Nartað í réttindi neytenda

Íslensk stjórn­völd hafa lýst yfir vilja til þess að veita bæði ferða­skrif­stofum og flug­fé­lögum tíma­bundið svig­rúm til þess að ganga á rétt­indi neyt­enda. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir að aldrei hafi verið mik­il­væg­ara að standa vörð um neyt­enda­rétt.

Fáir eru á leið í ferðalag á næstunni, en margir hafa þó greitt ferðaskrifstofum og flugfélögum fúlgur fjár sem nú fást ekki til baka.
Fáir eru á leið í ferða­lag á næst­unni, en margir hafa þó greitt ferða­skrif­stofum og flug­fé­lögum fúlgur fjár sem nú fást ekki til baka. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd hafa lýst yfir vilja til þess að veita bæði ferða­skrif­stofum og flug­fé­lögum svig­rúm til þess að ganga á rétt neyt­enda til skjótrar end­ur­greiðslu, vegna ferða­laga sem falla niður sökum heims­far­ald­urs­ins.

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, segir við Kjarnann að þetta virð­ist vera „default“-still­ingin hjá stjórn­völdum, neyt­endur geti átt sig, en fyr­ir­tækj­unum verði að hjálpa. Neyt­enda­sam­tökin hafa fengið inn á sitt borð stór­auk­inn fjölda kvart­ana og ábend­inga frá neyt­endum sem telja á sér brotið eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst.

Breki segir að fjöldi mála hafi auk­ist um nærri 70 pró­sent frá fyrra ári og tveir þriðju allra mála snúi að „hel­vítis pest­inni“ og við­bragða fyr­ir­tækja við henni. Þyngst vega mál sem tengj­ast end­ur­greiðslum vegna ferða­laga, bæði pakka­ferða frá ferða­skrif­stofum og flug­ferða sem hafa verið felldar niður og erf­ið­lega gengur að fá end­ur­greitt.

Breki sagði í Kast­ljósi síð­asta mið­viku­dags­kvöld að Neyt­enda­sam­tökin giski á að féð sem íslenskir neyt­endur eigi inni hjá íslenskum ferða­skrif­stofum sé á bil­inu 1,5-2,5 millj­arðar króna. Hann seg­ist hafa fulla samúð með fyr­ir­tækj­unum, en neyt­endur eigi ekki að þurfa veita fyr­ir­tækjum vaxta­laus lán til þess að verja eigið fé þeirra í gegnum hremm­ing­arnar. Þeir glími nefni­lega líka við lausa­fjár­vanda.

Umdeilt frumvarp ferðamálaráðherra

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra ferða­mála hefur lagt fram frum­varp sem heim­ilar ferða­skrif­stofum að fresta end­ur­greiðslum pakka­ferða sem falla niður um allt að tólf mán­uði með því að gefa út inn­eign­arnótur fyrir and­virði ferð­ar­innar. Frum­varpið er aft­ur­virkt til 15. mars og er til­gangur þess að forða því að ferða­skrif­stofur fari í þrot, en á sama tíma er einnig tryggt að inn­eign­ar­nóta neyt­and­ans falli undir trygg­inga­vernd.

Neyt­enda­sam­tökin og fleiri gerðu miklar athuga­semdir við frum­varpið, sem afgreitt var inn í atvinnu­vega­nefnd þann 22. apríl og hefur ekki sést síðan. Í gagn­rýn­inni vóg ef til vill þyngst að frum­varpið er sagt brjóta gegn eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins.[links]

Þórdís Kolbrún sagði í umræðum um málið um málið á Alþingi þann 22. apríl að frum­varpið hefði ekki verið lagt fram ef hætta væri talin á að það hefði skað­leg áhrif á neyt­endur, enda séu allar stærstu íslensku ferða­skrif­stof­urnar með trygg­ingar sem séu hærri en sem nemi end­ur­greiðslu­kröfum neyt­enda.

„Þannig að jafn­vel þótt þessi fyr­ir­tæki á end­anum fari í þrot, sem við vonum að þau geri ekki, þá er það a.m.k. þannig að þeir neyt­endur sem taka við inn­eign í dag fá hana end­ur­greidda út úr trygg­ing­unum sem eru bundnar inni á reikn­ingum,“ sagði Þórdís Kolbrún.

Umræð­urnar um þetta frum­varp voru nokkuð líf­legar í þing­sal, þann klukku­tíma sem þær stóðu yfir. Ýmsum sjón­ar­miðum var velt upp. Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður Við­reisnar gaf sér það, í einu dæmi sem hann tók, að fólk myndi segja: „Gott og vel, ég sætti mig við að fá inn­eign­arnótu og ég fer að ári.“

„En hvaða ferð er það sem verður farin á ári? Er það sama ferðin og var boðið upp á? Nú er t.d. sú stað­reynd að gengi krón­unnar hefur breyst um 15%. Það er 15% dýr­ara fyrir ferða­skrif­stofu núna að fara með Íslend­inga til útlanda en var þegar ferðin var seld og greidd. Hvaða trygg­ingu hefur neyt­and­inn fyrir því að hann fái jafn verð­mæta ferð og hann keypti?” spurði Jón Steindór.

Hann minnti einnig á að stjórn­völd hefðu verið að hvetja þjóð­ina til þess að ferð­ast inn­an­lands, en fæstir hefðu efni á að vera með ferðafé sitt fast í inn­eign­arnótu hjá ferða­skrif­stofu og ferð­ast líka um Ísland. Fleiri þing­menn voru með efa­semdir um frum­varpið.

Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins sagði málið „galið“ í þeirri mynd sem það var lagt fram. „Við höfum öll skiln­ing á því að ferða­skrif­stof­urnar eru í vanda, herra for­seti, en við höfum lít­inn skiln­ing á því að það skuli vera við­skipta­vin­irnir, neyt­end­urnir, sem eigi að bera áhætt­una og borga brús­ann. Réttast væri að ríkið stigi þarna inn í eins og það er að gera úti um allt sam­fé­lag í dag,“ sagði Gunnar Bragi.

„Komið með frum­varp þar sem ríkið tekur ábyrgð á þessu, verum ekki að setja venju­legt fólk, sem er kannski búið að safna í tvö, þrjú ár fyrir utan­lands­ferð, í þá aðstöðu að fá ein­hverja inn­eign­arnótu í stað­inn fyrir end­ur­greiðslu sem það á rétt á,“ sagði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók síð­astur til máls áður en málið var afgreitt til nefnd­ar­innar og sagð­ist ekki ætla að lengja umræð­una, þar sem hann reikn­aði með því að frum­varpið yrði tekið til „ræki­legrar end­ur­skoð­unar“.

„Ég ætla rétt að vona að nefndin taki þær athuga­semdir alvar­lega sem hér hafa komið fram og ríkið sýni mann­dóm í sér og mæti þessu sjálft og greiði fyrir þetta en velti því ekki yfir á fólk sem lang­aði í ferða­lag en kemst ekki vegna þess­ara aðstæðna,“ sagði Logi.

Evrópskar ríkisstjórnir vilja heimila flugfélögum að gefa út inneignir

Flug­fé­lög, rétt eins og ferða­skrif­stofur, glíma einnig við lausa­fjár­vanda vegna far­ald­urs­ins og reyna nú mörg hver að bjóða neyt­endum inn­eignir fremur en end­ur­greiðslur vegna ferða sem falla niður. Vilji íslenskra stjórn­valda stendur til þess að létta undir með flug­fé­lögum að þessu leyti.

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu­ráð­herra lagði þannig áherslu á það, á fjar­fundi með öðrum evr­ópskum sam­göngu­ráð­herrum fyrir mán­aða­mót, að reglur um end­ur­greiðslu til neyt­enda vegna flugs sem falli niður verði aðlag­aðar að núver­andi aðstæðum, til dæmis með því að fram­lengja end­ur­greiðslu­tíma­bil tíma­bundið eða leyfa flug­fé­lögum að gefa út inn­eignir.

Það er víðar deilt um þessi mál en bara á Íslandi, enda ferða­þjón­ustan í heim­inum öllum að ganga í gegnum algjört tekju­fall. Rík­is­sjóðir eru víða að pumpa fjár­magni inn í flug­fé­lög til þess að halda þeim gang­andi, með beinum hætti eða óbeinum, rétt eins og íslenska ríkið hefur gert fyrir Icelandair með hluta­bóta­úr­ræð­inu og greiðslu launa rúm­lega yfir 2.000 starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins á upp­sagn­ar­fresti.

Áður en fundur evr­ópskra sam­göngu­ráð­herra var hald­inn höfðu tólf sam­göngu­ráð­herrar ríkja innan ESB, með sam­göngu­ráð­herra Frakka og Hol­lend­inga í stafni, sent sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu til fram­kvæmda­stjórnar ESB um að gefa ætti flug­fé­lögum slaka hvað sam­evr­ópskar neyt­enda­reglur varðar, í ljósi for­dæma­lausra aðstæðna. Fleiri ríki hafa tekið undir þetta, til dæmis Þýska­land og Ítalía.

Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur lýst sig ósam­mála þessum til­lögum aðild­ar­ríkj­anna um að sveigja evr­ópska neyt­enda­reglu­verkið. Þess í stað hefur fram­kvæmda­stjórnin beint því til flug­fé­laga og ferða­skrif­stofa að end­ur­greiða þeim neyt­endum sem vilja fá end­ur­greiðslu eins og lög segja til um, eða gera inn­eign­arnót­urnar að svo aðlað­andi kosti að neyt­endur verði reiðu­búnir að þiggja þær.

Evrópsku neyt­enda­sam­tökin, BEUC, hafa barist fyrir því að ekki verði gengið á rétt neyt­enda í þessum efnum. Ekki síst þar sem neyt­endur séu þegar, sem skatt­greið­endur, að veita mik­il­vægum fjár­vana fyr­ir­tækjum borð við flug­fé­lög fyr­ir­greiðslu. Neyt­enda­sam­tökin íslensku hafa tekið í sama streng.

„Það hefur sjaldan reynt eins mikið á að Neyt­enda­sam­tökin séu sterk og standi á rétti og vörnum fyrir neyt­endur,“ segir Breki Karlsson, for­maður þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár