Ögrandi reiðhjólaauglýsing sem hnýtir í bílaframleiðendur bönnuð í Frakklandi

Aug­lýs­ing hol­lenska raf­hjóla­fram­leið­and­ans VanMoof fær ekki að birt­ast í frönsku sjón­varpi. Hún þykir koma óorði á bíla­fram­leið­endur á ósann­gjarnan hátt og valda kvíða hjá áhorf­endum, sem er bannað þar í landi.

Stilla úr auglýsingunni.
Stilla úr aug­lýs­ing­unni. Mynd: VanMoof

Aug­lýs­ing frá hol­lenska raf­hjóla­fram­leið­and­anum VanMoof má ekki birt­ast í sjón­varpi í Frakk­landi, þar sem ARPP, eft­ir­lits­stofnun með franska aug­lýs­inga­mark­aðnum, telur aug­lýs­ing­una bæði kvíða­vald­andi og koma óorði á bíla­fram­leið­endur með ósann­gjörnum hætti.

Hol­lenska fyr­ir­tækið gaf aug­lýs­ing­una út snemma í júní. Í henni sjást myndir af loft­mengun, umferð­ar­teppum, bílslysum og fleiru spegl­ast í lakki sport­bíls, sem síðan bráðnar niður í málm­súpu sem síðan myndar sölu­vöru fyr­ir­tæk­is­ins, renni­legt raf­hjól af gerð­inni VanMoof S3.

„Tími til að aka fram­tíð­inni,“ er slag­orð aug­lýs­ing­ar­innar, sem féll franska yfir­vald­inu síður en svo í geð. Til­gangur hol­lenska fyr­ir­tæk­is­ins er aug­ljós, að sýna fram á kosti raf­hjóls­ins sem far­ar­skjóta með því að benda á ýmsa vel þekkta ókosti bíla­um­ferðar.

Frökk­unum þótti þetta of langt gengið. Samkvæmt umfjöllun banda­ríska vef­mið­ils­ins Verge sendu þeir bréf til Hollands þar sem aug­lýs­ing­unni er hafnað og því beint til hjóla­fram­leið­and­ans að breyta henni, ef hún ætti að verða birt­ing­ar­hæf í frönsku sjón­varpi.

[adspot]

Aug­lýs­ingin þótti sem áður segir bæði sýna bíla í of nei­kvæðu ljósi og svo þótti hún einnig brjóta í bága við franskar reglur um að mark­aðs­setn­ing megi ekki byggja á því að vekja ótta eða þján­ingu hjá neyt­endum.

Vöktu athygli á banninu

For­svars­menn VanMoof hafa að sjálf­sögðu brugð­ist við þessu með því að snúa vörn í sókn, enda hefur það nú oft verið þannig að umtöl­uð­ustu aug­lýs­ing­arnar eru bann­aðar aug­lýs­ingar.

Í gær sendi fyr­ir­tækið frá sér til­kynn­ingu þar sem vakin var athygli á því að aug­lýs­ingin hefði verið bönnuð. Hjóla­fram­leið­and­inn furðar sig á ákvörð­un­inni og bendir á að í Hollandi og Þýska­landi hafi aug­lýs­ingin verið sýnd í sjón­varpi án athuga­semda.

„Það er óskilj­an­legt að bíla­fram­leið­endur fái að skauta fram­hjá umhverf­is­vanda­málum, en þegar ein­hver ögri þeirri stöðu sé það rit­skoðað,“ er haft Ties Carlier, öðrum stofn­anda VanMoof í til­kynn­ing­unni.

Þar er einnig sett spurn­inga­merki við hlut­leysi franska eft­ir­lits­að­il­ans og bent á að franski bíla­iðn­að­ur­inn er í vanda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hafi meðal ann­ars verið mætt af stjórn­völdum með 8 millj­arða evra rík­is­fram­lagi til fram­leið­enda.

VanMoof seg­ist ein­fald­lega hafa viljað hvetja áhorf­endur til þess að hugsa um hvernig þeir væru að ferð­ast um og hvernig þeir gætu haft jákvæð áhrif á heim­inn.

Fyr­ir­tækið var stofnað af bræðr­unum Ties og Taco Carlier í Amster­dam árið 2009 og hefur hannað og selt 120.000 reið­hjól síðan þá víða um heim. Þeir senda að vísu ekki til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár