Skipasmiðirnir hans Kim Jong-un

Yfir­maður rann­sókn­ar­nefndar Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna segir það brot á alþjóð­legum refsi­að­gerðum gegn Norður-Kóreu að Norð­ur­kóreskir verka­menn í tug­þús­unda­tali vinni víða um heim og laun þeirra renni í rík­is­sjóð heima­lands­ins.

Í sept­em­ber á síð­asta ári sendi blaða­maður danska blaðs­ins Ingeniören, sem fjallar einkum um alls kyns tækni­leg mál­efni, fyr­ir­spurn til danska Varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Spurt var, og svars kraf­ist, hvort rétt væri að Norð­ur­kóreskir verka­menn ynnu að smíði her­skips fyrir danska flot­ann í pólsku skipa­smíða­stöð­inni Crist Shipyard. Flotinn hafði samið um smíði skips­ins við dönsku skipa­smíða­stöð­ina Karsten­sens Skib­sværft, sem hafði síðan samið um smíði skips­skrokks­ins við pólska fyr­ir­tækið. Blaða­mað­ur­inn hafði lesið grein um pólsku skipa­smíða­stöð­ina í norsku blaði, Teknisk Ukeblad, þar sem danska her­skipið var nefnt.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið sendi fyr­ir­spurn blaða­manns­ins til inn­kaupa- og eft­ir­lits­nefndar ráðu­neyt­is­ins. Svar barst fjórum dögum síðar: ekk­ert væri til í því að Norð­ur­kóreskir verka­menn ynnu, eða hefðu unnið, að smíði skips­ins. Fram kom í svari ráðu­neyt­is­ins til blaða­manns­ins hjá Teknisk Ukeblad að starfs­menn inn­kaupa- og eft­ir­lits­nefndar hefðu mörgum sinnum heim­sótt pólsku skipa­smíða­stöð­ina, en einsog stóð í svari nefnd­ar­innar til ráðu­neyt­is­ins „hefðu þeir ekki séð, né haft grun um, að aðrir en pólskir, eða aðrir evr­ópskir starfs­menn ynnu að smíð­inni.

Síðar kom í ljós að heim­sóknir eft­ir­lits­nefnd­ar­innar voru til­kynntar fyr­ir­fram og til­gangur þeirra heim­sókna var að fylgj­ast með smíð­inni en ekki aðbún­aði og þjóð­erni starfs­manna. Eft­ir­lits­nefndin skrif­aði Karsten­sens og óskaði eftir að fyr­ir­tækið fengi stað­fest­ingu pólsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar varð­andi spurn­ing­una um þjóð­erni starfs­manna sem unnið hefðu að smíði danska her­skips­ins. Svar Pól­verj­anna hjá Crist Shipyard var stutt og laggott: engir Norð­ur­kóreskir starfs­menn hafa unnið að smíði þessa skips. Norski blaða­mað­ur­inn hjá Teknisk Ukeblad aðhafð­ist ekki frekar, eftir þetta afdrátt­ar­lausa svar. Í bili.

Upplýsingar pólska vinnueftirlitsins

Norski blaða­mað­ur­inn og kollegar hans hjá Teknisk Ukeblad voru ekki alls kostar sáttir við svörin frá Pól­verj­unum og höfðu sam­band við pólska vinnu­eft­ir­litið. Í gögnum þess stóð, svart á hvítu, að Crist Shipyard hefði haft 45 Norð­ur­kóreska starfs­menn í vinnu við tíu verk­efni. Eitt þess­ara verk­efna var smíði skips­skrokks­ins NB428, danska her­skips­ins sem síðar fékk nafnið Lauge Koch.

Norð­ur­kóresku starfs­menn­irnir voru ráðnir fyrir milli­göngu vinnu­miðl­un­ar­innar Armex, sem hafði ráðið menn­ina til starfa gegnum Norð­ur­kóreskt fyr­ir­tæki Rungrado. Rungrado er undir stjórn verka­manna­flokks Norður-Kóreu og er þekkt fyrir að „flytja út“ til fjöl­margra landa tug­þús­undir verka­manna sem vinna langan vinnu­dag og búa oftar en ekki í vinnu­búðum sem telj­ast ekki mann­sæm­andi á vest­rænan mæli­kvarða. Laun þess­ara verka­manna renna að stærstum hluta til Norð­ur­kóreska rík­is­ins og eru mik­il­væg gjald­eyr­is­tekju­lind.

Danska sjónvarpið tekur málið upp

Snemma á þessu ári hafði DR, Danska sjón­varpið, sam­band við inn­kaupa- og eft­ir­lits­nefnd Varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og óskaði svara við sömu spurn­ingum og blaða­maður Teknisk Ukeblad hafði borið upp við ráðu­neytið.

Svörin voru þau sömu og áður: eng­inn Norð­ur­kóreskur starfs­maður hafði komið nálægt smíði danska her­skips­ins. Það sem danska varn­ar­mála­ráðu­neytið vissi ekki var að starfs­menn DR höfðu farið í Crist Shipyard skipa­smíða­stöð­ina í Gdynia. Þar höfðu margir starfs­menn stað­fest að þeir hefðu unnið með Norð­ur­kóreskum verka­mönnum, meðal ann­ars við smíði danska her­skips­ins. Þótt þessar upp­lýs­ingar væru lagðar fyrir Varn­ar­mála­ráðu­neytið hélt ráðu­neytið fast við fyrri skýr­ingar.

Smíði skipshluta er ekki sama og smíði skips

Danska sjón­varpið sýndi fyrir nokkrum dögum þátt um „Lauge Koch málið“ eins og það er kallað. Þátt­ur­inn vakti mikla athygli og margir danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítar­lega um málið. Dag­blaðið Information hafði sam­band við Crist Skipyard varð­andi Norð­ur­kóresku verka­menn­ina, Crist vís­aði á starfs­mann áður­nefnds Armex. Sá kvaðst ekki þekkja neitt til þessa máls þrátt fyrir að nafn hans sé víða að finna í skjölum varð­andi verka­menn­ina. Þegar blaða­menn Information gengu á starfs­mann eft­ir­lits­nefndar Varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins með þessar upp­lýs­ingar og fleiri, sneri ráðu­neytið skyndi­lega við blað­inu, til hálfs mætti kannski segja.

Neitaði að Norð­ur­kóreskir verka­menn hefðu unnið að skipa­smíð­inni, EN hugs­an­legt væri að þeir hefðu unnið að smíði „afmark­aðra skips­hluta (præfabrikation) sem væri allt annað en að smíða skip. Information eft­ir­lét les­endum að túlka þetta svar. Nú var athygli þing­manna hins­vegar vakin og þeir heimta nú skýr­ingar.

Varnarmálaráðherrann tregur til svars

Danskir frétta­menn hafa ítrekað reynt að ná tali af Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra. Þótt hann sé venju­lega fús að tjá sig hefur hann í þessu máli nán­ast verið þög­ull sem gröfin. Sendi frá sér tölvu­póst þar sem hann sagði að „ef það reynd­ist rétt að verka­menn frá Norður-Kóreu hefðu unnið að smíði dansks her­skips væri það skandall.“ Dönsku miðl­arnir segja að ráð­herr­ann þurfi ekki að vera með neitt „ef“ í þessu máli. Það liggi fyrir að Pól­verjar, þar á meðal Crist Shipyard, hafi árum saman haft Norð­ur­kóreska nauð­ung­ar­verka­menn í vinnu, það hafi meðal ann­ars Alþjóða verka­manna­sam­bandið stað­fest.

Og nú hefur komið í ljós að Norð­ur­kóresku verka­menn­irnir hafi auk her­skips­ins Lauge Koch unnið að smíði tveggja sams­konar skipa fyrir danska flot­ann.

Þingmenn krefjast rannsóknar

Þingmenn fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokka á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hafa nú kraf­ist þess að Varn­ar­mála­ráðu­neytið rann­saki málið, til hlítar. Ráðu­neytið svar­aði strax, vildi fá að vita hvað nákvæm­lega þing­menn vildu fá að vita og bætti svo við að það væri erfitt að rann­saka þetta mál því svo langt væri um liðið.

Þing­maður sem eitt dönsku blað­anna ræddi við sagði að svar ráðu­neyt­is­ins væri dæmi­gert svar emb­ætt­is­manna, þeim væri nær að rann­saka málið en vera með ein­hvern und­an­slátt. Þótt þeir gætu sett sig á háan hest gagn­vart frétta­mönnum þýddi slíkt ekki þegar þing­menn ættu í hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár