far­ald­urs­ins hér og tel að veiga­mikil rök þurfi til að breyta því.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir engar umræður uppi hér á landi um að breyta leið­bein­ingum um ein­angrun og sótt­kví líkt og Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna hefur gert. Þar í landi hefur til­mælum um lengd þess­ara úrræða í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni verið breytt úr fjórtán dögum í tíu. Er það sagt gert út frá nýj­ustu þekk­ingu um smit­hættu.

Þórólfur segir við Kjarnann að hann telji að bæði sótt­kví og ein­angrun hafi vegið þungt í að ráða nið­ur­lögum far­ald­urs­ins hér. Hann telur veiga­mikil rök þurfa til að breyta því. „Á þess­ari stundu tel ég því ekki ástæðu til breyt­inga.“

Allt frá því far­aldur kór­ónu­veirunnar braust út hefur það verið megin reglan að fólk sem kom­ist hefur í tæri við sýkta ein­stak­linga fari í tveggja vikna sótt­kví. Þannig hefur það m.a. verið hér á landi. Að sama skapi hefur víð­ast hvar verið mælst til þess að fólk sem grein­ist með veiruna fari í að minnsta kosti tveggja vikna ein­angrun en jafn­vel lengur, eftir alvar­leika veik­inda þeirra.

Hér á landi eru leið­bein­ing­arnar þær að þegar fólk er greint með veiruna og virkt smit fer það í að minnsta kosti fjórtán daga ein­angrun. Læknar COVID-19-teymis Land­spít­ala sjá svo um útskrift­ar­sím­töl fyrir ein­stak­linga sem útskrif­ast úr ein­angrun. Þeir þurfa að upp­fylla bæði eft­ir­far­andi skil­yrði og stað­festa það í sam­tali við lækni:

  • Að komnir séu a.m.k. 14 dagar frá grein­ingu/jákvæðu sýni (grein­ing­ar­sýni).
  • Að hafa verið ein­kenna­lausir í 7 daga.

Þá fá allir þau til­mæli að huga sér­stak­lega vel að hand­þvotti og hrein­læti í tvær vikur eftir að ein­angrun hefur verið aflétt. Þá ber þeim einnig að forð­ast umgengni við við­kvæma ein­stak­linga svo sem eldra fólk og ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm í a.m.k. tvær vikur.

Sóttkví vegna COVID-19 er einnig 14 dagar frá síð­asta mögu­lega smiti eða þar til ein­kenni koma fram.

[links]Uppfærð til­mæli Smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna eru á þann veg að fólk sem greinst hefur með COVID-19 skuli fara í ein­angrun í tíu daga eftir að það fær ein­kenni og vera í ein­angrun í sól­ar­hring eftir að það verður hita­laust. Fyrir þá sem grein­ast með veiruna en sýna engin ein­kenni er samt sem áður mælt með tíu daga ein­angrun.

Í til­mælum stofn­un­ar­innar er bent á að lít­ill hluti fólks sem fái alvar­leg ein­kenni geti smitað aðra af veirunni í lengri tíma og því gæti það þurft að vera í ein­angrun í allt að tutt­ugu daga.

Í dag eru átta manns í ein­angrun vegna COVID-19 hér á landi og 91 í sótt­kví. Samkvæmt því sem fram kemur á upp­lýs­inga­síð­unni covid.is hafa alls 22.993 manns lokið sótt­kví frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

57 pró­sent þeirra sem greindust með veiruna fyrir 15. júní (áður en landamæra­skimun hófst) voru í sótt­kví við grein­ingu.

Þegar mest lét í lok mars voru yfir tíu þús­und manns í sótt­kví á sama tíma. Þá lágu átján sjúk­lingar á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins og sex þeirra voru í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu­deild.

Tíu hafa lát­ist vegna COVID-19 á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár