Bernie Sanders lýsir formlega yfir stuðningi við Hillary Clinton

Bernie Sanders ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til að Hillary Clinton verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Hann fékk í gegn breyt­ingar á stefnu Demókra­ta­flokks­ins um helg­ina.

Hillary og Bernie á fundinum í New Hampshire í dag.
Hillary og Bernie á fund­inum í New Hamps­hire í dag. Mynd: EPA

Bernie Sanders, sem sótt­ist eftir því að verða for­seta­efni Demókra­ta­flokks­ins, hefur lýst form­lega yfir stuðn­ingi við Hillary Clinton, mótherja sinn um útnefn­ingu flokks­ins. Löngu er orðið ljóst að Clinton myndi hljóta til­nefn­ingu flokks­ins, og Sanders hefur við­ur­kennt það, en hann hefur ekki lýst form­lega yfir stuðn­ingi við hana fyrr en nú.

Sanders og Clinton komu fram saman á kosn­inga­fundi í New Hamps­hire í dag. Sanders vann for­kosn­ing­arnar í New Hamps­hire með miklum yfir­burðum í febr­úar og nýtur mik­ils stuðn­ings þar.

„Ég er kom­inn hingað til þess að gera það eins ljóst og mögu­legt er hvers vegna ég er að lýsa yfir stuðn­ingi við Hillary Clinton og hvers vegna hún verður að verða næsti for­seti okkar,“ sagði Sanders á fund­inum. „Ég er stoltur af okkar kosn­inga­bar­áttu hér í New Hamps­hire og um landið allt. Barátta okkar skil­aði sigri í for­kosn­ingum og á kjör­fundum í 22 ríkjum.“ Þegar allt komi til alls á lands­fundi demókrata muni koma í ljós að Sanders hafi fengið um 1,900 kjör­menn. „Miklu meira en næstum því allir héldu að við gætum unnið.“

Það væri hins vegar ekki nóg, Clinton færi inn á lands­fund­inn með fleiri kjör­menn og miklu fleiri ofur­kjör­menn. Hún hefði því sigrað hann og hann óskaði henni til ham­ingju með það. „Ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að tryggja að hún verði næsti for­seti.“

Um helg­ina fóru fram við­ræður á milli þeirra um breyt­ingar á stefnu Demókra­ta­flokks­ins, sem urðu til þess að Sanders ákvað að styðja Clinton. Með við­ræð­unum fékk Sanders fram breyt­ingar á stefn­unni í lofts­lags­málum, lág­marks­launum og maríjúana, meðal ann­ars.

Sanders og Clinton háðu mjög harða kosn­inga­bar­áttu og hefur ekki bein­línis verið vel til vina. Engu að síður sagði Sanders fyrir nokkru síðan að hann myndi kjósa Clinton í kosn­ing­unum í nóv­em­ber. „Ég held að það rétta í stöð­unni sé að gera allt sem í mínu valdi stendur til að fella Don­ald Trump.“ Það verði hræði­legt ef Trump verði kjör­inn for­seti. „Við þurfum ekki for­seta sem elur á for­dóm­um, gerir lítið úr Mexík­óum og kon­um, og trúir ekki á lofts­lags­breyt­ing­arn­ar, jafn­vel þó allir vís­inda­menn bendi á að hér sé um alheims­vanda­mál,“ sagði Sand­ers.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár