Vilja takmarka notkun pálmaolíu í íslenskri framleiðslu

Pálma­olía er þrisvar sinnum verri en jarð­efna­elds­neyti þegar kemur að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Notkun hennar sem elds­neyti hefur auk­ist síð­ustu ár og hópur þing­manna vill banna hana í líf­dísil og tak­marka í allri fram­leiðslu á Íslandi.

Milljónir hektara af regnskógum í Indónesíu og Malasíu hafa verið ruddir síðustu ár til vinnslu pálmaolíu.
Millj­ónir hekt­ara af regn­skógum í Indónesíu og Malasíu hafa verið ruddir síð­ustu ár til vinnslu pálma­olíu. Mynd: Greenpeace

Tólf þing­menn Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Pírata, auk utan flokka þing­manns­ins Andrésar Inga Jóns­sonar, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um ráð­staf­anir til að draga úr notkun pálma­olíu á Íslandi. Samkvæmt til­lög­unni, sem Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er fyrsti flutn­ings­maður að, yrði ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra falið að vinna áætlun um tak­mörkun á notkun olí­unnar í allri fram­leiðslu á Íslandi og leggja fram frum­varp um bann við notkun hennar í líf­dísil eigi síðar en í lok næsta árs.

Þetta er í þriðja sinn sem til­laga þessa efnis er lögð fram.

[links]Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að pálma­olía sé notuð í mat­væla­fram­leiðslu á Íslandi en að tölu­vert hafi dregið úr notkun hennar á síð­ustu árum. Olían hefur síð­ustu ár í auknum mæli verið notuð sem elds­neyti eða sem íblöndun í elds­neyti. Reiknað hefur verið út að líf­elds­neyti frá jurta­olíu, sem er um 70 pró­sent af líf­elds­neyt­is­mark­aði í Evrópu, losi 80 pró­sent meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en jarð­efna­elds­neytið sem verið er að skipta út. „Pálma­olía trónir þar hæst og er þrisvar sinnum verri en jarð­efna­elds­neyti, en næst á eftir kemur soja­olía sem er tvisvar sinnum verri,“ segir í til­lög­unni.

Árið 2014 brenndu evr­ópsk far­ar­tæki meira en þremur millj­ónum tonna af pálma­olíu. Tak­mark­anir á notkun pálma­olíu gætu, að mati flutn­ings­manna til­lög­unnar, ýtt undir og stutt við íslenska fram­leiðslu á líf­dísil.

Til að fram­leiða pálma­olíu eru regn­skógar ruddir sem hefur slæm áhrif á umhverfið og veldur marg­vís­legum skaða sem brýnt er að girða fyrir með banni á notkun, að mati flutn­ings­manna þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar . Vegna þeirra áhrifa sem fram­leiðsla pálma­olíu hefur haft á umhverfið hefur Evr­ópu­sam­bandið m.a. sam­þykkt reglu­gerð sem miðar að því að draga úr notkun óend­ur­nýj­an­legs líf­efna­eld­is­neytis, þar á meðal pálma­olíu.

Grein­ar­gerð með til­lög­unni er byggð á umfjöllun Rann­veigar Magn­ús­dóttur vist­fræð­ings. Í henni kemur fram að lönd eins og Indónesía og Malasía, sem fram­leiða lang­mest af pálma­olíu, hafi nú þegar fellt stóran hluta af regn­skógum sínum, m.a. fyrir fjölda­fram­leiðslu á pálma­olíu. Eft­ir­spurn eftir henni hafi auk­ist veru­lega und­an­farna ára­tugi. „Í dag er langstærstur hluti pálma­olíu á mark­aði ósjálf­bær og valdur að eyð­ingu regn­skóga,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Talið er að hið minnsta sé búið að fella 18,7 millj­ónir hekt­ara af regn­skógi fyrir fram­leiðslu á pálma­olíu, aðal­lega í Indónesíu og Malasíu. Slíkt land­flæmi jafn­ast á við tvisvar sinnum Ísland að stærð.“

Í grein­ar­gerð­inni er svo farið ítar­lega yfir hlut­verk regn­skóga í vist­kerfi jarðar. Þeir eru frjósamir og þar er að finna mik­inn líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika. Þegar þeir eru ruddir tap­ast meira en tré því þar haf­ast við fjöl­margar dýra- og smá­dýra­teg­undir.

Dýr geta þurft stór svæði til að athafna sig og þríf­ast ekki í litlum afmörk­uðum regn­skóg­ar­leifum. Þetta er ástæða þess að margar regn­skóg­ar­teg­undir eru í bráðri útrým­ing­ar­hættu. Þá eru regn­skógar gríð­ar­lega stórar kolefn­is­geymslur og sumir regn­skógar, einkum í Suð­austur-Asíu, vaxa í kolefn­is­ríkum mýrum. Þegar skóg­arnir eru ruddir og brenndir aukast áhrif lofts­lags­breyt­inga því kolefni losnar út í and­rúms­loftið þegar skóg­ur­inn sjálfur er brenndur og einnig þegar mýrin er ræst fram. „Við það að breyta regn­skógum í plantekrur eru í raun búin til nær líf­laus land­svæði þar sem dýr eins og órangút­anar eiga sér enga von,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Talið er að ef haldið verður áfram að eyði­leggja regn­skóga Indónesíu á sama hraða gætu órangút­anar orðið útdauðir í nátt­úr­unni innan örfárra ára­tuga.“

Þá hafa mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International komið upp um mjög slæman aðbúnað fólks sem vinnur á pálma­ol­íu­plantekrum þar sem börnum er þrælað út og konur veikj­ast við að úða skor­dýra­eitri á skóg­ar­botn­inn.

Samtök sem kalla sig Hring­borð um sjálf­bæra pálma­olíu (RSPO) gefa fyr­ir­tækjum sem upp­fylla ákveðin skil­yrði vottun um að olían sem þau nota í fram­leiðslu sína á alls konar vörum, s.s. snyrti- og mat­vörum, telj­ist sjálf­bær. Í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er bent á að kerfið sé því miður mjög gallað og að efast megi um það að nokkur pálma­olía geti verið sjálf­bær eftir það sem á undan er gengið síð­ustu ára­tugi í þessum iðn­aði. Er fram­leiðslan orðin sjálf­bær þegar fimm, tíu eða þrjá­tíu ár eru liðin frá því að regn­skóg­inum var flett ofan af land­inu?

„Stað­reyndin er sú að regn­skógur var á öllu því svæði þar sem pálma­olía er nú fram­leidd, hvort sem hún er vottuð sem sjálf­bær eður ei,“ segir í grein­ar­gerð til­lög­unnar. „Rökin fyrir því að nýta þessi svæði, sem nú þegar hafa verið rudd af regn­skógi, eru þau að pálma­ol­íu­fram­leiðsla sé mjög mikil á hvern hekt­ara miðað við aðra olíu­fram­leiðslu. Mörg umhverf­is­vernd­ar­sam­tök hafa því lagt mikla áherslu á það und­an­farið að styðja við fram­leiðslu á sann­ar­lega sjálf­bærri pálma­olíu og hvetja þau fyr­ir­tæki og neyt­endur til að kaupa hana í stað þess að snið­ganga pálma­olíu alfarið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár