Kona færð í annað sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Kraganum

Líkur Vilhjálms Bjarnasonar á því að halda þingsæti sínu drógust mjög saman í gær þegar Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að færa Bryndísi Haraldsdóttur úr fimmta í annað sæti á framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi.
Líkur Vil­hjálms Bjarna­sonar á því að halda þing­sæti sínu dróg­ust mjög saman í gær þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ákvað að færa Bryndísi Har­alds­dóttur úr fimmta í annað sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kjör­dæm­is­ráð Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suðvest­ur­kjör­dæmi ákvað í gær að færa Bryndísi Har­alds­dóttur í annað sætið á fram­boðs­lista flokks­ins. Eini fram­bjóð­and­inn sem verður fyrir ofan hana verður Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bryndís lenti í fimmta sæti í próf­kjöri flokks­ins 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Fyrir ofan hana voru fjórir karlar og var nið­ur­staðan harð­lega gagn­rýnd víða. Þing­mað­ur­inn Jón Gunn­ars­son fær­ist við breyt­ing­una niður í þriðja sæti list­ans, sem hann var í árið 2013 líka. Í fjórða sæti verður Óli Björn Kárason vara­þing­maður og Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður fær­ist niður í fimmta sætið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk fimm þing­menn í kosn­ing­unum 2013. Þá sat Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir í öðru sæti list­ans og Elín Hirst í því fimmta.

Tvo neðstu sætin á list­anum verða bar­áttu­sæti miðað við stöðu flokks­ins í könn­unum og í ljósi þess að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­maður kjör­dæm­is­ins, er nú í fram­boði fyrir Viðreisn. Því hafa lík­urnar á að minnsta kosti Vil­hjálmur Bjarna­son nái aftur inn á þing snar­minnkað við breyt­ing­arnar á list­anum.

Ljóst er að breyt­ing­arnar eru gerðar til að bæta stöðu kvenna í efstu sætum á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Flokk­ur­inn fékk mikla gagn­rýni á sig í kjöl­far próf­kjara sinna í Kraganum og í Suð­ur­kjör­dæmi, en þar sitja karlar í þremur efstu sæt­unum í kjör­dæmi þar sem flokk­ur­inn hefur í dag þrjá þing­menn. Í próf­kjör­unum tveimur var þremur þing­konum, þar af einum ráð­herra og fyrr­ver­andi odd­vita, hafnað. Um er að ræða Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, Unni Brá Kon­ráðs­dóttur og Elínu Hirst. Auk þess skip­uðu konur flest bar­áttu­sætiflokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar.

Helga Dögg Björg­vins­dótt­ir, Jar­þrúður Ásmunds­dóttir og Þórey Vil­hjálms­dóttir sögðu sig í kjöl­farið úr Sjálf­stæð­is­flokkn­um, en þær eru núver­andi og tveir síð­ustu for­menn Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna. Í yfir­lýs­ingu sögð­ust þær ekki eiga „sam­leið með flokki sem skil­ar af sér nið­ur­stöðum úr próf­kjöri eins og þeim sem við höf­um ný­verið séð.“ Helga Kristín Auð­unds­dóttir, vara­for­maður Lands­sam­bands­ins, fylgdi í fót­spor þeirra skömmu síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár