Stærsti hluthafi Icelandair minnkar enn við sig – Hlutafjáraukning framundan

Virði bréfa í Icelandair hefur dreg­ist saman um 72 pró­sent frá því að Par Capital Mana­gement keypti í félag­inu fyrir ári síðan. Sjóð­ur­inn, sem er stærsti hlut­hafi flug­fé­lags­ins, hefur nú minnkað eign­ar­hlut sinn um 0,5 pró­sent á skömmum tíma.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group, ­­banda­ríski fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­sjóð­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu úr 13,7 pró­sent í 13,2 pró­sent. Fyrst með því að selja 0,2 pró­sent hlut og svo aftur með því að selja 0,3 pró­sent hlut á allra síð­ustu dögum.

Þetta má sjá á nýbirtum hlut­haf­alista Icelandair Group þar sem fjöldi hluta­bréfa í eigu PAR Capital Mana­gement, hefur dreg­ist saman um 16,5 millj­ónir frá því í síð­ustu viku.

Salan vekur athygli vegna þess að hluta­bréf í Icelandair Group eru í mik­illi lægð – mark­aðsvirði félags­ins hefur ekki verið lægra frá árinu 2009 – og fyrir dyrum er að félagið sæki stóra hluta­fjár­aukn­ingu til helstu hlut­hafa sinna til að kom­ast í gegnum yfir­stand­andi aðstæður.

Á leiðinni í almennt útboð

Í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, sem kom út í morgun er greint frá því að Icelandair Group muni fara í almenn hluta­fjár­út­boð í nán­ustu fram­tíð til að tryggja að félagið lifi af þær hremm­ingar sem það er í sem stendur vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Vegna far­ald­urs­ins er Icelandair að fljúga um fimm pró­sent af flug­á­ætlun sinni og í gær sagði félagið upp um tvö þús­und af 4.300 starfs­mönnum sínum.

[adspot]Þegar PAR Capital Mana­gement keypti í Icelandair, í apríl í fyrra í hluta­fjár­­aukn­ingu sem þá var fram­­kvæmd, greiddi sjóð­ur­inn 9,03 krónur á hvern hlut í félag­inu. Við lok við­skipta í gær var það 2,5 krónur á hlut og hafði lækkað um 72 pró­sent á einu ári. Mark­aðsvirði Icelandair í lok gær­dags­ins var 13,6 millj­arðar króna. Þegar það var sem hæst, í apríl 2016, var það 191,5 millj­arðar króna.

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa haldið áfram að falla í dag. Virði þeirra hefur ekki verið minna frá árinu 2009.

Lífeyrissjóðir verða í lykilhlutverki

Talið er lík­legt að Icelandair muni sækj­ast eftir allt að 30 millj­örðum króna frá hlut­höfum og nýjum fjár­festum í kom­andi hluta­fjár­út­boði. Auk þess standa yfir þreif­ingar um að ríkið veiti félag­inu lána­línur á mjög góðum kjörum.

Næst stærsti eig­and­inn í Icelandair, á eftir Par Capital Mana­gement, er Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna með 11,8 pró­­sent hlut og þar á eftir koma líf­eyr­is­­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­­sent) og Birta (7,1 pró­­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mög­u­­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­fest­ing­ar­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­inu. Þessir líf­eyr­is­­sjóðir munu þurfa að leggja fram aukið hlutafé eða verða þynntir út í boð­uðu hluta­fjár­­út­­­boði. Þeir munu því leika lyk­il­hlut­verk í end­ur­fjár­mögnun Icelandair Group.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár