Eigum við að dansa?

Tímabært er að rekja sögu list­dans­ins – að mati Páls Baldvins Bald­vins­sonar sem rýnir í bók­ina Listdans á Íslandi og segir að nú liggi fyrir saga hund­rað ára bar­áttu dans­ara og unn­enda dans­ins fyrir líf­væn­legum skil­yrðum list­forms­ins.

Bók

Listdans á Íslandi

Höfundur Ingibjörg Björnsdóttir
Hið íslenska bókmenntafélag
331 blaðsíða
Gefðu umsögn

Ingi­björg Björns­dóttir dans­ari, kenn­ari og dans­höf­undur tók við sögu list­dans á Íslandi eftir að Árni Ibsen hvarf frá verk­inu sökum heilsu­brests en upp­haf þeirrar vinnu má rekja 30 ár aftur til frum­kvæðis Félags íslenskra list­dans­ara. Bók Ingi­bjargar er í stóru broti, ríku­lega skreytt ljós­myndum, frum­rann­sókn og fagn­að­ar­efni þeim sem unna dans­inum.

Ritið skipt­ist í tíu kafla auk fjög­urra við­auka og skrár. Ræður tíma­röð þræð­inum og lýkur árið 2020. Formáli skýrir upp­bygg­ingu verks­ins og nokkur grunn­hug­tök. Upp­haf­skafl­inn (18 bls.) rekur upp­gang list­dans­ins í vest­ur­álfu. Annar kafli lýsir hvernig list­dans hefst hér fyrir atbeina Árna Eiríks­sonar og Stefaníu Guð­munds­dóttur árin 1904 til 1907 með kennslu Georg Berthel­sen. Segir þá frá frum­kvöðlum, Stefaníu og Guðrúnu Ind­riða­dóttur, sýn­ingum þeirra og dönsum hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur. Svo rekur hún í tíma­röð aðra frum­herja (22 bls.) uns Þjóð­leik­húsið er vígt og Guð­laugur Rósenkranz stofnar list­dans­skóla, óperukór, leik­skóla og rekur um tíma sin­fón­íu­hljóm­sveit í nafni þess.

…

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár