„Það er ekki kominn 4. maí“

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild sagð­ist knú­inn til þess að minna fólk á að ekki væri kom­inn 4. maí, á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Yfirvöld ótt­ast að bakslag gæti komið í far­ald­ur­inn ef fólk slakar á og fer á svig við reglur.

Víðir Reynisson á fundinum í dag.
Víðir Reyn­is­son á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn minnti á að það er ekki kom­inn 4. maí, við upp­haf dag­legs upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Hann sagði tölu­vert hafa borið á til­kynn­ingum um að fólk væri ekki að fylgja reglum sam­komu­banns.

Hann sagði að af þessum sökum ótt­uð­ust yfir­völd að bakslag gæti komið í far­ald­ur­inn og að upp­lifunin væri sú að „fólki hafi verið létt“ þegar upp­lýs­ingar voru gefnar út um til­slak­anir á sam­komu­bann­inu fyrr í vik­unni. Fólk hafi þá leyft sér að fara að gera hluti sem það hefur ekki verið að gera und­an­farnar vikur.

Almanna­varnir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa varað sér­stak­lega við því að hópar ung­menna safn­ist saman á leik­svæðum á kvöldin, en eitt­hvað hefur borið á því að ung­lingar séu að safn­ast saman í stórum hópum und­an­farna daga.

Í sam­tali við Vísi fyrr í dag sagði Víðir að ef upp komi hópsmit við slíkar aðstæður eða sam­bæri­legar gæti það hæg­lega sett áætl­anir um slökun sam­komu­banns­ins í upp­nám.

„Það er fleira fólk á ferli,“ sagði Víðir á fund­inum, en bætti svo við að vissu­lega hefðu yfir­völd komið því á fram­færi út í sam­fé­lagið að fólk mætti ekki hætta að lifa á tímum sam­komu­banns og það væri enn í gildi. Þó þyrfti áfram að fylgja regl­unum.

Vís­bend­ingar væru þannig að ber­ast til almanna­varna­deildar um að verið væri að skipu­leggja manna­mót sem ekki væru við hæfi á meðan núver­andi sótt­varna­ráð­staf­anir eru í gildi og því væri hann knú­inn til þess að minna á að regl­urnar hafa ekk­ert breyst, þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið að ögn verði slakað á þeim 4. maí.

Tveggja metra reglan komin til að vera um nokkra hríð

Víðir minnti líka á að tveggja metra reglan verður áfram í gildi við öll manna­mót, líka eftir 4. maí og að sá dagur væri eng­inn „enda­dagur“ í því sam­fé­lags­lega verk­efni sem verið er að fást við.

„Þetta verður erfitt, að vera með fimm­tíu manna veislu í fimm­tíu fer­metrum, það er aug­ljóst að það þarf meira pláss en það,“ sagði Víðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár