Myglusveppur og sjúklingar á göngunum

Það er víðar en á Íslandi sem sjúkra­hús eru í fréttum vegna þrengsla og lélegs við­halds húsa­kosts­ins. Flest dönsku sjúkra­hús­anna eru árið um kring yfir­full, hund­ruð sjúk­linga neyð­ast til að liggja á göng­unum og bygg­ing­arnar líða fyrir skort á við­haldi.

Rigshospitalet
Rigs­hospita­let Mynd: Wiki Commons

Sjúkra­húsin og sú þjón­usta sem þegn­arnir sækja þangað eru meðal horn­steina flestra evr­ópskra sam­fé­laga. Lang­flestir þurfa ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni að nýta sér þjón­ustu sjúkra­hús­anna og ekki þarf að fjöl­yrða um mik­il­vægi þess­ara stofn­ana.

Rík­is­spít­al­inn í Kaup­manna­höfn (eða Riget eins og Danir segja gjarna) er lang stærsti spít­ali Dan­merkur. Þar vinna, í fullu starfi, um 12 þús­und manns og á síð­asta ári voru sjúk­lingar sem dvöldu þar, eina nótt eða lengur, tæp­lega tvö hund­ruð þús­und. Á spít­al­anum eru um það bil fimmtán hund­ruð legu­pláss.

Rík­is­spít­al­inn var stofn­aður árið 1910 og var þá til húsa í nýreistum bygg­ingum á sömu slóðum og núver­andi spít­ala­bygg­ingar standa. Við stofnun Rík­is­spít­al­ans var Frið­riks­spít­al­anum við Bredgade, fyrsta eig­in­lega sjúkra­húsi Dan­merkur, lokað. Þar er nú til húsa hönn­un­ar­safnið, Design­mu­seum Danmark, sem til skamms tíma hét Kunstindustrimuseet.

Fyrsti hluti núver­andi spít­ala var tek­inn í notkun árið 1958 en hann hefur marg­sinnis verið stækk­aður og því verk­efni langt í frá lokið. Eins og áður var getið er Rík­is­spít­al­inn stærsti spít­ali Dan­merkur og má með réttu kall­ast flagg­skip danskrar heil­brigð­is­þjón­ustu. Danir gera miklar kröfur til heil­brigð­is­kerf­is­ins og kann­anir sýna að það er ætíð í fyrsta sæti þegar lands­menn eru spurðir hvað skipti mestu máli í dönsku sam­fé­lagi. Þótt Danir kvarti gjarna yfir háum sköttum segj­ast þeir ekki sjá eftir þeim pen­ingum sem renna til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Öll almenn lækn­is­þjón­usta er inni­falin í skött­unum, engin komu- eða skoð­un­ar­gjöld.

Kreppan

Danmörk fór ekki var­hluta af fjár­málakrepp­unni sem reið yfir heim­inn haustið 2008. Kreppan þýddi að fjöl­margar fram­kvæmdir sem voru í gangi stöðv­uð­ust, við­haldi opin­berra bygg­inga var skotið á frest og hætt var, tíma­bundið, við nýbygg­ingar svo fátt eitt sé nefnt. Þetta bitn­aði harka­lega á sjúkra­hús­unum sem eru enn að súpa seyðið af þessum ákvörð­unum.

Súpersjúkrahúsin

Fyrir þing­kosn­ing­arnar árið 2007 kynnti rík­is­stjórnin, sem þá var undir for­ystu Anders Fogh Rasmus­sen, hug­mynd um það sem kallað var super­sy­gehuse, súper­sjúkra­hús. Hug­myndin var að styrkja veru­lega, og stækka, sjö sjúkra­hús, gera þau að eins konar höf­uð­sjúkra­húsum á til­teknum svæðum. Þegar rík­is­stjórnin kynnti þessar hug­myndir var gert ráð fyrir að fram­kvæmdir gætu haf­ist árið 2012 og yrði lokið átta árum síðar, 2020. Kreppan varð til þess að seinka fram­kvæmdum og nú er miðað við að þeim verði að mestu lokið árið 2022. Miklum fjár­munum hefur verið varið til þess­ara fram­kvæmda en það hefur hins vegar bitnað á þeim sjúkra­húsum sem fyrir eru en þau hafa um margra ára skeið mátt sæta nið­ur­skurði.

Myglusveppur

l2. júlí árið 2011 gerði úrhelli í Kaup­manna­höfn. Á tveimur klukku­stundum féllu 150 milli­metrar regns og dag­inn eftir féll sömu­leiðis mikil úrkoma. Skemmdir af völdum úrkom­unnar urðu miklar, frá­veitu­kerfin réðu ekki við þetta gríð­ar­mikla vatns­magn. Ástandið var verst á nokkrum svæðum í mið­borg­inni en víða ann­ars staðar olli vatns­ag­inn miklum skemmdum. Meðal ann­ars á Rík­is­spít­al­anum þar sem vatn flæddi inn í kjall­ara aðal­bygg­ing­ar­innar. Skemmdir af völdum þess­arar miklu úrkomu komu ekki alls staðar fram fyrr en nokkru síðar. Þar á meðal á Rík­is­spít­al­anum.

Árið 2016 greindi Ekstra Blaðið frá því að í aðal­bygg­ingu Rík­is­spít­al­anum væru veru­legar skemmdir af völdum myglu­svepps og mörgum Dönum brá í brún þegar þeir sáu myndir sem Ekstra Blaðið birti með umfjöllun sinni. Yfir­stjórn spít­al­ans við­ur­kenndi að myglu­sveppur væri vanda­mál, á til­teknum stöðum í spít­al­anum en lagði áherslu á að sjúk­lingum og starfs­fólki staf­aði ekki hætta af sveppnum. Yfir­stjórnin sagði enn­fremur að unnið væri að því með mark­vissum aðgerðum, eins og það var orðað, að upp­ræta svepp­inn. Myglu­sveppur hefur fund­ist í fleiri sjúkra­húsum en ekki í sama mæli og á Rík­is­spít­al­anum. En vanda­mál danskra spít­ala ein­skorð­ast ekki við myglu­svepp.

Yfirfullir spítalar og sjúklingar á göngunum

Eins og áður var á minnst hafa flest sjúkra­hús í Danmörku mátt sæta miklum nið­ur­skurði á síð­ustu árum. Nið­ur­skurð­ur­inn, sem stjórn­völd kalla gjarna sparnað, hefur haft í för með sér að deildum hefur verið lokað og starfs­fólki fækkað. Stjórn­endur sjúkra­hús­anna hafa marg­sinnis bent á að sífelldur nið­ur­skurður bitni á þeirri þjón­ustu sem sjúkra­húsin geti veitt, og beri í raun skylda til að veita. Nú er svo komið að flest sjúkra­hús í land­inu hafa ekki legu­pláss fyrir alla þá sjúk­linga og því orðið að bregða á það ráð að hafa sjúkra­rúm á göngum spít­al­anna. Á sama tíma hefur starfs­fólki verið fækkað og álagið þar af leið­andi auk­ist.

Í gögnum töl­fræði­deildar dönsku heil­brigð­is­þjón­ust­unnar kemur fram að árum saman hafa verið mun fleiri sjúk­lingar á flestum spít­ölum en í raun er pláss fyrir. Ástandið hefur aldrei verið verra en um þessar mundir og svo alvar­legt að danska vinnu­eft­ir­litið hefur marg­sinnis gert alvar­legar athuga­semdir við ástandið. Þær athuga­semdir lúta einkum að vinnu­á­lagi sem er að mati vinnu­eft­ir­lits­ins svo mikið að sjúk­lingum stafar hætta af. Undir það álit tekur danskur sér­fræði­læknir, Flemming Madsen að nafni. Hann hefur rann­sakað sam­hengi yfir­fullra deilda og dauðs­falla, á 18 ára tíma­bili. Nið­ur­staða hans er að dauðs­föllum á lyf­lækna­deildum fjölgar þegar sjúk­lingar á deildum eru fleiri en legu­plássin og starfs­fólk of fátt. ,,Ótímabær dauðs­föll við þessar aðstæður eru níu pró­sent, það er há tala“ sagði Flemming Madsen í við­tali við danska sjón­varpið DR.

Slökkviliðsmenn undir álagi

Í reglum um bruna­varnir á sjúkra­húsum er tekið fram að séu rúm­liggj­andi sjúk­lingar á göngum sé skylda að hafa bruna­vörð á við­kom­andi gangi. Ástandið á spít­öl­unum und­an­farið hefur þýtt að fjöldi bruna­varða hefur orðið að standa „ganga­vakt­ina“. Slökkvi­liðs­menn eru lang­þreyttir á ástand­inu og „ganga­vakt­irnar“ kosta pen­inga, sem slökkvi­liðið telur að við­kom­andi spít­ali eigi að borga en yfir­stjórnir spít­al­anna eru á öðru máli. Einn slökkvi­liðs­stjóri sagði að ef ekki fynd­ist lausn á þessu máli myndi hann neita að senda fólk á „ganga­vakt­ina“.

Þingmenn krefjast viðbragða ráðherra

Umfjöllun um ástandið á sjúkra­hús­unum hefur und­an­farið verið áber­andi í dönskum fjöl­miðlum. Talsmenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í heil­brigð­is­málum á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hafa á síð­ustu mán­uðum marg­sinnis setið fundi með Ellen Trane Nørby heil­brigð­is­ráð­herra og kraf­ist aðgerða. Ráð­herr­ann hefur tekið undir að ástandið sé óvið­un­andi en hefur sagt að það sé verk yfir­stjórnar hvers spít­ala að sjá til þess að rekst­ur­inn sé innan þess fjár­hags­ramma sem rík­is­stjórnin hefur sett.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár