Þrír formenn Landssambands sjálfstæðiskvenna segja sig úr flokknum

Helga Dögg Björg­vins­dóttir, Jar­þrúður Ásmunds­dóttir og Þórey Vil­hjálms­dóttir hafa allar sagt sig úr Sjálf­stæð­is­flokknum, en þær eru núver­andi og tveir síð­ustu for­menn Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna.

Þetta til­kynntu þær fyrir skömmu. Þær segja að þær eigi „ekki sam­leið með flokki sem skilar af sér nið­ur­stöðum úr próf­kjöri eins og þeim sem við höfum nýverið séð.“

Und­an­farin ár hafi þær varið kröftum sínum og tíma í þágu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og tala fyrir jafn­rétti kynj­anna þegar kemur að vali í áhrifa­stöður innan flokks­ins og kjöri full­trúa.

„Nú teljum við full­reynt að hreyfa við þeim íhalds­sömu skoð­unum og gildum sem ríkja um jafn­rétt­is­mál í Sjálf­stæð­is­flokknum. Ýmis skref hafa verið stigin sem ættu að leiða til auk­ins jafn­réttis kynj­anna á síð­ustu árum. Víðtæk and­staða hefur þó verið gegn því að ganga lengra í að breyta kerfi og ásýnd flokks­ins í þá veru að konur fáist til þátt­töku.“

Mikið hafi verið talað fyrir því að velja „hæf­asta ein­stak­ling­inn“. Það hafi sannað sig í próf­kjörum síð­ustu vikna að þessi mál­flutn­ingur sé úreltur og ekki í neinum takti við nútím­ann, og enn einu sinni hafi komið í ljós að próf­kjör skili ekki endi­lega góðum nið­ur­stöðum „þó að þau séu kannski lýð­ræð­is­leg fyrir þann þrönga hóp sem tekur þátt í þeim.“

Ýmsir aðrir stjórn­mála­flokkar veigri sér ekki við því að velja þannig á lista að konur fái jöfn tæki­færi til ábyrgðar á við karla. „Nema staðan sé sú innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að allir „hæf­ustu ein­stak­ling­arnir“ séu karlar.“

Helga, Þórey og Jar­þrúður segja að þær hafi barist fyrir auk­inni ábyrgð kvenna og verið drifnar áfram af „ólýs­an­legri bjart­sýni og ofur­trú“ á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi breyt­ast og beita sér í verki fyrir auknu jafn­rétti kynj­anna. Þær hafi tekið slagi fyrir konur, haldið fjölda leið­toga­nám­skeiða og funda, talað fyrir mik­il­vægi þátt­töku kvenna og hvatt flokks­menn til að kjósa konur. Þær hafi mótað og fengið sam­þykkta jafn­rétt­is­stefnu og náð fram breyt­ingum á skipu­lags­reglum flokks­ins þar sem jafn­rétti kynja sé stað­fest sem eitt af grunn­gild­unum. 

„Því miður hefur þetta ekki breytt stöðu kvenna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins ― nið­ur­stöður próf­kjara í Suð­ur­kjör­dæmi og Suð­vest­ur­kjör­dæmi eru áfall fyrir flokk­inn. Aðeins ein kona verður odd­viti fyrir flokk­inn á lands­vísu á næsta kjör­tíma­bili sem er óvið­un­andi. Og nú er sú staða hugs­an­lega komin upp að engin kona sem kosin var á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í síð­ustu þing­kosn­ingum muni taka sæti á kom­andi þingi.“

Þeim séu það mikil von­brigði að flokk­ur­inn hafi ekki tryggt að staða eins og þessi gæti ekki komið upp aftur. „Nú, á árinu 2016, gerum við þá sjálf­sögðu kröfu að konur og karlar hafi sömu tæki­færi til að hafa áhrif á mótun lög­gjafar og stefnu í sam­fé­lag­inu.“ Af þess­ari kröfu vilji þær ekki gefa neinn afslátt.

„Í því ljósi og þess sem á undan er gengið eigum við ekki sam­leið með flokki sem skilar af sér nið­ur­stöðum úr próf­kjöri eins og þeim sem við höfum nýverið séð. Það virð­ist sem svo að engar ráð­staf­anir hafi verið gerðar til að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú er komin upp. Því höfum við tekið ákvörðun um að segja skilið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og þær íhalds­sömu skoð­anir sem þar virð­ast ríkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár