Umdeildar úlfaveiðar í Noregi heimilaðar

Innan við hund­rað úlfar eru stað­bundnir í Noregi og flestir þeirra eru innan friðlands. Stjórn­völd vilja halda stofn­inum niðri og hafa heim­ilað veiðar á 26 dýrum í ár.

Úlfur sem drepinn var í Noregi um síðustu helgi.
Úlfur sem drep­inn var í Noregi um síð­ustu helgi.

Daginn sem veiðar innan „úlfa­svæð­is­ins“ í Noregi voru leyfðar í síð­ustu viku voru níu úlfar skotnir. Leyfi til veið­anna voru gefin út eftir að áfrýj­un­ar­dóm­stóll í land­inu hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að veið­arnar væru lög­legar. Dýra­vernd­un­ar­sam­tök fóru fram á lög­bann á veið­arnar í des­em­ber sem fall­ist var á í und­ir­rétti. Þeirri nið­ur­stöðu var svo snúið við á efra dóm­stigi. Veið­arnar eru hluti af stefnu stjórn­valda sem vilja halda stofn­inum í lág­marki.

[adspot]

Aðeins um átta­tíu úlfar eru stað­bundnir í Noregi og hefur búsvæðum þeirra verið snið­inn þröngur stakkur í suð­aust­ur­hluta lands­ins við landa­mærin að Svíþjóð. Nokkur tugur dýra til við­bótar þvæl­ast svo yfir landa­mærin fram og til baka en um 350 dýr eru almennt í Svíþjóð.

Innan „úlfa­svæð­is­ins“ í Noregi mega þeir vera og fjölga sér en ekki utan þess. Veiðar á úlfum eru umdeildar en rétt­lættar með því að halda þurfi „jafn­vægi í stofn­inum“, líkt og Espen Barth Eide, lofts­lags- og umhverf­is­ráð­herra Noregs sagði er hann fagn­aði nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­dóm­stóls­ins á dög­unum. Með nið­ur­stöð­unni yrði tryggt að tvö mark­mið næð­ust: Að hafa búfénað á beit og úlfa í Noregi.

Í fyrstu stóð til að drepa 51 úlf, þar af hluta dýr­anna innan „úlfa­svæð­is­ins“. Nú hefur verið ákveðið að 26 dýr verði felld. Nokkur sam­tök um vel­ferð dýra fóru fram á lög­bannið þar sem þau telja veiðar innan vernd­ar­svæð­is­ins brjóta í bága við nátt­úru­vernd­ar­lög Evr­ópu­sam­bands­ins.

Karoline Andaur, fram­kvæmda­stjóri vernd­ar­sam­tak­anna WWF í Noregi bendir á að úlfar séu í útrým­ing­ar­hættu í Noregi og séu mik­il­vægur hluti líf­rík­is­ins til að stuðla að og við­halda líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika. Hlutverk þeirra í nátt­úr­unni sé alltaf að koma betur og betur í ljós. „Núna á að skjóta þá, jafn­vel þótt þeir séu á úlfa­svæð­inu – á svæði sem stjórn­völd hafa ákveðið að úlfar njóti sterkrar verndar.“

Fjölmörg dýra­vernd­un­ar­sam­tök í Evrópu hafa kraf­ist þess að Evr­ópu­sam­bandið grípi til aðgerða gegn drápi á úlfum í Skand­in­avíu og segja að þar sé þeim búið „fjand­sam­leg­asta umhverfi úlfa í allri Vestur-Evrópu“ og virði lög sem eiga að vernda dýrin að vettugi.

Finnar hættu við

Finnsk stjórn­völd ákváðu í jan­úar að aft­ur­kalla leyfi sem gefin höfðu verið út til að fella þrjá hópa úlfa í land­inu. Tóku þau ákvörð­un­ina í ljósi lög­gjafar Evr­ópu­sam­bands­ins. Svíar halda hins vegar áfram sínu striki og hafa þegar skotið kvót­ann, 27 úlfa, til bana í ár.

Norsk stjórn­völd hafa sett þau mark­mið að got í úlfa­hópum séu um 4-5 á ári. Umhverf­is­stofnun lands­ins, sem fylgist grannt með við­gangi stofns­ins, hefur bent á að þar sem dýrin séu fá og inn­ræktun því óhjá­kvæmi­leg ætti að miða við fimm got. Töluvert er um ólög­legar veiðar á úlfum bæði í Noregi og Svíþjóð.

Helstu rökin fyrir því að halda úlfum svo fáum í Noregi er hætta sem búfén­aði stafar af þeim. Heimilt er að fella úlfa í því skyni að verja búfénað en slíkt dráp eru til­kynn­ing­ar­skyld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár