Stjórnmálaflokkur í dauðateygjunum leitar að sökudólgi

Færri virð­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una en eru skráðir í flokk­inn. Raun­veru­legar líkur eru á því að Sam­fylk­ingin nái ekki inn manni í næstu kosn­ingum. Og fáir flokks­menn virð­ast vera að horfa inn á við í leit að skýr­ingu á stöð­unni.

Hluti forystu Samfylkingarinnar.
Hluti for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sam­fylk­ingin var form­lega stofnuð í Borg­ar­leik­hús­inu 5. maí árið 2000. Hún hafði reyndar boðið fram sem kosn­inga­banda­lag þriggja flokka: Alþýðu­flokks, Alþýðu­banda­lags og Kvenna­lista árið áður og fékk þá 26,8 pró­sent atkvæða. Mark­miðið með stofnun flokks­ins var að sam­eina stjórn­mála­öfl á vinstri væng og miðju stjórn­mála­litrofs­ins og fá umboð kjós­enda til að taka for­ystu í lands­stjórn­inni. Mynda átti annan turn í íslenskum stjórn­málum til mót­vægis við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Í stuttu máli má segja að ekk­ert af höf­uð­mark­miðum Sam­fylk­ing­ar­innar hafi náðst. Flokknum hefur ekki tek­ist að verða stöð­ugur turn í íslenskum stjórn­málum, honum hefur ekki tek­ist að sam­eina vinstri­menn og miðju­fólk í breið­fylk­ingu jafn­að­ar­manna og honum hefur ein­ungis einu sinni tek­ist að vera með for­ystu í lands­stjórn­inni. Sú rík­is­stjórn, undir for­sæti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, náði að verða ein óvin­sælasta rík­is­stjórn lýð­veld­is­tím­ans. Vorið 2012 mæld­ist stuðn­ingur við hana rétt rúm­lega 28 pró­sent og hún end­aði sinn líf­tíma með því að haltra út kjör­tíma­bilið sem eig­in­leg minni­hluta­stjórn.

Síðan þá hefur staðan fjarri því batnað. Fylgið hefur haldið áfram að dala hratt og nú eru raun­veru­legar líkur á því að Sam­fylk­ingin geti horfið af þingi í næstu kosn­ingum, svo lágt er flokk­ur­inn að mæl­ast í könn­unum. Í ljósi þess að framundan er mik­il­væg­asta for­manns­kjör í sögu flokks­ins eftir nokkrar vikur, og þing­kosn­ingar sem snú­ast bók­staf­lega um líf og dauða flokks­ins eftir um fimm mán­uði, á sér stað mikil sjálfs­skoðun, að minnsta kosti á yfir­borð­inu. En hún virð­ist að miklu leyti snú­ast um að finna söku­dólga, bæði innan flokks og utan, fyrir því ástandi sem Sam­fylk­ingin er í. Ástandi sem vart er hægt að lýsa öðru­vísi en sem dauða­teygjum.

Margar rangar ákvarðanir

Það er í raun ótrú­legt hversu hratt hefur fjarað undan Sam­fylk­ing­unni á und­an­förnum árum. Í kosn­ing­unum 2003 fékk flokk­ur­inn 31 pró­sent atkvæða, 26,8 pró­sent fjórum árum seinna og meira að segja 29,8 pró­sent í alþing­is­kosn­ing­unum 2009, þótt þær hafi sann­ar­lega farið fram við afar sér­stakar aðstæður.

Í þeim kosn­ing­unum, sem kjós­endur not­uðu helst til að hafna valda­kerf­is­flokk­unum Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum, fékk Sam­fylk­ingin loks það umboð til að leiða rík­is­stjórn sem hún sótt­ist eftir. Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur stóð frammi fyrir erf­ið­asta verk­efni sem nokkur rík­is­stjórn hefur staðið frammi fyrir, end­ur­reisn og end­ur­skipu­lagn­ingu efna­hags­kerfis sem hafði hrunið. Margar ákvarð­anir hennar voru mjög mik­il­vægar og réttar. Aðrar bein­línis rangar og illa ígrund­aðar.

Tvær ákvarð­anir skiptu kannski mestu máli um að draga úr erindi flokks­ins. Önnur var sú að binda sig of fast við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sem lausn á öllum vanda­málum lands­ins. Ákvörð­unin var illa ígrunduð vegna þess að á þeim tíma sem sótt var um aðild var ekki meiri­hluti fyrir henni á meðal þjóð­ar­innar, innan þings­ins né innan rík­is­stjórn­ar­innar sjálfrar. Annar stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, var, að minnsta kosti að hluta, á móti aðild. Sú aðild­ar­veg­ferð sem ráð­ist var í á þessum veika grunni gat lík­lega aldrei endað nema á einn veg. Þótt skoð­ana­kann­anir hafi lengi sýnt að mun stærri hluti þjóð­ar­innar sé á móti aðild en með henni þá er meiri­hluti hennar hins vegar þeirrar skoð­unar að Íslend­ingar eigi að fá að kjósa um hvort að hætta hefði átt við umsókn­ar­ferlið eða ekki. Það er því grund­völlur til þess að fara í gegnum Evr­ópu­sam­bands­að­ild­ar­ferli með lýð­ræð­is­legt umboð frá þjóð­inni. Það umboð kaus rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna ekki að nýta sér og fyrir það líður Sam­fylk­ingin mjög í dag. Í raun má slá því föstu að sú leið sem valin var að fara varð­andi Evr­ópu­sam­bandsum­sókn­ina, að sækja um án lýð­ræð­is­legs umboðs eða með meiri­hluta þing­heims fylgj­andi aðild, hafi gert meira til að koma í veg fyrir mögu­lega aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu en nokkur önnur ákvörðun sem tekin hefur verið á stjórn­mála­svið­inu á und­an­förnum árum.

Hin ákvörð­unin var sú klára ekki vinnu við nýja stjórn­ar­skrá á síð­asta kjör­tíma­bili. Nokkrum mán­uðum áður en að kjör­tíma­bil­inu lauk, í októ­ber 2012, höfðu 64,2 pró­sent þeirra sem kusu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sagt að þeir vildu að til­lögur stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá. Það voru 73.408 manns. Á hinn bóg­inn mættu 36.252 manns á kjör­stað til að greiða atkvæði gegn nýrri stjórn­ar­skrá. Augljóst var að á meðal þeirra sem létu sig málið varða það mikið að þeir mættu á kjör­stað var yfir­gnæf­andi meiri­hluti fylgj­andi því að ný stjórn­ar­skrá yrði að veru­leika.

Fyrir þessi ákvarð­anir var flokknum refsað harka­lega í kosn­ing­unum 2013. Þar fékk hann ein­ungis 12,9 pró­sent atkvæða. Alls ákváðu 31 þús­und manns sem kusu Sam­fylk­ing­una 2009 að gera það ekki fjórum árum síðar. Þing­flokkur flokks­ins fór úr 20 í níu.

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tilkynnti að hann ætlaði að bjóða sig aftur fram, en hætti svo við það. Mynd: Birgir Þór
Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, til­kynnti að hann ætl­aði að bjóða sig aftur fram, en hætti svo við það. Mynd: Birgir Þór

Það afhroð sem Sam­fylk­ingin beið í þing­kosn­ing­unum 2013 var ekki ein­ungis stjórn­mála­legt og sál­fræði­legt áfall. Það var líka fjár­hags­legt áfall. Stór hluti af rekstri flokks­ins er drif­inn áfram af rík­is­fram­lögum sem ráð­ast af því hversu vel honum gengur í kosn­ingum. Á milli áranna 2013 og 2014 rúm­lega helm­ing­uð­ust þau fram­lög, sem gerðu það að verkum að draga þurfti mjög úr rekstr­ar­út­gjöldum Sam­fylk­ing­ar­innar.

Flokk­ur­inn stóð því frammi fyrir því að vera í þröngri fjár­hags­stöðu á sama tíma og hann var, að minnsta kosti út á við, í hug­mynda­fræði­legri krísu. Upplifun kjós­enda af Sam­fylk­ing­unni var nefni­lega ekki þannig að um væri að ræða breið­fylk­ingu jafn­að­ar­manna sem legði áherslu á jöfn tæki­færi, berð­ist fyrir betra og sann­gjarn­ara vel­ferð­ar­kerfi og gegn sífellt auk­inni mis­skipt­ingu auðs. Þvert á móti virt­ist flokk­ur­inn hverf­ast utan um lok­aðan hóp ein­stak­linga, sem í háð­ung voru kall­aðir „Epal-kommar“, og hafði bundið til­veru flokks­ins of fast við inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið og var í vand­ræðum með að finna flokknum per­sónu­leika að nýja þegar sú veg­ferð gekk ekki eftir. Í stuttu máli þá var elítu­bragur á Sam­fylk­ing­unni. Það var eins og að hún væri til fyrir þá sem mynd­uðu þing­flokk­inn, ekki eins og þeir væru að þjón­usta alla hina sem í flokknum eru.

Innanflokksátök milli einstaklinga

Á þess­ari til­vistakreppu hefur ekki verið tekið á þessu kjör­tíma­bili. Þótt meg­in­þorri Íslend­inga séu lík­lega ein­hvers konar jafn­að­ar­menn - í þeim skiln­ingi að þeir aðhyll­ast sterkt vel­ferð­ar­kerfi greitt af sam­neysl­unni og jöfn tæki­færi en eru líka fylgj­andi kap­ít­al­ísku mark­aðs­hag­kerfi – þá segj­ast ein­ungis örfá pró­sent vera til­búin til að kjósa flokk­inn sem á skrá­setta vöru­merkið Jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands.

Í stað þess að ráð­ast í harka­lega skoðun á eigin vinnu­brögðum og nálgun, í stað þess að skerpa mál­efna­stöðu sína þannig að hún liggi fyrir sem skýr val­kostur fyrir kjós­endur sem eru ósáttir við stefnu sitj­andi stjórn­valda, hefur flokk­ur­inn eytt þessu kjör­tíma­bili í inn­an­flokksá­tök milli ein­stak­linga.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir bauð sig óvænt fram gegn Árna Páli á síðasta landsfundi. Í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í vikunni sagði: . „Digurmæli og samsæriskenningar helstu stuðningsmanna formannsins eftir kjörið verða lengi í minnum höfð. Í stað þess að horfast í augu við vandann, var tilvalið að kenna öðrum um hann.“
Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir bauð sig óvænt fram gegn Árna Páli á síð­asta lands­fundi. Í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í vik­unni sagði: . „Dig­ur­mæli og sam­sær­is­kenn­ingar helstu stuðn­ings­manna for­manns­ins eftir kjörið verða lengi í minnum höfð. Í stað þess að horfast í augu við vand­ann, var til­valið að kenna öðrum um hann.“

Og hann hefur gert það að mestu bak­við luktar dyr, sem styður enn þá til­finn­ingu sem margir hafa fyrir flokknum að í honum þrí­fist elíta.

Fylgið hægt og rólega verið að hverfa

Nú er staðan sú að kos­inn verður nýr for­maður á allra næstu vikum. Þing­kosn­ingar verða haldnar eftir fimm mán­uði og Sam­fylk­ingin mælist með undir átta pró­sent fylgi í kosn­ingum. Flokk­ur­inn hefur í raun verið í frjálsu fylg­is­falli í nokkuð langan tíma og haldi sú þróun áfram er raun­veru­lega mögu­legt að Sam­fylk­ingin nái ekki fimm pró­sent atkvæða í októ­ber og þurrk­ist þar með út af þingi, 17 árum eftir að flokk­ur­inn bauð fyrst fram sem breið­fylk­ing jafn­að­ar­manna. Það þýðir að mögu­lega munu ekki einu sinni þeir 16 þús­und sem skráðir eru í Sam­fylk­ing­una allir að kjósa flokk­inn.

Margir hafa verið kall­aðir til sem söku­dólgar fyrir þessu gengi. Innan efsta lags Sam­fylk­ing­ar­innar vildu margir meina að höfnun kjós­enda væri bundin við for­mann­inn, Árna Pál Árnason. Sjálfur leit­aði Árni Páll skýr­inga víða á stöðu flokks­ins. Í júní 2015 við­ur­kenndi hann að það væri áfell­is­dómur yfir sér sjálfum og flokknum að hafa ekki náð í það fylgi sem fór fyrst til Bjartrar fram­tíðar en færð­ist svo yfir til Pírata. Þar væri um að ræða kjós­endur sem tal­aði fyrir opnu sam­fé­lagi, áfram­hald­andi aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu, beinu lýð­ræði, stjórn­kerf­isum­bótum og rétt­indum minni­hluta­hópa. Allt hafi þetta verið mál­efni sem Sam­fylk­ingin hefði barist fyrir „á hæl og hnakka“ frá því að hún var stofnuð. Samt vildu þessir kjós­endur ekki kjósa flokk­inn. Ástæðan væri sú rang­hug­mynd að Sam­fylk­ingin væri hluti af fjór­flokknum, þegar hún hefði verið stofnuð til höf­uðs honum. Bregðast þyrfti við strax og Sam­fylk­ingin þyrfti að verða sú fjölda­hreyf­ing sem hún var stofnuð til að vera.

Nokkrum mán­uðum áður hafði farið fram lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar. Þar fékk Árni Páll mjög óvænt mót­fram­boð frá Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur dag­inn áður en for­manns­kosn­ing fór fram. Einungis þeir sem sátu lands­fund­inn höfðu atkvæð­is­rétt, en þeir voru færri en 500. Það var ekki til að draga úr upp­lifun fólks á því að um elítu­stjórn­mála­flokk væri að ræða, þegar efsta lagið tókst með þessum hætti á um völdin. Árni Páll sigr­aði að lokum með einu atkvæði, fékk 241 á móti 240, og við það má segja að for­manns­ferli hans hafi verið lokið, þótt hann sitji enn form­lega fram í byrjun næsta mán­aðar. Átaka­lín­urnar í flokknum opin­ber­uð­ust mjög greini­lega í þessum for­manns­kosn­ingum.

Árni Páll hefur síðar ítrekað kennt mót­fram­boði Sigríðar Ingi­bjargar og afleið­ingum þess um að gengi flokks­ins hafi dalað hratt á und­an­förnum mán­uðum. Sigríður Ingi­björg hefur hafnað því og sagt að fylgið hafi þegar verið byrjað að hverfa. Bæði hafa nokkuð til síns máls. Það er rétt hjá Árna Páli að Sam­fylk­ingin hafi mælst ágæt­lega í skoð­ana­könn­unum á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins. Nokkrum dögum fyrir lands­fund­inn í fyrra mæld­ist fylgi flokks­ins hins vegar 12,4 pró­sent, sem er minna en hann hafði fengið í kosn­ing­unum 2013. Nokkrum dögum eftir lands­fund­inn mæld­ist fylgi flokks­ins 11,4 pró­sent og í ágúst var það komið niður fyrir tíu pró­sent. Auk þess var Árni Páll með mjög lítið per­sónu­fylgi. Í könnun MMR sem birt var í lok apríl 2015 sögðu til dæmis þrjú pró­sent aðspurðra að hann væri fæddur leið­togi.

Landsfundi flýtt

Það var öllum ljóst að Sam­fylk­ingin þurfti að taka rót­tækt á ástandi flokks­ins. Í ár var ákveðið að flýta lands­fundi og halda for­manns­kosn­ingar. Í til­kynn­ingu var gefið sterk­lega í skyn að nota þyrfti lands­fund­inn til mál­efna­vinnu og til að ræða kosn­inga­á­herslur. Síðan að þessi til­kynn­ing var send út hefur hins vegar lítið verið rætt um mál­efni, og mun meira verið rætt um per­sónur.

Fimm hafa til­kynnt að þeir vilji verða næsti for­maður flokks­ins, þótt Árni Páll hafi síðan dregið fram­boð sitt til baka. Þrír þeirra sem sækj­ast eftir for­mennsku eru hluti þess þing­flokks sem kjós­endur hafa verið að hafna sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, annað hvort sem sitj­andi þing­menn eða sem vara­þing­menn. Sá eini sem ekki er hluti af núver­andi valda­lagi flokks­ins er Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, 27 ára bæj­ar­full­trúi af Sel­tjarn­ar­nesi.

Í við­tali við síð­asta helg­ar­blað DV end­ur­tók Árni Páll þá sögu­skýr­ingu sína að það hefði gengið mjög vel hjá flokknum fram að síð­asta lands­fundi, þegar óvænt mót­fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur gegn honum kom fram. Árni Páll telur enn fremur að Sam­fylk­ingin hafi mikla sér­stöðu í íslenskum stjórn­málum en að hún hafi ekki náð að nýta hana með nægi­lega skýrum hætti. Ásýnd flokks­ins hafi ekki verið sam­hent. Það sé ekki nóg að skipta um for­mann heldur þurfi ný vinnu­brögð og nálgun. Í máli Árna Páls kom einnig fram að hann telur Sam­fylk­ing­una vera eina núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­aflið sem mælist með til­veru á næsta kjör­tíma­bili sem geti leitt rík­is­stjórn.

Skömmu áður hafði for­manns­fram­bjóð­and­inn Magnús Orri Schram skrifað grein í Frétta­blaðið þar sem hann sagði að leggja ætti hana niður og stefna að því að stofna „nýja nútíma­lega stjórn­mála­hreyf­ingu“. Sam­fylk­ingin þurfi að taka veru­legum breyt­ingum á næstu vikum til að geta gengt lyk­il­hlut­verki sem val­kostur jafn­að­ar­fólks í kosn­ing­unum í haust. Vinni hann for­manns­kosn­ing­una í byrjun júní muni Magnús Orri hefja sam­tal við aðra stjórn­mála­flokka og fólk utan flokka, um mótun nýrrar hreyf­ingar með áherslu á auð­lindir í almanna­þágu, umhverf­is­vernd, nýja stjórn­ar­skrá, jöfn tæki­færi, öfl­ugt vel­ferð­ar­kerfi og sam­keppni í heil­brigðu atvinnu­líf­i.

Ef menn­irnir tveir, frá­far­andi for­maður og einn þeirra sem vill taka við kefl­inu, töldu að þetta upp­gjör þeirra við stöðu flokks­ins myndi njóta breiðs stuðn­ings þá varð þeim ekki af ósk sinni. Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður flokks­ins, setti stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem sagði:

Sigríður Ingi­björg sendi yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla vegna við­tals DV við Árna Pál þar sem hún ásakar frá­far­andi for­mann sinn um að reyna að skrifa sög­una eftir sínu nefi, sér­stak­lega varð­andi for­manns­fram­boð hennar. Þar sagði m.a.: „Eftir því sem nær dró lands­fundi varð ljóst að þátt­taka yrði í algjöru lág­marki og vitað að margir myndu lýsa óánægju sinni með for­mann­inn með því að skila auðu í for­manns­kjöri á fund­inum. Óánægjan og doð­inn í flokknum var skelfi­legur. Ég tók því þá ákvörðun síð­degis á fimmtu­degi fyrir lands­fund, þann 19. mars, að gefa kost á mér til for­mennsku. Við­brögðin voru miklu sterk­ari og jákvæð­ari en ég bjóst við, ekki bara frá Sam­fylk­ing­ar­fólki heldur ýmsu fólki á vinstri vængnum. Á lands­fundi kom í ljós hversu djúp­stæð óánægjan var, enda sigr­aði sitj­andi for­maður kjörið með aðeins einu atkvæði. Dig­ur­mæli og sam­sær­is­kenn­ingar helstu stuðn­ings­manna for­manns­ins eftir kjörið verða lengi í minnum höfð. Í stað þess að horfast í augu við vand­ann, var til­valið að kenna öðrum um hann.“

Katrín Jakobsdóttir er einn vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar í dag. Hún er líklegust til að verða forsætisráðherra takist stjórnarandstöðuflokkunum að ná völdum eftir næstu kosningar.
Katrín Jak­obs­dóttir er einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður þjóð­ar­innar í dag. Hún er lík­leg­ust til að verða for­sæt­is­ráð­herra tak­ist stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum að ná völdum eftir næstu kosn­ingar.

Það virð­ist því alls ekki vera svo að inn­an­flokksá­tökum innan Sam­fylk­ing­ar­innar sé lokið. Því fer raunar fjarri. Og það virð­ist heldur ekki vera mik­ill vilji hjá þorra þing­flokks­ins, sem er elsti þing­flokkur lands­ins, til að víkja fyrir yngra fólki. Líklega verða allir sem til­heyra honum utan tveggja í fram­boði í haust. Fólkið sem talar um hvort annað sem vanda­málið ætlar nær allt að sækj­ast eftir áfram­hald­andi þing­setu.

Svo virð­ist, að minnsta kosti á orðum Árna Páls og Magnúsar Orra, að Sam­fylk­ingin ætli að veðja á að nýtt vöru­merki og nafn, ásamt kosn­inga­banda­lagi við vin­sælli flokka, muni tryggja áfram­hald­andi til­veru hennar. Árni Páll virð­ist auk þess telja að eng­inn annar stjórn­ar­and­stöðu­flokkur geti leitt rík­is­stjórn en Sam­fylk­ingin, hvort sem hún muni heita það í haust eða eitt­hvað annað.

Það eru dig­ur­bark­ar­legar yfir­lýs­ingar í ljósi þess að flokk­ur­inn er nán­ast ekki með neitt fylgi og þegar fylgi Pírata fór að minnka ( það er enn í kringum 30 pró­sent) þá færð­ist það yfir til Vinstri grænna, ekki til Sam­fylk­ing­ar­innar. Ástæðan er mögu­lega sú að þeir kjós­endur sem ætla sér að styðja stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna til valda eru að færa fylgi sitt til þess flokks sem inni­heldur leið­tog­ann sem það vill að leiði þá rík­is­stjórn. Sá leið­togi er Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður þjóð­ar­innar.

Því verður að telj­ast ólík­legt að Vinstri grænir eða Píratar - sem saman mæl­ast með yfir helm­ings­fylgi - muni taka umleit­unum Sam­fylk­ing­ar­innar - sem mælist með undir átta pró­sent fylgi - um að móta nýja stjórn­mála­hreyf­ingu þar sem Sam­fylk­ing­ar­fólk er í for­ystu opnum örmum. Eina sem Sam­fylk­ingin kemur með að því borði er slatti af þing­mönnum sem lítil eft­ir­spurn virð­ist vera eftir, en eiga það allir sam­eig­in­legt að vilja rosa­lega mikið halda áfram í þing­mennsku. Mun lík­legra er að óform­legt kosn­inga­banda­lag verði myndað meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna sem felst í vil­yrði um að starfa saman eftir kosn­ingar.

Sam­fylk­ingin mun því, enn sem komið er, ekki ná að færa til­vistakreppu sína inn í nýjan stjórn­mála­hreyf­ingu. Hún þarf sjálf að takast á við hana áður en að slíkt getur orðið raun­hæfur mögu­leiki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár