Konur í þjónustustörfum lýsa hegðun Jóns Baldvins

Stundin birtir frá­sagnir kvenna sem lýsa því að Jón Baldvin Hanni­bals­son hafi áreitt þær eða sam­starfs­menn sína kyn­ferð­is­lega. Konurnar voru allar í þeim aðstæðum að veita honum þjón­ustu á veit­inga­stöðum, sam­komum eða við önnur afgreiðslu­störf. Vilja þær styðja við þær sjö konur sem þegar hafa stigið fram undir nafni.

Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram
Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram Sögur af meintri kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Baldvins ná yfir rúm­lega hálfrar aldar tíma­bil. Mynd: MBL

Konur í þjón­ustu­störfum eru meðal þeirra sem hafa deilt sögum sínum af áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, í MeToo-hópi á Facebook und­an­farnar vikur. Konurnar lýsa því að Jón Baldvin hafi áreitt þær eða sam­starfs­menn sína kyn­ferð­is­lega þar sem þær hafi veitt honum þjón­ustu á veit­inga­stöðum, sam­komum eða við önnur afgreiðslu­störf.

Stundin birtir nú frá­sagn­irnar eftir sam­töl við kon­urnar og með leyfi þeirra. Frá­sagn­irnar eru birtar á þeim grund­velli að þær lýsa upp­lifun fjölda kvenna af athæfi eins áhrifa­mesta stjórn­mála­manns Íslands á síð­ustu öld, og að sam­ræmi er í frá­sögnum þeirra sem lýsir hegð­un­ar­mynstri valda­manns af sama meiði og til umræðu hefur verið í sam­hengi við MeToo-bylt­ing­una hér­lendis sem erlendis.

Eitt atvikið átti sér stað á bar í mið­borg Reykja­víkur árið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár