Frjálslyndir flýja Sjálfstæðisflokkinn

Viðreisn spratt upp úr óánægju með slit á aðild­ar­við­ræðum við ESB. Flokk­ur­inn lýsir sér sem frjáls­lyndum og alþjóðasinn­uðum flokki breyt­inga, og þar með val­kosti við íhaldsaman Sjálf­stæð­is­flokk. Sögu­legur klofn­ingur hægri­manna er að eiga sér stað.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð til við sam­ein­ingu Íhalds­flokks­ins og Frjáls­lynda flokks­ins árið 1929. Nú, árið 2016, mun form­lega drag­ast í sundur með frjáls­lyndum og íhalds­mönnum að nýju. Þ.e. hinir frjáls­lyndu flykkj­ast nú til liðs við nýja hægri­aflið Viðreisn en íhalds­menn­irnir sitja eftir í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Munurinn á flokk­unum tveimur krist­all­ast vel í orðum sem for­víg­is­menn þeirra beggja, frænd­urnir Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hafa látið falla að und­an­förnu. Bjarni sagði í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi 8. maí síð­ast­lið­inn að helsta kosn­inga­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ingum yrði að verja stöð­ug­leika á Íslandi með því að standa gegn kerf­is­breyt­ingum og nýrri stjórn­ar­skrá. Benedikt sagði í við­tali við Kjarnann 26. júlí að hann hefði tekið eftir þessum orðum Bjarna. „Okkar meg­in­mál eru að koma í gegn rót­tækum kerf­is­breyt­ing­um,“ sagði Benedikt. Meg­in­á­herslur Við­reisnar yrðu mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi, nútíma­leg land­bún­að­ar­stefna, að styrkja hag þeirra sem minnst fá út úr almanna­trygg­inga­kerf­inu og auð­vitað kosn­ingar um fram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið. Síðasta áherslu­at­riðið sem Benedikt nefndi er mik­il­vægt, enda má rekja stofnun Við­reisnar beint til þess.

Hófst allt með viðræðuslitum

21. febr­úar 2014 verður lík­lega einn örlaga­rík­asti dagur í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá lagði Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga umsókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka.

Fram­lagn­ing til­lög­unnar var keyrð áfram af Fram­sókn­ar­flokknum, sem hafði und­ir­búið hana vel. Þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins var hins vegar ekki kynnt efni hennar fyrr en sama dag og hún var lögð fram. Samt stóð hann með til­lög­unni.

Benedikt Jóhannesson, nú formaður Viðreisnar, talaði á fjöldafundum sem haldnir voru á Austurvelli til að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að halda ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um áfrahald viðræðna við Evrópusambandið.
Benedikt Jóhann­es­son, nú for­maður Við­reisnar, tal­aði á fjölda­fundum sem haldnir voru á Aust­ur­velli til að mót­mæla ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að halda ekki þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfra­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið.

Í kjöl­far þess að til­lagan var lögð fram urðu fjölda­mót­mæli á Aust­ur­velli og hópur alþjóða­sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna klauf sig opin­ber­lega frá flokknum sínum. Á meðal þeirra sem til­heyra þeim hópi má nefna fyrr­ver­andi flokks­for­mann­inn Þorstein Pálsson, áður­nefndar Benedikt Jóhann­es­son, líf­eyr­is­sjóða­á­hrifa­mann­inn Helga Magn­ús­son, Þórð Magn­ús­son fjár­festi, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú­ann Jórunni Frí­manns­dóttur og Vilhjálm Egilsson rektor svo fáeinir séu nefndir. Þess utan gagn­rýndi fyrr­ver­andi vara­for­mað­ur­inn Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir stefnu flokks­ins harð­lega og sagði að hún vildi ekki að harð­lífið tæki yfir. „Við viljum ekki að svart­stakk­arnir í flokknum eigi flokk­inn meira en ég og þú,“ sagði Þor­gerður Katrín í þætti á RÚV skömmu eftir að til­lagan var sam­þykkt.

Ástæða þess að frjáls­lyndir alþjóða­sinnar voru svona reiðir var sú að þeir töldu flokks­for­yst­una hafa lofað því að aðild­ar­við­ræðum yrði ekki slitið nema að fram færi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um það. Raunar er eng­inn vafi um að slík lof­orð voru gefin í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2013, líkt og sjá má á mynd­band­inu hér að neðan.

Hópur fjár­sterkra áhrifa­manna í íslensku við­skipta­lífi og víðar, sem hafði fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum allt sitt líf, hóf að hitt­ast reglu­lega til að ræða mögu­leik­ann á nýju fram­boði og annar hópur stofn­aði lok­aða grúppu á Facebook undir nafn­inu „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“.

Kjarninn greindi frá því í apríl 2014 að víð­tæk vinna við mótun nýs fram­boðs væri þá þegar hafin. Hún var fjór­skipt. Í fyrsta lagi sner­ist hún um að móta stefnu þess og manna fram­boðið. Þar var lögð áhersla á að hinn nýi flokkur verði ekki eins­máls­flokkur utan um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, þótt mjög skýr utan­rík­is­stefna sem taki mið af nánu sam­starfi við vest­rænar þjóðir yrði að verða fyr­ir­ferða­mikil. Mikill vilji var til þess að gera það að einu af aðal­stefnu­málum flokks­ins að skera upp íslenska land­bún­að­ar­kerfið og lækka opin­bera nið­ur­greiðslu þess og vernd­ar­tolla umtals­vert. Þá var stefnt að því að vera með skýra stefnu í sjáv­ar­út­vegs­málum sem átti að snú­ast um að útgerð­ar­fyr­ir­tæki greiði meira fyrir afnot af auð­lind­inni en þau gera nú. Það var líka stefnt að því að ná í fólk til að fara í fram­boð af báðum kynjum, á mis­mun­andi aldri og úr mörgum stéttum. Var þar sér­stak­lega horft til fólks úr heil­brigðis- og mennta­stéttum, frum­kvöðla og stjórn­enda úr atvinnu­líf­inu.

Í öðru lagi var lögð mikil áhersla á að skipu­lag fram­boðs­ins verði með besta móti. Tíma­setn­ing þess að ráð­ist yrði í það var talin skipta öllu máli til að hægt verði að nýta mögu­legan með­byr sem best.

Í þriðja lagi var unnið að því sem kallað var áróð­urs- og fræðslu­mál. Undir þann lið féll að koma boð­skap hins nýja fram­boðs á fram­færi, meðal ann­ars í fjöl­miðlum.

Fjórði þátt­ur­inn, og einn sá mik­il­væg­asti, sner­ist síðan um fjár­mál. Fram­boðið átti að vera gríð­ar­lega vel fjár­magnað frá byrjun. Það átti ekki að vera vand­kvæðum bundið þar sem margir mjög fjár­sterkir aðilar höfðu þegar tengt sig við það. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var lögð áhersla á að ein­stak­lingar myndu greiða fyrir til­vist fram­boðs­ins úr eigin vasa. Einn við­mæl­anda Kjarnans sagði að þar myndi ekki verða beðið „um hund­rað þús­und kalla, heldur millj­ónir“.

Viðreisn formlega stofnuð

Fyrsti form­legi stefnu­mót­un­ar­fundur hins nýja stjórn­mála­afls var hald­inn 11. júní 2014. Um svipað leyti var til­kynnt að flokk­ur­inn myndi heita Viðreisn, eftir Við­reisn­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks sem sat við völd á Íslandi frá 1959 og fram til árs­ins 1971. Tæpu ári síðar, 17. mars 2015, var hald­inn fyrstu fundur stuðn­ings­manna flokks­ins. Flokk­ur­inn var loks form­lega stofn­aður á fundi í Hörpu 24. maí 2016 sem um 400 manns mættu á. Þar var Benedikt Jóhann­es­son kjör­inn for­maður hans. Á fund­inum var grunn­stefna flokks­ins sam­þykkt og greint frá því að flokk­ur­inn ætl­aði sér að bjóða fram lista í öllum kjör­dæmum í næstu þing­kosn­ingum, sem þá hafði verið flýtt fram á haustið 2016 vegna Wintris-máls­ins og afsagnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far þess.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur ítrekað verið orðuð við framboð fyrir Viðreisn. Hún hefur ekki opinberað enn hvort hún hyggi á slíkt eður ei.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hefur ítrekað verið orðuð við fram­boð fyrir Viðreisn. Hún hefur ekki opin­berað enn hvort hún hyggi á slíkt eður ei.

Í við­tölum við fjöl­miðla í kjöl­far fund­ar­ins lagði Benedikt ríka áherslu á að Viðreisn yrði frjáls­lyndur flokkur. Flokk­ur­inn myndi fyrst og fremst hugsa um neyt­endur og almenn­ing og standa gegn sér­hags­munum. Í til­kynn­ingu vegna stofn­unnar Við­reisnar sagði að grunn­stefna flokks­ins fælist í því „að byggja upp sam­fé­lag þar sem ein­stak­lingar vilji og geti nýtt hæfi­leika sína til fulls. Mik­il­vægt sé að tryggja stöð­ug­leika í efna­hags­málum og gæta þess að traust ríki í stjórn­málum og í garð stofn­ana rík­is­ins. Efla beri mál­efna­lega umræðu og góða stjórn­ar­hætti með áherslu á gegn­sæi og gott sið­ferði.“

Fylgið virðist koma frá Pírötum

Augljóst er að orð­ræðan í kringum Viðreisn er valin af kost­gæfni hjá þeim sem að flokknum standa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur burð­ast með ásak­anir um að vera flokkur sér­hags­muna og varð­stöðu um gild­andi sam­fé­lags­gerð, með réttu eða röngu. Viðreisn, og þeir sem standa að fram­boð­inu, vilja reyna að mála þá skýru mynd að flokk­ur­inn sé and­stæður póll við Sjálf­stæð­is­flokk­inn á hægri væng stjórn­mál­anna. Eins og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn var gagn­vart Íhalds­flokknum áður en þeir sam­ein­uð­ust árið 1929.

Eftir að stofn­fundur Við­reisnar var hald­inn hefur flokk­ur­inn mælst ágæt­lega í könn­unum. Samkvæmt kosn­inga­spá Kjarnans hefur fylgi flokks­ins farið úr um þremur pró­sentum fyrir stofn­fund­inn og hæst upp í 9,5 pró­sent í byrjun júlí. Nú mælist fylgi Við­reisnar 8,7 pró­sent, eða nákvæm­lega jafn mikið og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar, tveggja rót­gró­inna stjórn­mála­afla sem átt hafa aðild að rík­is­stjórnum á Íslandi að und­an­förnum árum.

Það vekur þó athygli að Viðreisn virð­ist ekki hafa verið að taka mikið fylgi af Sjálf­stæð­is­flokknum á und­an­förnum mán­uðum. Þvert á móti hefur fylgi hans auk­ist lít­il­lega frá því að stofn­fundur Við­reisnar var hald­inn og mælist nú 25,4 pró­sent. Það er þó í sögu­lega sam­hengi mjög lítið fylgi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann fékk 26,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum sem var næst versta útreið flokks­ins í slíkum í sögu hans. Einungis í hrun­kosn­ing­unum 2009 hafði hann fengið færri atkvæði. Samt er fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hæstu hæðum miðað við kann­anir um þessar mundir í sam­an­burði við það hvernig það hefur verið á þessu kjör­tíma­bili. Þar hefur það á stundum farið undir 20 pró­sent. Bjarni Bene­dikts­son, sagð­ist á Hrafna­þingi á ÍNN í gær að fram­boð Við­reisnar trufli sig ekki neitt.

Sá flokkur sem virð­ist tapa mestu eftir að Viðreisn sýndi á spilin eru Píratar. Fylgi þeirra hefur verið á milli 30-40 pró­sent sam­kvæmt könn­unum nær óslitið frá byrjun síð­asta árs, en hefur dalað skarpt síð­ustu mán­uði. Nú segj­ast 25,6 pró­sent lands­manna að þeir styðji Pírata. Þessi staða bendir til þess að óánægju­fylgi alls staðar að úr hinu póli­tíska lit­rófi hafi safn­ast upp á bak við Pírata og að ný fram­boð sem skil­greina sig sem val­kosti ýmist hægra- eða vinstra megin við þá geti vel náð hluta þess fylgis til sín. Það virð­ist Viðreisn gera.

Það blasir þó við að Viðreisn vill meira og telur sig geta tekið fylgi af fleirum. Þar er einkum horft til „gamla“ flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sam­fylk­ingar. Líklegt verður að telj­ast að Sam­fylk­ingin sé í ein­hvers­konar botn­fylgi sem stendur, enda flokk­ur­inn í alvar­legri hættu á að ná ekki inn á þing í næstu kosn­ingum. Samt stendur til að bjóða fram allt sama fólkið og hefur verið í for­grunni flokks­ins í þeirri veg­ferð fylg­is­hruns sem hann hefur verið á und­an­farin ár. Það gleym­ist nefni­lega oft í umræð­unni að Sam­fylk­ingin var mjög stórt afl í íslenskum stjórn­málum framan af öld­inni. Nú virð­ast færri ætla að kjósa flokk­inn en eru skráðir í hann og fáir flokks­menn virð­ast vera að horfa inn á við í leit að skýr­ingu á stöð­unni.

Framboð Þorsteins reiðarslag

Viðreisn telur sig hins vegar hafa eftir ýmsu að slægj­ast hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Margir þeirra sem hafa komið að stofnun Við­reisnar störf­uðu enda árum og ára­tugum saman innan þess flokks.

Mótun fram­boðs­lista Við­reisnar, sem nú er á loka­metr­unum, ber merki þessa. Í þess­ari viku hefur verið til­kynnt um að Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, ætli að leiða annað Reykja­vík­ur­kjör­dæmið fyrir flokk­inn. Það hefði þótt óhugs­andi að for­maður slíkra hags­muna­sam­taka í atvinnu­líf­inu færi í fram­boð fyrir annan flokk en Sjálf­stæð­is­flokk­inn und­an­farna ára­tugi. Framboð Þor­steins er því reið­ar­slag fyrir flokk­inn.

Bjarni Benediktsson hefur leitt Sjálfstæðisflokkinn í gegnum tvennar kosningar. Í þeim hefur flokkurinn fengist minnsta fylgi sitt frá upphafi. Nú blasir við honum klofningsframboð á hægri væng stjórnmálanna sem gæti tekið enn meira fylgi frá Sjálfstæðisflokknum.
Bjarni Bene­dikts­son hefur leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum tvennar kosn­ingar. Í þeim hefur flokk­ur­inn feng­ist minnsta fylgi sitt frá upp­hafi. Nú blasir við honum klofn­ings­fram­boð á hægri væng stjórn­mál­anna sem gæti tekið enn meira fylgi frá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Það er fram­boð Pawels Bartoszek, pistla­höf­undar og stærð­fræð­ings ekki síður, en hann ætlar sér einnig sæti á lista flokks­ins í höf­uð­borg­inni. Pawel er hluti af Deiglu­hópnum svo­kall­aða, frjáls­lyndum armi sem starf­aði lengi innan ung­liða­hreyf­inga Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sam­ein­ast í kringum vefritið Deigluna.

Þá er ótalið mögu­legt fram­boð Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur fyrir Viðreisn. Fari hún fram fyrir flokk­inn mun hún leiða hann í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og mæta þar fyrr­ver­andi sam­herja sínum og vini Bjarna Bene­dikts­syni. Það að fyrrum vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fari fram sem odd­viti ann­ars stjórn­mála­flokks mun svíða mjög innan flokks­ins.

Jafnt kynjahlutfall á meðal oddvita

Viðreisn ætlar sér að vera með jafnt kynja­hlut­fall í efstu sætum fram­boðs­lista sinna. Líklegt verður að þykja að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður flokks­ins, leiði í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og að Þor­steinn Víglunds­son leiði í hinu. Ef kona leiðir í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er ljóst að konur munu einnig leiða í tveimur af þremur lands­byggð­ar­kjör­dæm­unum. Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, aðjúnkt við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, þykir lík­leg­ust til að vera í efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Í öðru sæti þar verður þá að öllum lík­indum Bjarni Halldór Janusson, for­maður ung­liða­hreyf­ingar Við­reisnar. Meiri óvissa er um hverjir muni skipa efstu sætin á lista flokks­ins í Norð­vestur- og Norð­aust­ur­kjör­dæm­unum en Gylfi Ólafsson heilsu­hag­fræð­ingur hefur sagt að hann sæk­ist eftir einu af efstu sæt­unum hjá flokknum í Norð­vestur.

End­an­legir fram­boðs­listar Við­reisnar verða kynntir á allra næstu dögum, og allir eiga þeir að liggja fyrir áður en ágúst er úti. Þá mun fyrst koma í ljós hversu alvar­lega Viðreisn nær að höggva í til­vist Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár