Telur samþjöppun ekki endilega merki um að eitthvað sé að í viðskiptaumhverfinu

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að skoða yrði mál­efni ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja út frá víð­ara sjón­ar­horni og að sér­stak­lega ætti að taka til­lit til þess að rekstur margra smærri fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu hefði verið erf­iður.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að það væri ekki endi­lega merki um að eitt­hvað mikið væri að í við­skiptaum­hverf­inu á Íslandi að ein­hver sam­þjöppun ætti sér stað.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði ráð­herr­ann út í rekstr­ar­grund­völl lít­illa fyr­ir­tækja hér á landi í ferða­þjón­ust­unni.

„Lítil fyr­ir­tæki eiga af ein­hverjum ástæðum færri málsvara hér inni þrátt fyrir að þau séu hryggjar­stykkið í verð­mæta­sköpun í land­inu og stuðn­ingur við þau sé for­senda auk­innar fjöl­breytni í atvinnu­líf­inu. Sam­þjöppun í atvinnu­líf­inu er því miður mjög vel þekkt afleið­ing kreppu. Þegar við horfum núna fram á mik­inn sam­drátt, jafn­vel algjört frost í ferða­þjón­ustu, eykst hætta á þess­ari sam­þjöppun. Eign­ar­haldið fær­ist á færri hendur, verð­mæt­ustu störfin flytj­ast úr fámenn­inu, hin verða eftir. Við sitjum uppi með mið­stýrð­ari, eins­leit­ari og fátæk­legri ferða­þjón­ustu,“ sagði Logi.

Þing­mað­ur­inn spurði hvort ráð­herra hefði áhyggjur af þessu. Hvort bankar og sjóðir – jafn­vel í eigu rík­is­ins – veldu að aðstoða stór fyr­ir­tæki sem þau hefðu veðjað á til að kaupa önnur minni en spenn­andi fyr­ir­tæki sem væru í ferða­þjón­ustu um allt land.

„Teldi hann það ekki vera grát­leg nið­ur­staða ef þessi kreppa leiddi til þess að ferða­lög til Íslands yrðu með flug­vél, í rútu, á hótel, niður í hvala­skoð­un­ar­báta og end­uðu í huggu­legum sjó­böðum þar sem fyr­ir­tækin væru öll í eigu meira eða minna sömu eig­end­anna?“ spurði hann enn fremur.

Slæmt ef lítil eða meðalstór fyrirtæki gæfu hlutfallslega eftir

Bjarni svar­aði og sagði að störfin væru flest hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum á Íslandi og þess vegna gæti hann tekið undir með Loga að yrði sú breyt­ing vegna heims­far­ald­urs­ins að þau gæfu hlut­falls­lega eftir á móti stærri fyr­ir­tækj­unum væri það mjög slæmt.

„Það eru líkur til þess að við það myndi hrein­lega fækka störfum í land­inu. Meðal ann­ars af þeirri ástæðu fór þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins um landið fyrr á þessu ári, sér­stak­lega til þess að sækja heim lítil fyr­ir­tæki um allt land. Ég hygg að þegar upp var staðið höfum við sótt heim í kringum 100 fyr­ir­tæki. Það sem við fengum skila­boð um í þessum heim­sóknum var fjöl­breyti­legt, til dæmis að menn vilja fá að spreyta sig meira án opin­berra afskipta. Reglu­byrðin komst oft til tals og launa­tengdu gjöldin sem við höfum verið að lækka í þess­ari rík­is­stjórn með því að taka trygg­inga­gjaldið niður í smáum skrefum. Við skulum líka hafa í huga að þegar rætt er um stór fyr­ir­tæki sem greiða skatta til sam­fé­lags­ins og skipta veru­lega miklu máli í bland við lítil fyr­ir­tæki voru þau líka í eina tíð lítil. Lítil fyr­ir­tæki eru sum hver í vexti og vilja taka meira til sín og við eigum ekki að berj­ast gegn því.

Þegar rætt er um ferða­þjón­ust­una er hár­rétt að við sjáum, sér­stak­lega í dreifð­ari byggðum lands­ins, að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem eru lítil að vöxtum eru mjög áber­andi í hópi þeirra sem koma ein­stak­lega illa undan áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Það er ástæða til að fylgj­ast með því hvernig við getum hjálpað þeim í gegnum þessa tíma. Ég tel að mörg þau úrræði rík­is­stjórn­ar­innar sem hafa komið fyrir þingið gagn­ist þeim mjög vel,“ sagði Bjarni.

Þakkaði ráðherra fyrir ferðasöguna

Logi kom í síð­ara sinn í pontu og þakk­aði Bjarna kær­lega fyrir ferða­sög­una. Hann sagði að ráð­herra mætti kynna sér frum­varp sem hann sjálfur lagði fram um stuðn­ing við lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki „þar sem einmitt er tekið á þeim ábend­ingum sem hann fékk í þeirri ágætu ferð“.

Þing­mað­ur­inn spurði enn fremur hvort ráð­herr­ann hefði heyrt af því að þessi sam­þjöppun væri nú þegar hafin og hvort hann gæti jafn­vel nefnt ein­hver dæmi. Og hvort frum­vörpin og skil­yrði fyrir stuðn­ingi hefðu verið rýnd sér­stak­lega til þess að koma í veg fyrir sam­þjöppun.

„Og svo af því að nú liggur fyrir stjórn­ar­frum­varp sem bein­línis veikir sam­keppn­is­lög­gjöf á Íslandi langar mig að spyrja sam­kvæmt orðum Gylfa Magn­ús­sonar: Verður látið undan háværum kröfum stór­fyr­ir­tækja og sam­taka þeirra um að veikja íslenskt sam­keppn­is­eft­ir­lit eða fær almenn­ingur að njóta þeirrar verndar sem hann hefur notið til þessa? Með öðrum orðum: Í ljósi krepp­unnar sem nú er uppi, getur ráð­herra hugsað sér að taka frum­varpið aftur inn á teikni­borðið og skoða það með hags­muni neyt­enda í huga?“

„Verðum að skoða málið út frá aðeins víðara sjónarhorni“

Bjarni svar­aði en hann telur eins og áður segir það ekki endi­lega vera merki um að eitt­hvað sé mikið að í við­skiptaum­hverf­inu á Íslandi að ein­hver sam­þjöppun eigi sér stað.

„Við verðum að skoða málið út frá aðeins víð­ara sjón­ar­horni og þá sér­stak­lega að taka til­lit til þess að rekstur margra smærri fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu hefur verið erf­iður. Hann hefur ekki verið að skila mik­illi arð­semi og það getur einmitt verið frá­bær nið­ur­staða fyrir fyr­ir­tæki, sem menn eru búnir að koma á fót og eiga sér ein­hverja fram­tíð en gengur illa að stækka með því litla eigin fé sem er til staðar, að ná samn­ingum um sam­ein­ingu. Þannig geta menn skapað loks­ins verð­mæti úr allri sinni vinnu þannig að ég vil ekki meina að sam­þjöppun sé sjálf­gefið slæm. Við þurfum að passa upp á að sam­keppn­is­lögin þjóni bæði þeim mark­miðum sem við höfum sér­stak­lega stefnt að með þeim en séu á sama tíma ekki of íþyngj­andi fyrir atvinnu­starf­sem­ina,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár