40 prósent vilja Katrínu Jakobsdóttur sem forsætisráðherra

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er sá stjórn­mála­leið­togi sem flestir vilja að taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fylgir á eftir með 25,6 pró­senta stuðn­ing.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er sá stjórn­mála­leið­togi á Íslandi sem flestir vilja að taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir þing­kosn­ing­arnar sem fram fara á laug­ar­dag­inn. 

Samkvæmt skoð­ana­könnun Gallup sem fram­kvæmd var dag­ana 20. til 27. októ­ber vilja um 40 pró­sent lands­manna helst að Katrín gegni emb­ætt­inu. Næst­vin­sælasta for­sæt­is­ráð­herra­efnið er Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hann nýtur 25,6 pró­senta stuðn­ings.

Þar á eftir koma Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, með 14,3 pró­sent og Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar með 7,3 pró­sent. 

Um 6 pró­sent svar­enda vilja að Smári McCarthy, fram­bjóð­andi Pírata taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og 4 pró­sent vilja að Benedikt Jóhann­es­son gegni hlut­verk­inu. Neðst er Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, með 3 pró­senta stuðn­ing. 

Katrín Jak­obs­dóttir nýtur meiri stuðn­ings hjá fólki á aldr­inum 18 til 44 ára heldur en meðal þeirra sem eldri eru. Bjarni Bene­dikts­son er hins vegar vin­sælli meðal þeirra sem eldri eru heldur en hjá hinum yngri. Mestur stuðn­ingur við Bjarna er hjá þeim sem eru 65 ára eða eldri. 

Katrín nýtur meiri stuðn­ings meðal kvenna en karla en hjá Bjarna er þessu öfugt farið. Þá er mark­tækur munur á stuðn­ingi við Bjarna og Katrínu eftir menntun. Bjarni nýtur mestra vin­sælda meðal þeirra sem ein­ungis hafa lokið grunn­skóla­prófi en Katrín er með afger­andi stuðn­ing háskóla­mennt­aðs fólks.

Þegar sund­ur­greint er eftir fjöl­skyldu­tekjum kemur í ljós að ein­ungis einn hópur vill frekar að Bjarni gegni emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra heldur en Katrín. Þetta er tekju­hæsti hóp­ur­inn, þeir sem eru með 1,5 milljón eða meira á mán­uði. 

Könnunin var unnin fyrir aug­lýs­inga­stof­una Dynamo, en stofan hefur meðal ann­ars sinnt verk­efnum fyrir Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð í aðdrag­anda kom­andi þing­kosn­inga. Um er að ræða net­könnun með 1398 manna úrtak handa­hófs­val­inna úr við­horfa­hópi Gallup. Fjöldi svar­enda var 821 manns, fólk af öllu land­inu, 18 ára og eldra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár