Óli vill taka við forystusætinu af Steingrími í Norðausturkjördæmi

Óli Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi, hefur boðað að hann vilji leiða fram­boð VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Kári Gautason fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG hefur einnig hug á sæti ofar­lega á lista í þessu sterka vígi flokks­ins.

Óli Halldórsson og Kári Gautason hafa í vikunni lýst því yfir að þeir vilji vera í fararbroddi hjá VG í Norðausturkjördæmi. Óli vill leiðtogasæti listans.
Óli Hall­dórs­son og Kári Gautason hafa í vik­unni lýst því yfir að þeir vilji vera í far­ar­broddi hjá VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Óli vill leið­toga­sæti list­ans.

Óli Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Norð­ur­þingi, boðar í kvöld að hann muni sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu á fram­boðs­lista Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar.[links]

Ljóst er að nýtt and­lit verður í því sæti fyrir næstu kosn­ingar, en Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins til­kynnti um liðna helgi að hann ætl­aði sér að hætta beinni stjórn­mála­þátt­töku eftir kjör­tíma­bilið sem er að líða.

Hann hefur leitt VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi allt frá því að flokk­ur­inn bauð fyrst fram til Alþingis árið 1999.

Fyrir í kjör­dæm­inu er Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, sem verið hefur í öðru sæti á lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í und­an­förnum kosn­ingum og setið á þingi frá 2013.

Framkvæmdastjóri þingflokksins ætlar einnig fram

Óli er ekki einn um að vilja koma inn í for­ystu­sveit­ina í kjör­dæm­inu, því í gær greindi Kári Gautason, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna og Vopn­firð­ingur, sömu­leiðis frá því að hann myndi gefa kost á sér „ofar­lega“ á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu fyrir kom­andi kosn­ingar.

[adspot]

Óli segir í til­kynn­ingu á Facebook í kvöld að hann muni bjóða sig fram til þess að vera í for­ystu VG á sínum heima­velli og „leiða fram­boðið“, en hann er vara­þing­maður flokks­ins í dag og hefur tekið sæti á þingi á þessu kjör­tíma­bili.

Hann bauð sig fram til þess að verða vara­for­maður Vinstri grænna á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar haustið 2017, en laut þá í lægra haldi fyrir Edward H. Huijbens, sem gegndi emb­ætt­inu þar til í fyrra, er Guð­mundur Ingi Guð­brands­son utan­þings­ráð­herra flokks­ins tók við því kefli.

„Við fjöl­skyldan höfum feng­ist við ýmis verk­efni und­an­farið og erum til­búin í nýtt ævin­týri. Hvað félagar mínir vilja svo gera með þetta kemur í ljós seinna í vetur þegar hreyf­ingin velur sitt byrj­un­ar­lið,“ segir Óli í fram­boðstil­kynn­ingu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár