Trump ætlar að veikja náttúruverndarlögin

Í kvöld mun Donald Trump til­kynna breyt­ingu á nátt­úru­vernd­ar­lögum Banda­ríkj­anna. Lögum sem standa vörð um þátt­töku almenn­ings í ákvarð­ana­töku þegar kemur að fram­kvæmdum á borð við olíu­leiðslur og hrað­brautir.

Donald Trump Bandaríkjaforseti mun halda fund í Atlanta í kvöld og tilkynna um breytingar sínar á náttúruverndarlögunum.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti mun halda fund í Atlanta í kvöld og til­kynna um breyt­ingar sínar á nátt­úru­vernd­ar­lög­unum. Mynd: EPA

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna ætlar að taka ein­hliða ákvörðun um að veikja einn af horn­steinum nátt­úru­vernd­ar­laga lands­ins með því að tak­marka aðkomu almenn­ings að ákvarð­ana­töku um stór verk­efni á sviði inn­viða­upp­bygg­ingar. Þetta ætlar hann að gera til að flýta fyrir fram­kvæmda­leyfum fyrir hrað­brautir, orku­ver og olíu­leiðslur.

Ítarlega er fjallað um málið í frétta­skýr­ingu í New York Times í dag. Þar segir að með því að tak­marka þátt­töku almenn­ings í skipu­lags­ferlum fram­kvæmda muni rík­is­stjórn Trumps spara hund­ruð millj­ónir dala þar sem skemmri tíma mun taka verk­efni að fá leyfi.

Hvíta húsið hefur stað­fest að Trump ætli að kynna þessi áform sín á fundi í Atlanta í kvöld. Hann er sagður rök­styðja ákvörðun sína með þeim hætti að skipu­lags­mál séu alltof tíma­frek eins og fyr­ir­komu­lagið er nú og tefji fyrir nauð­syn­legri inn­viða­upp­bygg­ingu, m.a. á breikkun hrað­brautar í Georgíu-ríki.

End­ur­skoðun hinna 50 ára gömlu nátt­úru­vernd­ar­laga með þessum hætti er að því er fram kemur í frétta­skýr­ingu New York Times ein stærsta laga­breyt­ing sem stjórn hans hefur ráð­ist í en sú stjórn hefur nú þegar afnumið um 100 reglu­gerðir er snéru m.a. að verndun and­rúms­lofts og vatns og voru settar til að reyna að draga úr lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum.

Þingmenn úr Repúblikana­flokknum, tals­menn olíu­fyr­ir­tækja, bygg­ing­ar­verk­takar og fleiri hópar hafa lengi sagt að skipu­lags­ferli fram­kvæmda taki alltof langan tíma. Hafa þeir m.a. sakað nátt­úru­vernd­ar­fólk um að nýta sér lögin til að halda verk­efnum sem það leggst gegn í gísl­ingu.

Tímamörkin þrengd

Samkvæmt því sem heim­ildir New York Times herma verða sett hert­ari tíma­mörk á umhverf­is­mat fram­kvæmda þannig að það taki ekki lengur en eitt til tvö ár. Þá á einnig að flokka fram­kvæmdir með öðrum hætti og fjölga þeim sem þurfa ekki að gang­ast undir slíkt mat.

Það sem heim­ild­ar­menn NYT segja enn fremur, og er að þeirra mati ein mesta breyt­ingin, er að alrík­is­stofn­anir þurfa ekki lengur að taka til greina áhrif inn­viða­fram­kvæmda á lofts­lags­breyt­ingar.

Tals­maður Mið­stöðvar um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika, Brett Hartl, sakar Trump um að hverfa aftur til for­tíðar með þessu og til þess tíma þegar „ár urðu alelda, ekki var hægt að anda að sér loft­inu og dýra­líf var á hrað­leið í átt að útdauða.“

Þegar breytt umhverfislögum

Miklar efna­hags­þreng­ingar hafa orðið víða um heim vegna far­ald­urs kór­ónu­veirunnar og eru Banda­ríkin þar ekki und­an­skilin. Aflétt­ingar tak­mark­ana á sam­neyti fólks hafa orðið til þess að nýjum til­fellum hefur víða fjölgað gríð­ar­lega hratt svo aftur hefur þurft að grípa til aðgerða. Trump hefur verið gagn­rýndur fyrir við­brögð sín við far­aldr­inum en sjálfur hefur hann beint spjótum sínum að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni og Kín­verjum.

Og nú hefur hann ítrekað sagt að slaka þurfi á þeim kröfum sem felist í umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­lögum svo efna­hag­ur­inn kom­ist aftur á sama ról og áður og hraðar en ella. Hann hefur þegar tekið skef í þessa átt. Í júní skrif­aði hann undir for­seta­til­skip­anir um breyt­ingar á umhverf­is­vernd­ar­lögum (National Environ­mental Protection Act) og lögum um dýr í útrým­ing­ar­hættu „End­an­gered Species Act) svo hraða mætti ákveðnum fram­kvæmdum. Ákvörð­un­ina rétt­lætti hann með þeim orðum að breyt­ingin myndi „styrkja hag­kerfið og koma Banda­ríkja­mönnum aftur til vinnu“.

Grunnstoð umhverfisverndar

Nátt­úru­vernd­ar­lögin (National Environ­mental Protection Act) eru talin grunn­stoð allra umhverf­is­vernd­ar­laga Banda­ríkj­anna. Þau veita öllum banda­rískum borg­urum rétt til að tjá sig og gera athuga­semdir við fram­kvæmdir hvort sem það eru vegir í gegnum bæina þeirra, stækkun á flug­völlum eða önnur risa­vaxin inn­viða­verk­efni. Samkvæmt lög­unum verða stofn­anir að greina hvaða áhrif fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir gætu haft á umhverfið út frá ýmsum þáttum, s.s. á dýra­líf, losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og þar fram eftir göt­unum.

Það er lík­lega ekki að ástæðu­lausu að Trump er að hugsa um þessi mál núna – rétt fyrir kosn­ingar og rétt eftir að nokkur mál á þessu sviði hafa náð augum og eyrum almenn­ings. Snemma í júlí komst umdæm­is­dóm­stóll að því að Dakota-olíu­leiðslan, sem á að flytja olíu frá Norður-Dakóta til Illinois, þyrfti að fara í frekara umhverf­is­mat. Sú fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd hefur mætt gríð­ar­legri and­stöðu og orðið til­efni fjölda­mót­mæla og marg­vís­legra kæru­mála. Í New York Times er haft eftir heim­ild­ar­mönnum innan olíu­iðn­að­ar­ins að breyt­ing Trump á nátt­úru­vernd­ar­lög­unum muni ekki endi­lega þýða að Dakota-olíu­leiðslan fái grænt ljós heldur að með­ferð skipu­lags­mála af ýmsum toga, m.a. ítar­legra umhverf­is­mati, muni taka skemmri tíma. Þá muni breyt­ingin hafa áhrif á önnur slík verk­efni sem eru í bígerð.

Í júlí stað­festi hæsti­réttur Banda­ríkj­anna einnig nið­ur­stöðu umdæm­is­dóm­stóls sem krafð­ist stöðv­unar fram­kvæmda við Keystone-olíu­leiðsl­unnar á grund­velli umhverf­is­reglna. Trump hefur sagt að hann hefði viljað sjá þessi tvö verk­efni verða að veru­leika.

Ekkert af þessu ætti þó að koma mikið á óvart. Trump hafði það á stefnu­skránni frá upp­hafi að veikja umhverf­is­vernd­ar­lög í þessum til­gangi. Sjálfur var hann í fast­eigna­verk­efnum marg­vís­legum áður en hann bauð sig fram til for­seta.

Í New York Times segir að mögu­lega geti for­set­inn ekki tekið þá ákvörðun að veikja nátt­úru­vernd­ar­lögin ein­hliða. Samkvæmt lögum um end­ur­skoðun ákvarð­ana for­seta getur þingið snúið slíkum ákvörð­unum við ef meiri­hluti er fyrir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár