Verðum að endurskoða afstöðu okkar til hins góða og eftirsóknarverða

Guðni Elísson fjall­aði um mann­inn sem dýr sem raskaði jafn­vægi í erindi sínu á lofts­lags­deg­inum.

Guðni Elísson
Guðni Elísson Mynd: Skjáskot/RÚV

„Í ein­hverjum skiln­ingi þá er vandi lofts­lags­mál­anna sá að við verðum á ein­hvern hátt að end­ur­skoða afstöðu okkar til hins góða – end­ur­skoða afstöðu okkar til hins eft­ir­sókn­ar­verða ef við ætlum að búa í hag­inn fyrir fram­tíð­ina og kom­andi kyn­slóðir.“

Þetta kom fram í máli Guðna Elís­sonar, pró­fess­ors í íslensku við Háskóla Íslands og stofn­anda verk­efn­is­ins Earth101, á lofts­lags­deg­inum, ráð­stefnu sem Umhverf­is­stofnun stóð fyrir í Hörpu í síð­ustu viku.

Erindi Guðna bar heitið „Maðurinn er dýr sem raskar jafn­vægi. Um það sem stefnir upp og það sem stefnir niður“. Hann hóf mál sitt á því að segja að það gæti verið snúið að halda fyr­ir­lestur með gröfum því ein­hvern tím­ann hefði hann heyrt að ákveð­inn fjöldi áhorf­anda tap­að­ist í hvert skiptið sem sýnd væru gröf.

Erfitt að fara „frá vitsmununum yfir í hjartastöðvarnar“

Guðni sagði jafn­framt að þegar rætt væri um lofts­lags­málin þá væri stundum erfitt að fara „frá vits­mun­unum yfir í hjarta­stöðv­arnar“. Það væri erfitt að til­einka sér gröfin „á ein­hvers konar hátt sem mann­eskja“.

Las hann í fram­hald­inu upp ljóð eftir eig­in­konu sinnar Öldu Björk Valdi­mars­dóttur en hún gaf nýlega út ljóða­bók þar sem hún veltir fyrir sér hnita­kerfi vís­ind­anna út frá öðru­vísi sjón­ar­horni.

Hann spurði hvað það merkti að segja að mað­ur­inn væri dýr sem raskaði jafn­vægi. „Hvað þýðir það að tala um jafn­væg­is­leit í þessu sam­hengi?“

Hann setti á skjá­inn graf sem hann kall­aði 800.000 ár af jafn­vægi. Það sýndi magn koltví­sýr­ings í and­rúms­loft­inu á þessum tíma. Grafið sýndi að „dal­irnir“ væru ísaldir og svo stutt hlý­inda­skeið inn á milli.

„Ef við vildum tala um jafn­vægi út frá jafn­vel enn stærri hlutum – tala um stóra jafn­vægið og stóru breyt­ing­arnar – þá gætum við haldið út þennan ás átta­tíu sinnum lengra alveg út í sjó og þá kæmum við að síð­asta stóra jafn­væg­is­rof­inu, ekki satt, þegar loft­steinn­inn skall á jörð­inni og þurrk­aði út risa­eðl­urnar,“ sagði hann og benti á lárétta ásinn.

„En þetta er sem sagt jörð í til­teknu jafn­vægi. Þetta reyndi ekki mikið á vist­kerfi jarð­ar­innar en það má kannski segja sem svo að ísaldir séu óhent­ugar fyrir okkur, mann­skepn­una. Þær henta okkur ekki vel þegar við erum að íhuga lífs­skil­yrðin á jörð­inni og það vill svo vel til að við verðum til sem teg­und ein­hvers staðar hérna á þriðj­ungi áss­ins.

Kannski má segja enn­frekar að við verðum til síð­ustu 10.000 árin en þá hefst nýja hlý­inda­skeiðið upp af akur­yrkju, borg­ar­myndun, hægt og rólega. Við búum til rit­mál og svo getum við sagt að þar sem 0 er og 2008, hjá þessum litla punkti þá verðum við líka til sem ein­stak­lingar því að við þurfum ekki að fara nema svona 2.500 ár aftur í tím­ann til þess að finna upp­runa flestra trú­ar­bragða, heim­spek­innar, bók­mennt­anna og tón­list­ar­innar. Vísindin verða til á þessum tíma, það er að segja allt sem við notum í raun­inni til að skil­greina okkur sem ein­stak­linga verður til á þessum tíma.“

Alltaf verið sveiflur en samt stöðugleiki

Guðni sagði að vissu­lega hefðu verið sveiflur í hitafar­inu síð­ustu 10.000 árin – við gerðum alltaf ráð fyrir sveiflum. „Við söfnum mat­vælum vegna þess að við gerum ráð fyrir hörðum árum. Trú­ar­brögðin ganga svo­lítið út á þetta, ekki satt? Vondu árin og góðu árin, þau ganga út á fantasí­una um jafn­vægi. Í Eden forðum var eilíft vor, ekki of heitt, ekki of kalt. Það var nægur matur og maður þurfti ekki einu sinni að hafa áhyggjur af því að vera étinn sjálfur því að það voru allir vegan í Eden.

En að sama skapi þá gátum við svo­lítið treyst á veð­ur­farið. Við gátum hannað okkar heim í kringum stabílt veð­ur­far. Við vissum hvar við áttum að rækta hveiti, hvar við áttum að rækta bygg og hrís­grjón. Borg­ar­myndun verður ein­hvers staðar nálægt strand­lengj­unni þannig að við getum farið að stunda fisk­veiðar og svo fram­vegis. Og úr þessu öllu rís svo menn­ingin okkar líka, út úr þessum stöð­ug­leika, út úr þess­ari hug­mynd og til­finn­ingu fyrir jafn­vægi.“

Breytingarnar verða að vera meiri og róttækari

Guðni benti á að mann­kynið raskaði núna þessu jafn­vægi. „Við erum á leið­inni upp á hraða sem er slíkur að hann er áhyggju­efni.“ Hann sagði að gamla jafn­vægið myndi raskast var­an­lega og á svo rót­tækan hátt að ekki yrði aftur snúið.

„Þessar miklu breyt­ingar þær gera það líka að verkum að við þurfum á ein­hvern hátt að breyta okkar venju­bundna lífi, okkar dag­legu til­vist, og ef við hugsum um þetta sem ein­hvers konar leið til að auka á vel­megun okkar þá kemur líka skýr­ingin á því, því þetta er upp­bygg­ingin á efna­hagnum.

Þá sjáum við líka hvers vegna við erum hik­andi við það að stoppa og eftir því sem við frestum lengur og lengur því að takast á við vand­ann þá verða breyt­ing­arnar sem við verðum að gera á okkar sam­fé­lögum meiri og rót­tæk­ari,“ sagði hann.

Guðni sagði jafn­framt að vit­neskjan um að draga þyrfti úr losun gróð­ur­húsa­teg­unda hefði verið til staðar lengi og þess vegna væri iðu­lega horft til grænu tækni­fram­far­anna til að leysa málin. „Vesenið við þær liggur ein­fald­lega í því að ef við hugsum um grænu orku­upp­bygg­ing­una þá nær hún aldrei að dekka umframorku­þörf­ina sem verður á hverju ári, það er að segja með þeirri veld­is­aukn­ingu sem verður í til dæmis vind- og sól­ar­orku þá náum við ekki að dekka við­bót­ar­orku­þörf­ina. Á hverju ári losum við meira af jarð­efna­elds­neyti en áður sem er þvert á það sem við búumst við þegar við ímyndum okkur það að nýja orkan leysi þá gömlu af hólmi.“

Í einhverjum skilningi verður heilbrigðiskerfið að vandamáli

Guðni fjall­aði í erindi sínu um sem­ents­notkun en hann sagði að hún væri um það bil 5 pró­sent af heild­ar­losun heims­ins. „Vegna þess að í Banda­ríkj­unum á 20. öld­inni þá los­uðu þeir í kringum 4,5 gígatonn af koltví­sýr­ingi í gegnum sem­entið og þið getið kannski ímyndað ykkur hvað þetta er mikið af sem­enti. Ég sem bók­mennta­fræð­ingur get sagt að þetta er rosa­lega mikið sem­ent,“ sagði hann og upp­skar hlátur.

„En í sam­an­burð­inum þá los­uðu Kín­verjar milli 2011 og 2013 6,6 gígatonn sem er þrjá­tíu sinnum meira af rosa­lega miklu sem­enti“ sagði hann og spurði í fram­hald­inu í hvað allt þetta sem­ent færi.

„Það fer í það að búa til nútíma­inn­viði í stóru borg­irnar, í mennta­kerfið, í flug­vell­ina, í veg­ina og í heil­brigð­is­kerfið. Meira að segja heil­brigð­is­kerfi verður problemat­ískt í þessu sam­hengi, vegna þess til dæmis að bók­mennta­fræð­ingar sem lifa fram að fer­tugu losa ekki eins mikið og bók­mennta­fræð­ingar sem ná átta­tíu og fimm ára aldri, þannig að í ein­hverjum skiln­ingi orðs­ins verður heil­brigð­is­kerfið að vanda­máli ef það fylgir ekki ákveð­inn annar skiln­ingur.“

Hagvaxtartrúin fráleit

Guðni sagði jafn­framt að margir stýrð­ust af þeirri trú að ekk­ert gæti komið fyrir þá – þetta væri trú á hag­vöxt­inn og að allt myndi ganga upp.

Hann lauk erindi sínu á því að lesa upp annað ljóð eftir eig­in­konu sína, Öldu Björk.

„Við getum alveg velt því fyrir okkur hvernig til dæmis hag­vaxt­ar­trúin er á ein­hvern hátt jafn frá­leit og hug­myndin sem birt­ist í Völuspá um jörð sem rís eftir heims­slitin eða hug­myndin um end­ur­komu Krists sem komi niður til jarð­ar­innar og leysti okkur frá öllu böli. En þetta er þá í ein­hverjum skiln­ingi orðs­ins trúin sem felst í eft­ir­sókn­inni eftir hinu góða,“ sagði Guðni og greindi frá því að hann end­aði flesta fyr­ir­lestra sína á því að ræða ham­ingju­leit­ina og á til­vitnun frá Mery Wollstonecraft:

„Lítill vafi leikur á að eng­inn velur illsk­una illsk­unnar vegna. Menn vill­ast bara á henni og ham­ingj­unni, hinu góða sem þeir leita.“

Guðni sagði að í ein­hverjum skiln­ingi orðs­ins þá væri vandi lofts­lags­mál­anna sá að við yrðum á ein­hvern hátt að end­ur­skoða afstöðu okkar til hins góða. End­ur­skoða afstöðu okkar til hins eft­ir­sókn­ar­verða ef við ætl­uðum að búa í hag­inn fyrir fram­tíð­ina og kom­andi kyn­slóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár