Stytta einangrun smitaðra úr 14 dögum í tíu

Þeir sem grein­ast með kór­ónu­veiruna í Banda­ríkj­unum þurfa ekki lengur allir að dvelja í ein­angrun í fjórtán daga heldur aðeins tíu. Er breyt­ingin sögð byggja á nýj­ustu þekk­ingu á smit­hættu.

Einangrun getur reynt á þolrifin.
Ein­angrun getur reynt á þol­rifin. Mynd: EPA

Allt frá því far­aldur kór­ónu­veirunnar braust út hefur það verið megin reglan að fólk sem kom­ist hefur í tæri við sýkta ein­stak­linga fari í tveggja vikna sótt­kví. Þannig hefur það m.a. verið hér á landi. Að sama skapi hefur víð­ast hvar verið mælst til þess að fólk sem grein­ist með veiruna fari í að minnsta kosti tveggja vikna ein­angrun en jafn­vel lengur, eftir alvar­leika veik­inda þeirra.

Nú hefur orðið breyt­ing á þessu í Banda­ríkj­unum, sem hafa hingað til fylgt 14-daga regl­unni. Smit­sjúk­dóma­stofnun lands­ins, CDC, hefur ákveðið að stytta þann tíma sem fólki er upp­álagt að dvelja í ein­angrun eftir að grein­ast með veiruna sem og þeirra sem þurfa að fara í sótt­kví. Segir stofn­unin breyt­ing­una byggða á auk­inni þekk­ingu á smit­hættu.

Uppfærð til­mæli stofn­un­ar­innar eru á þann veg að fólk sem greinst hefur með COVID-19 og er með það sem kallað er virkt smit skuli fara í ein­angrun í tíu daga eftir að það fær ein­kenni og vera í ein­angrun í sól­ar­hring eftir að það verður hita­laust. Fyrir þá sem grein­ast með veiruna en sýna engin ein­kenni er samt sem áður mælt með tíu daga ein­angrun.

Í grein Washington Post um þessi breyttu til­mæli Smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar­innar segir að í mörgum rann­sóknum megi nú finna vís­bend­ingar um að flest fólk með veiruna smiti aðeins í stuttan tíma eða í 4-9 daga. Í til­mælum stofn­un­ar­innar er bent á að lít­ill hluti fólks sem fái alvar­leg ein­kenni geti smitað aðra af veirunni í lengri tíma og því gæti það þurft að vera í ein­angrun í allt að tutt­ugu daga.

Líkt og með margt sem snýr að leið­bein­ingum og til­mælum varð­andi nýju kór­ónu­veiruna og sjúk­dóm­inn sem hún veldur, COVID-19, eru skiptar skoð­anir meðal sér­fræð­inga um hversu lengi smit­aðir ættu að vera í ein­angrun og sótt­kví. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, upp­færði sínar leið­bein­ingar í júní og sam­kvæmt þeim er mælt með því að smit­aðir en ein­kenna­lausir séu í ein­angrun í tíu daga en þeir sem fái ein­kenni í að minnsta kosti þrettán daga.

Sér­fræð­ingar hafa bent á að rann­sóknir sem gerðar hafa verið á því hvenær fólk smiti aðra eftir að hafa smit­ast sjálft hafi verið nokkuð sam­hljóða. Í rann­sókn sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu Nature í apríl var nið­ur­staðan m.a. sú að mótefni sem lík­am­inn myndar hafi þegar veikt veiruna á fimmta degi frá smiti og á þeim átt­unda eða níunda sé hún afvopnuð og við­kom­andi því hættur að smita.

Í annarri rann­sókn sem birt var í New England Journal of Medicine var nið­ur­staðan m.a. sú að nán­ast á sama degi og fólk fer að sýna ein­kenni sjúk­dóms­ins fari magn veirunnar í lík­ama þeirra að minnka.

En rann­sóknir sýna einnig að mis­jafnt er hversu lengi fólk er mögu­lega smit­andi. Og með því að stytta ein­angrun í tíu daga er ekki hægt að úti­loka algjör­lega smit­hættu. Slíkt á reyndar við um alla smit­sjúk­dóma –ekki aðeins COVID-19.

Enn að minnsta kosti 14 daga einangrun á Íslandi

En hvernig er þessu nákvæm­lega háttað hér á Íslandi?

Á vefnum Covid.is er að finna mikið gagn hag­nýtra upp­lýs­inga, m.a. um það hvernig ein­angrun eftir COVID-19 sýk­ingu er aflétt.

Það ger­ist svona:

Læknar COVID-19-teymis Land­spít­ala sjá um útskrift­ar­sím­töl fyrir ein­stak­linga sem útskrif­ast úr ein­angrun. Þeir þurfa að upp­fylla bæði eft­ir­far­andi skil­yrði og stað­festa það í sam­tali við lækni:

Að komnir séu a.m.k. 14 dagar frá grein­ingu/jákvæðu sýni (grein­ing­ar­sýni).

Að hafa verið ein­kenna­lausir í 7 daga.

Þá fá allir þau til­mæli að huga sér­stak­lega vel að hand­þvotti og hrein­læti í tvær vikur eftir að ein­angrun hefur verið aflétt. Þá ber þeim einnig að forð­ast umgengni við við­kvæma ein­stak­linga svo sem eldra fólk og ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm í a.m.k. 2 vikur.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá síð­asta mögu­lega smiti eða þar til ein­kenni koma fram.

Líka spurning um peninga

Umræðan um lengd sótt­kvíar er ekki aðeins til­komin til að aflétta félags­legri ein­angrun þeirra sem sýkst hafa og auka þeirra ferða­frelsi. Í Banda­ríkj­unum snýst hún einnig um laun starfs­manna sem kom­ast ekki í vinn­una vegna ein­angr­unar eða sótt­kvíar.

Í upp­hafi far­ald­urs­ins var það stað­fest í aðgerða­pakk­anum vegna COVID á þing­inu að starfs­fólk lít­illa- og með­al­stórra fyr­ir­tækja skyldi fá laun frá hinu opin­bera kæm­ist það ekki til vinnu af þessum sökum. Í stóru landi eins og Banda­ríkj­unum, þar sem far­ald­ur­inn er mjög útbreiddur og tugir þús­unda grein­ast með veiruna dag­lega, skipta nokkrir dagar því miklu þegar kemur að rík­is­út­gjöldum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár