Miðflokkurinn vill skýrslu um kosti og galla EES-samningsins

Allir þing­menn Mið­flokks­ins hafa óskað eftir að skýrslu um kosti og galla aðildar Íslands að EES. Þeir segja að norsk skýrsla hafi vakið upp alvar­legar spurn­ingar „um skort á lýð­ræði og afsal á full­veldi Noregs vegna EES-samn­ings­ins.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er einn af flutningsmönnum skýrslubeiðninar.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, er einn af flutn­ings­mönnum skýrslu­beiðn­inar. Mynd: Bára Huld Beck

Allur þing­flokkur Mið­flokks­ins hefur lagt fram end­ur­nýj­aða beiðni til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að skýrslu um kosti og galla aðildar Íslands að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið, og þau áhrif sem samn­ing­ur­inn hefur haft á Íslandi, verði unnin. Fyrsti flutn­ings­maður er Ólafur Ísleifs­son.

[links]Í grein­ar­gerð sem fylgir beiðn­inni vísar Mið­flokk­ur­inn til skýrslu sem unnin var af starfs­hópi í Noregi fyrir norsk stjórn­völd, var birt árið 2012 og bar heitið „Utenfor og inn­en­for: Norges avtaler med EU“. Samkvæmt grein­ar­gerð Mið­flokks­ins vökn­uðu alvar­legar spurn­ingar „um skort á lýð­ræði og afsal á full­veldi Noregs vegna EES-samn­ings­ins og Schengen-sam­vinn­unnar. Í ljós kom að áhrif EES-samn­ings­ins höfðu náð til miklu fleiri sam­fé­lags­þátta en lagt var upp með árið 1992. Enn virð­ist ekki sjá fyrir end­ann á þeirri þróun því nú eru miklar umræður í Noregi um frum­varp norsku rík­is­stjórn­ar­innar um aðild lands­ins að orku­lög­gjöf ESB en ákvörðun þess efnis að lög­gjöfin skuli tekin upp í EES-samn­ing­inn hefur þegar verið sam­þykkt af sam­eig­in­legu EES-nefnd­inni.“

Mið­flokk­ur­inn telur að það sé orðið mjög áríð­andi „fyrir íslenska hags­muni að gerð verði svipuð úttekt á afleið­ingum og virkni EES-samn­ings­ins hér á landi. Það væri við hæfi að gera þessa úttekt í ljósi þess að liðin eru 25 ár frá gild­is­töku EES-samn­ings­ins. Ítarlegt og vandað stöðu­mat á EES-samn­ingnum yrði auk þess verð­ugt fram­lag nú þegar Íslend­ingar minnt­ust fyrir skömmu 100 ára afmælis full­veldis lands­ins.“

[adspot]Mið­flokk­ur­inn lagð­ist í for­dæma­laust mál­þóf vegna inn­leið­ingar þriðja orku­pakk­ans í íslensk lög fyrr á þessu ári. Aðrir stjórn­mála­flokkar ásök­uðu flokk­inn um að vera í raun að berj­ast gegn EES-samn­ingnum í þeirri veg­ferð. Þriðji orku­pakk­inn var sam­þykktur í byrjun mán­aðar með yfir­gnæf­andi stuðn­ingi á Alþingi.

Hópur sem metur kosti og galla þegar að störfum

Það er þegar starf­andi starfs­hópur, sem skip­aður var af utan­rík­is­ráð­herra 20. ágúst í fyrra, sem vinnur að gerð skýrslu um aðild Íslands að EES-samn­ingnum. Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra, stýrir þeirri vinnu. Auk Björns sitja í hópnum þær Kristrún Heim­is­dótt­ir, lög­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins, og Berg­þóra Hall­dórs­dótt­ir, lög­fræð­ingur hjá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og erind­reki um sam­starf atvinnu­lífs­ins og utan­rík­is­þjón­ust­unn­ar. Þá fékk hóp­ur­inn starfs­mann sem hefur aðsetur í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Starfs­hóp­ur­inn átti upp­haf­lega að skila skýrslu sinni innan tólf mán­aða, en hún hefur þó enn ekki verið birt.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið í ágúst í fyrra sagði utan­rík­is­ráðu­neytið að með skýrsl­unni væri verið að koma til móts við beiðni frá hópi þing­manna um skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um kosti og galla aðildar Íslands að EES-­samn­ingnum sem sam­þykkt var á Alþingi fyrr á árinu 2018.

Þingmenn Mið­flokks­ins virð­ast þó ekki sam­mála því og vilja aðra skýrslu sem skilað verður til Alþingis, ekki ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár