Sigmundur Davíð útilokar ekki endurkomu í ríkisstjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, úti­lokar ekki að hann stefni á að fara aftur í rík­is­stjórn á þessu kjör­tíma­bili. Hann seg­ist meta það hverju sinni hvað sé best til að ná fram­gangi mála og muni gera það á hverjum degi en segir að hann muni beita sér á hvaða hátt sem hann getur. „Hvað rík­is­stjórn­ina varðar mun ég hafa aðkomu að því hvernig þetta gengur fyrir sig.“

Sig­mundur Davíð ætlar að bjóða sig áfram fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í næstu kosn­ingum, líkt og hann gerði árið 2013. Annað hafi aldrei hvarflað að honum. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Höfum ekki siðferðislegan rétt til að boða til kosninga

Sig­mundur Davíð boð­aði fulla end­ur­komu sína í stjórn­mál með bréfi til flokks­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins í byrjun viku. Þar kom skýrt fram að honum hugn­að­ist ekki að kjósa í haust, líkt og for­svars­menn rík­is­stjórnar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar hafa boðað og báðir þing­flokkar að baki hennar hafa sam­þykkt. Sig­mundur Davíð segir við Morg­un­blaðið að það séu ein­ungis tvær ástæður fyrir stjórn­ar­slitum; ann­ars vegar ef stjórn­ar­meiri­hlut­inn heldur ekki og hins vegar ef stjórnin telur sig hafa lokið verk­efni sínu og að það sé orðið tíma­bært að boða til nýrra kosn­inga. „Ég sé engin merki þess að stjórnin sé að falla. Er stjórnin að ná að klára sín verk­efni? Ég get ekki séð að svo sé. Það má ekki gleyma kjós­endum sem studdu okkur. Við höfum ekki sið­ferð­is­legan rétt til þess að boða til kosn­inga í haust nema menn séu búnir að klára það sem þeir lof­uðu.“

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, er hins vegar afdrátt­ar­laus í sam­tali við Frétta­blaðið í dag. Þar segir hann að þing­rof hafi verið rætt á fundum hans við for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar og að gengið sé út frá því sem vísu að kosið verði á haust­mán­uðum. Hug­myndir Sig­mundar Davíðs um annað skipti engu máli þar sem hann sé ekki hluti af for­ystu rík­is­stjórnar. „Við höfum rætt það á okkar fundum, ég og for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, að þing­lok verði í haust og boðað verði til kosn­inga eins og lofað hefur verið. Ég tel orð for­ystu­manna þess­arar rík­is­stjórnar hafa verið mjög afdrátt­ar­laus, bæði í sam­tali við mig og fjöl­miðla, og því leikur eng­inn vafi á að kosið verði í haust.“

Segir Pírata hrokafulla

Í Morg­un­blað­inu segir Sig­mundur Davíð að sér finn­ist í auknum mæli gæta hroka hjá Pírötum. Sá hroki hafi ekki skánað eftir að flokk­ur­inn fór að telja sig tals­menn almenn­ings og rödd fólks­ins. „

Það er reyndar ein­kenni flokka á jaðr­inum í stjórn­málum. Það er hættu­leg þróun hjá Pírötum að þeir fari að ímynda sér að það sé þeirra að boða kosn­ingar.“

Leiðari um einstaka aðför gegn Sigmundi Davíð

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins er stuðn­ingi lýst við áform Sig­mundar Davíðs og grein hans í blað­inu á þriðju­dag lofuð. Þar segir að for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi hafi tekið sér frí frá störfum í rík­is­stjórn „til að fá tóm til að fara yfir mál sem Rík­is­út­varpið hafði þyrlað upp og svo að end­ur­skoð­endur og skatt­yf­ir­völd gætu upp­lýst hvort eitt­hvað væri óupp­gert þar. Því er lokið. Ekkert er óupp­gert. Fræ efans, sem Rík­is­út­varpið sáði, ættu því ekki að skjóta rótum. Mat frétta­mið­ils­ins Guardian í mars sl. reynd­ist hins vegar rétt: »Guardian hefur ekki séð neinar sann­anir fyrir skattaund­anskotum, und­an­brögðum eða óheið­ar­legum ávinn­ingi Sig­mundar Davíðs, Önnu Sig­ur­laugar eða Wintris.“

Morg­un­blaðið segir að það eina sem eftir standi í Wintris-mál­inu svo­kall­aða séu hug­leið­ingar um hvort heppi­legra hefði verið að máls­ins hefði verið getið meðan tog­streitu við kröfu­hafa stóð. „Eft­irá­spekin gagn­kunna segir að það hefði verið þarft. En sú speki sýnir einnig að Sig­mundur Davíð var ætíð sá stjórn­mála­maður sem lengst vildi ganga til að tryggja íslenska hags­muni gagn­vart kröfu­höf­unum. Tíma­ritið Þjóðmál birtir þessa dag­ana mjög athygl­is­verða grein eftir Pál Vil­hjálms­son blaða­mann. Greinin ber yfir­skrift­ina Aðför RÚV að Sigmundi Davíð. Und­ir­fyr­ir­sögnin er: Einstakt dæmi um mis­notkun fjöl­miðla­valds. Hver sá sem les tíma­rits­grein­ina til enda sér að ekk­ert er ofsagt í þeirri fyr­ir­sögn. Við skulum vona að aðförin verði ein­stakt dæmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár