Kosið í október eða nóvember

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir að lík­leg­ast verði kosið til Alþingis um miðjan októ­ber eða í byrjun nóv­em­ber. Hann segir Sigmund Davíð hafa misst traust Sjálf­stæð­is­flokks­ins og það verði skraut­legt þegar Birgitta Jóns­dóttir verður for­seti Alþingis.

Vilhjálmur Bjarnason segir að líklegast verði kosið til Alþingis í október. Hann segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson hafa misst traust Sjálfstæðisflokksins og furðar sig á því að mál séu svo stór að þau þurfi fram á vor til að afgreiða.
Vil­hjálmur Bjarna­son segir að lík­leg­ast verði kosið til Alþingis í októ­ber. Hann segir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son hafa misst traust Sjálf­stæð­is­flokks­ins og furðar sig á því að mál séu svo stór að þau þurfi fram á vor til að afgreiða. Mynd: Birgir Þór

Það verður kosið til Alþingis upp úr miðjum októ­ber, kannski fyrstu vikur í nóv­em­ber. Þetta segir Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun sagði Vil­hjálmur að ekk­ert hefði verið rætt við sig af flokks­for­yst­unni um annað en að kjósa í haust. Sjálf­stæð­is­menn hafi til að mynda lagt upp með próf­kjör í öllum kjör­dæmum fyrir þann tíma.

Sigmundur missti traust Sjálfstæðisflokksins

Vil­hjálmur seg­ist vissu­lega ekki hafa rætt við alla Sjálf­stæð­is­menn og auð­vitað séu mis­jafnar skoð­anir meðal fólks um hvort kjósa eigi í haust eða ekki. En sam­kvæmt því sem lagt var upp með í apríl, þegar upp kom for­dæma­laus staða í íslenskum stjórn­málum og for­sæt­is­ráð­herra missti traust þjóðar og sam­starfs­flokks, var samið um kosn­ingar í haust. Til séu við­töl við bæði Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til að stað­festa það.

Hissa á Framsókn

Um þau mál sem séu eftir segir Vil­hjálmur þau flest ein­ungis hefð­bundin þing­mál og óþarfi sé að klára þau ekki. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur und­an­farna daga talað fyrir því að halda ekki kosn­ingar í haust, þar sem svo mik­il­væg mál séu eftir á þing­inu sem þurfi að klára áður en kosið verður. Það geti tekið tíma sinn.

Vil­hjálmur sagð­ist hissa á ýmsu sem hafi komið frá Fram­sókn­arf­mönnum í sam­starfi flokk­anna. 

„Ég hef aldrei séð þennan mála­lista Fram­sóknar og Sig­mundur Davíð hefur ekki fjallað um hann nema að þessu tak­mark­aða leiti,“ sagði hann.

Skrautlegt þegar Birgitta verður forseti Alþingis

Spurður hvort hann geti hugsað sér sam­starf við Pírata, sem eru að mæl­ast stærstir í skoð­ana­könn­unum þessa dag­ana, segir Vil­hjálmur ekki viljað úti­loka sam­starf við neinn. Hann vísar þar í ummæli for­ystu­fólks Pírata, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í Kjarn­anum í gær þar sem sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn var úti­lokað. Hann ræddi um Pírata og sagði flokk­ur­inn hafi ekki látið það mikið í ljós á síð­ustu þingum að þeir vildu kom­ast í rík­is­stjórn, meðal ann­ars með því að sitja mikið hjá í atkvæða­greiðslu mála. Um Birgittu Jóns­dóttur, þing­flokks­for­mann Pírata, sagði Vil­hjálmur að lokum:

„Það verður gaman þegar hún verður for­seti Alþingis. Það verður skraut­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár