Ísland eina Norðurlandið sem eykur orkunotkun

Orku­notkun á öllum Norð­ur­lönd­unum hefur staðið í stað und­an­farin ár, að Íslandi und­an­skyldu. Verg lands­fram­leiðsla hefur auk­ist á öllum lönd­unum á sama tíma. Þrátt fyrir það er Ísland græn­ast allra Norð­ur­land­anna og notar mest af end­ur­nýj­an­legri orku.

Nesjavallavirkjun Orku náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið.
Nesja­valla­virkjun Orku nátt­úr­unnar fram­leiðir raf­magn og heitt vatn fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið. Mynd: ON

End­ur­nýj­an­legir orku­gjafar eins og jarð­varmi eru talin ein helsta ástæða þess að orku­notkun á Íslandi hefur auk­ist und­an­farin ár. Á sama tíma hefur orku­notkun á hinum Norð­ur­lönd­unum staðið í stað. Á Íslandi skýrir orku­frekur iðn­aður að stórum hluta mikla orku­notkun sem þó vegna umhverf­is­vænna orku­gjafa er græn­ast allra Norð­ur­land­anna. Þetta kemur fram í nýrri sam­an­burð­ar­skýrslu um Norð­ur­löndin sem birt var í morgun.

Ísland trónir líka á toppnum þegar hlut­falls­legur styrkur í útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er skoð­aður. Útblástur jókst gíf­ur­lega á áru­naum 2005 til 2008, en þá tók að draga úr honum á ný. Þá fjallar skýrslan einnig um aukna notkun kjarn­orku í Svíþjóð og Finn­landi og að sama skapi aukna notkun á kolum á Finn­landi og Danmörku. Þá segir að á sama tíma hefur notkun á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum auk­ist gríð­ar­lega, eins og vind­orka og jarð­varmi. Sá síð­ar­nefndi er sér­stak­lega nefndur í tengslum við Ísland. Íslend­ingar nota hlut­falls­lega lang­mest af end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum, eins og vind, vetni og jarð­varma.

Ísland sker sig úr á margan hátt

Skýrslu­höf­undar sáu víða ástæðu til að taka út sér­stakan kafla um Ísland. Sér­stak­lega varð­andi ferða­mennsku, hús­næð­is­mál, íbúa­þróun, atvinnu og búsetu. Hlut­falls­lega flestir Íslend­ingar búa í borg eða bæ, 94 pró­sent, á meðan um 80 pró­sent Norð­manna búa í þétt­býl­inu.

Þá er Reykja­vík óeft­ir­sóttasta höf­uð­borg Norð­ur­land­anna og vermir tíunda sætið á lista sem birtur er í skýrsl­unni og skoðar meðal ann­ars efna­hags­horfur, þróun íbúa­fjölda og atvinnu­mögu­leika svæð­anna. Osló er þar í fyrsta sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár