Óskað eftir að hækka heimild ríkissjóð til að taka lán í erlendri mynt í 360 milljarða króna

Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs verða 1.251 millj­arðar króna um kom­andi ára­mót, eða 431 millj­arði króna hærri en lagt var upp með á fjár­lögum árs­ins 2020. Vextir hafa hins vegar lækkað mikið á árinu og vaxta­gjöld hafa hlut­falls­lega hækkað mun minna en skuldir.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýju fjár­auka­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er óskað eftir því að ríkið fái heim­ild til að taka lán upp á allt að 360 millj­örðum króna í erlendri mynt á þessu ári. Fyrir var heim­ildin 140 millj­arðar króna og því er um aukn­ingu upp á 220 millj­arða króna að ræða.

Í fjár­lögum árs­ins 2020 var heim­ild fyrir lang­tíma­lán­töku upp á 40 millj­arða króna og til við­bótar var sér­stök heim­ild til erlendrar lán­töku upp á 100 millj­arða króna. Í fjár­auka­laga­frum­varpi sem lagt var fram í mars var almenna láns­fjár­heim­ildin hækkuð og í grein­ar­gerð sem fylgdi með því kom fram að vegna óvissu um mögu­legt umfang aðgerða vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og end­an­legrar fjár­þarfar rík­is­ins gæti láns­fjár­þörfin auk­ist veru­lega þegar líða tæki á árið.

Í grein­ar­gerð með nýjasta fjár­auka­laga­frum­varp­inu, sem var lagt fram í gær, segir að nú liggi fyrir end­ur­skoðað mat á láns­fjár­þörf rík­is­sjóðs og ljóst sé að leita þarf auk­inna heim­ilda. „Láns­fjár­heim­ildin er til að mæta lang­tíma­lán­tökum, sem fyrst og fremst eru útgefin rík­is­bréf, nettó­aukn­ingu á útistand­andi víxlum og annarri skamm­tíma­fjár­mögnun, en hluta af útistand­andi skamm­tíma­fjár­mögnun kann að vera breytt í lengri tíma fjár­mögnun fyrir árs­lok.“

[adspot]Þegar fjár­lög fyrir árið 2020 voru sam­þykkt í fyrra var gert ráð fyrir að fjár­þörf rík­is­sjóðs yrði 65 millj­arðar króna á þessu ári. Svo skall á heims­far­aldur, með til­heyr­andi kreppu­á­hrifum, og end­ur­mat á fjár­þörf rík­is­sjóðs gerir nú ráð fyrir að fjár­þörfin í ár sé 359 millj­arðar króna.

Hagstæðir vextir í boði

Í grein­ar­gerð­inni segir að sjóðs­staða rík­is­sjóðs sé góð um þessar mundir. Inn­lendar inn­stæður í Seðla­banka séu um 110 millj­örðum króna nú í lok nóv­em­ber. Því til við­bótar á rík­is­sjóður um 220 millj­arða króna í erlendum inn­stæðum sem unnt sé að nýta að hluta til að mæta fjár­þörf hans og myndi það að óbreyttu draga úr inn­lendri lán­töku. Nýting gjald­eyr­is­eigna að hluta gætu falið í sér að þær við­bót­ar­heim­ildir sem verið er að óska eftir, að taka erlend lán fyrir allt að 360 millj­arða króna innan árs­ins, yrðu ekki nýttar til fulls.

Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs verða um 1.251 millj­arðar króna í árs­lok 2020 gangi end­ur­skoð­aðar áætl­anir eftir og skulda­hlut­fall hans um 34,6 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Það er kúvend­ing frá því sem stefnt var að í fjár­lögum árs­ins 2020 þegar stefnt var að því að skuldir rík­is­sjóðs yrðu 820 millj­arðar króna um næstu ára­mót. Því verða skuldir rík­is­sjóðs um kom­andi ára­mót 431 millj­arði króna hærri en lagt var upp með á fjár­lögum þessa árs.

Í fjár­lögum árs­ins 2020 var ekki gert ráð fyrir erlendri lán­töku rík­is­sjóðs á árinu. Rík­is­sjóður gaf engu að síður út skulda­bréf í maí 2020 að fjár­hæð 500 millj­ónir evra sem sam­svar­aði um 76 millj­örðum króna, en það skulda­bréf ber 0,625 pró­sent fasta vexti og er ein af þremur útistand­andi jafn stórum skulda­bréfa­út­gáfum rík­is­sjóðs í evrum.

Vextir hafa lækkað mikið vegna far­ald­urs­ins. Í grein­ar­gerð með fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir að af þeim sökum hækki vaxta­gjöld árs­ins hlut­falls­lega umtals­vert minna en skuldir. „Áætluð skulda­staða rík­is­sjóðs í árs­lok 2020 er um 53 pró­sent hærri en reiknað var með í fjár­lögum á meðan vaxta­gjöld og verð­bætur eru aðeins um 3,5 pró­sent hærri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár