Skatturinn birtir lista yfir uppsagnarstyrki til fyrirtækja

Stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins raða sér efst á lista sem Skatt­ur­inn hefur birt á vef sínum yfir svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki.

Félög í eigu Icelandair Group hafa fengið á fjórða milljarð króna í uppsagnarstyrki úr ríkissjóði.
Félög í eigu Icelandair Group hafa fengið á fjórða millj­arð króna í upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði. Mynd: Af vef Icelandair

Stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins raða sér efst á lista sem Skatt­ur­inn hefur birt á vef sínum yfir svo­kallað upp­sagna­styrki, rík­is­stuðn­ing til fyr­ir­tækja vegna greiðslu launa starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti, sem í heild hefur numið yfir 8 millj­örðum króna til þessa. Skatt­ur­inn birtir lista yfir upp­safn­aða fjár­hæð sem rekstrað­ilar hafa fengið vegna upp­sagna­styrkj­anna í maí, júní og júlí.

Félög í eigu Icelandair hafa sam­an­lagt fengið á fjórða millj­arð króna í styrki vegna upp­sagna á fjórða þús­und launa­manna. Mest hefur að sjálf­sögðu flug­fé­lagið sjálft fengið, eða 2.874 millj­ónir króna vegna upp­sagna 1889 launa­manna. Icelandair Group gerði ráð fyrir því í hálfs­árs­upp­gjöri sínu að sækja allt að 3,3 millj­arða í upp­sagn­ar­styrki til rík­is­ins þegar allt yrði saman talið.[links]

Stóru hót­el­keðj­urnar hafa sagt upp fjölda manns, en Íslands­hótel og Foss­hótel Reykja­vík, sem eru tengd félög, hafa sam­an­lagt fengið fengið yfir 582 millj­óna stuðn­ing vegna hluta launa­kostn­aðar alls 591 starfs­manns á upp­sagn­ar­fresti. Þá hafa Centerhotels fengið tæpar 223 millj­ónir í stuðn­ing vegna upp­sagna 226 launa­manna og Hótel Saga fengið 118 milljón króna stuðn­ing vegna upp­sagna 66 starfs­manna, svo eitt­hvað sé nefnt.

Bláa lónið hefur fengið 425 millj­óna króna stuðn­ing vegna upp­sagna 540 starfs­manna. Stærstu rútu­fyr­ir­tækin tvö, Gray Line og Kynn­is­ferðir, hafa svo bæði fengið hátt á annað hund­rað millj­ónir í stuðn­ing. Þá hafa bíla­leigur sagt upp fjölda fólks og ýmis fyr­ir­tæki í afþr­ey­ingu fyrir ferða­menn einnig.

[adspot]

Listinn sem Skatt­ur­inn birtir er tæm­andi og eru alls 272 fyr­ir­tæki sem hafa fengið greidda upp­sagn­ar­styrki. Vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða er fjöldi launa­manna á upp­sagn­ar­fresti ein­ungis gerður opin­ber þegar þeir eru 20 eða fleiri hjá sama fyr­ir­tæk­inu.

Búið að greiða út 8 milljarða en áætlun gerði ráð fyrir 27 milljarða útgjöldum

Heild­ar­upp­hæðin sem greidd hefur verið út vegna upp­sagn­ar­styrkj­anna er um átta millj­arðar króna, en þegar frum­varp um upp­­sagn­­ar­­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­­is­­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­­arðar króna. Enn sem komið hefur því um 30 pró­­sent af áætl­­uðum kostn­aði vegna upp­­sagn­­ar­­styrkja fallið til.

Yfirlýst mark­mið upp­sagn­ar­styrkj­anna var að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks. Hlið­ar­á­hrifin eru svo þau að eign hlut­hafa fyr­ir­tækja er varin.

Í minn­is­­blaði Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inn­i­heldur yfir­­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­­gerða stjórn­­­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­­is­­stjórn 14. ágúst, sagði að umsóknir hefðu verið færri en gert hefði verið ráð fyrir á tíma­bil­inu. Síðasti umsókn­ar­dagur fyrir umsóknir um upp­sagna­styrki vegna greiddra launa í maí til júlí var 20. ágúst.



Síðasti upp­sagn­ar­dag­ur­inn sem fellur undir stuðn­ing vegna launa­greiðslna á upp­sagn­ar­fresti er 1. októ­ber og mun úrræðið því teygja sig út árið.



Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár