Fordæma stjórnvöld fyrir skilningsleysi

Hjálp­ar­sam­tök fyrir flótta­menn og hæl­is­leit­endur for­dæma íslensk stjórn­völd.

Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæma vinnu­brögð við brott­vísun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá sam­tök­unum. Í henni segir að yfir­völd hafi ítrekað gerst sek um ómann­úð­leg og óásætt­an­leg vinnu­brögð, brot á mann­rétt­indum fólks á flótta og brot á verk­ferlum stjórn­valda við fylgd umsækj­enda um vernd úr landi eftir synjun.

„Á vef Útlend­inga­stofn­unar segir að „verk­lag stjórn­valda byggir á því að tryggja fag­lega, skipu­lega og mann­úð­lega fram­kvæmd við fylgd umsækj­enda um vernd úr landi.“ Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sem fram­kvæmir brott­vísun eftir ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, skal „leggja áherslu á sam­vinnu við umsækj­anda við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd fylgdar úr landi. Starfs­menn deild­ar­innar gæta þess að fram­kvæmd ákvarð­ana fari fag­lega fram með virð­ingu fyrir mann­legri reisn þess sem í hlut á og tryggja að fram­kvæmdin sé í sam­ræmi við lög­gjöf og örygg­is­við­mið.“ Þá segir einnig að tals­maður við­kom­andi skuli vera upp­lýstur og „kanna skal hvort við­kom­andi eigi ólokið erindum eða málum fyrir stjórn­völdum.“ Þar að auki kemur fram á vefnum að „leit­ast skal við að til­kynna við­kom­andi um nákvæma dag­setn­ingu brott­farar eins fljótt og unnt er, helst að lág­marki með tveggja daga fyr­ir­vara eða strax og dag­setn­ing brott­farar liggur fyrir.“ Á vef lög­regl­unnar segir hins­vegar að „haft er sam­band við þann sem flytja á með góðum fyr­ir­vara og honum/henni til­kynnt hvað muni ger­ast og þá hugs­an­leg dag­setn­ing á fram­kvæmd, um það bil tvær vikur fram í tím­ann,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt segir, að stjórn Solaris, hafi á und­an­förnum vikum borgist margar frá­sagnir af brott­vís­unum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem eru alls ekki í sam­ræmi við verk­ferla stjórn­valda. „Ítrekað hafa ein­stak­lingar og fjöl­skyldur verið sóttar án nokk­urs fyr­ir­vara og sendar úr landi, fram­kvæmdin hefur verið ómann­úð­leg og ekki í neinu sam­starfi við við­kom­andi og/eða tals­menn, td. lög­fræð­inga þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Skilningsleysið algjört

Solaris minn­ast sér­stak­lega á mál Houssin, drengs frá Marokkó, sem nú hefur verið sendur úr landi. Hann varð meðal ann­ars fyrir hrotta­legri lík­ams­árás á Litla Hrauni, þar sem hann var um tíma vistaður. „Yfirvöld hafa síend­ur­tekið brugð­ist Houssin, sem m.a. varð fyrir hrotta­legu ofbeldi í fang­elsi, nú síð­ast með því að senda hann úr landi í gær án nokk­urs fyr­ir­vara og sam­vinnu auk brots á upp­lýs­inga­skyldu. Slík vinnu­brögð eru ómann­úð­leg og algjör­lega óásætt­an­leg og ber að for­dæma. Stefnu­leysi stjórn­valda í mál­efnum fólks á flótta er mikið áhyggju­efni. Stjórn Solaris skorar á alla ábyrgð­ar­að­ila, rík­is­lög­reglu­stjóra, útlend­inga­stofnun, dóms­mála­ráð­herra og stjórn­völd að bregð­ast strax við því ófremd­ar­á­standi sem upp virð­ist komið í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi. Móta þarf stefnu í mála­flokknum. End­ur­skoða og sam­ræma þarf verk­ferla og sjá til þess að þeim sé ávallt fram­fylgt. End­ur­skoða þarf vinnu­brögð Útlend­inga­stofn­unar og ann­arra við­eig­andi aðila til þess að tryggja mannúð og mann­lega reisn og að mann­rétt­indi fólks á flótta séu virt,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár